Dagblaðið - 02.04.1979, Síða 27
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. APRÍL 1979.
27
Heimsmethafinn ívélsleðastökki íheimsókn:
„Akvað að láta slag standa”
— sagði hann eftir að hafa stokkið yf ir sex bíla
„Jú, ég held að ég sé í lagi,” sagði
Bandaríkjamaðurinn Scott Eilertson
eftir að hann stökk á vélfáki sínum yfir
6 bíla í gær. Scott er heimsmethafi í
vélsleðastökki og þó hann hafi að eigin
sögn ekkert stokkið i tvö ár vildi hann
sýna íslendingum að enn væri töggur í
honum. Stökkið fór fram við Sand-
skeið.
Áður var þar reyndar keppt í akstri
á vélsleðum. Skemmst er frá því að
segja að Scott bar frækilegt sigurorð af
öllum íslenzku keppendunum. Ef til
vill hefur eitthvað hjálpað til að hann
var á langöflugasta sleðanum.
En stökkið var greinilega það sem
menn voru komnir til að sjá. Þeir sem
Upp pallinn i byrjun og menn bíða spenntir eftir stökkinu.
Og í loftið og stökkið virðist ætla að heppnast.
vildu sjá slíkt afrek voru nokkur
hundruð sem söfnuðust í kring um
keppnissvæðið. Mikið var af Banda-
ríkjamönnum af Keflavíkurflugvelli,
enda vinnur Scott þar og vildu félagar
hans hvetja hann í hvíveina. Banda-
ríska sjónvarpið mætti líka á staðinn,*
tveir menn er báru myndsegulband,
hljóðupptökumaður og fréttamaður.
Snjóköggli
hagrætt
Eftir að sleðakeppninni lauk fór að
gæta mikillar óþolinmæði hjá áhorf-
endum. En Scott og skipuleggjurum
mótsins virtist lítið liggja á. Lokið var
við að negla saman stökkpallinn í
mestu makindum og Scott gekk um og
hagræddi snjókögglum. Hann lagði
síðan upp og kom brunandi að
pallinum. AUir héldu niðri í sér andan-
um. En, nei, hann fór fram hjá. önnur
atrenna og aftur framhjá. Þriðja at-
renna og enn framhjá. Ætlaði
maðurinn að stökkva eða ekki? Fjórða
atrenna, upp og yfir bUana með rassinn
þó aðeins á húddið á þeim síðasta.
Mikil fagnaðarlæti.
Scott stökk af baki og fagnaði
ákaft, sigri hrósandi. Hann sagðist alla
tíð hafa verið viss um að stökkið
myndi heppnast en hefði fyllzt meiri
vafa um lendinguna.
Heimsmetið og
Evel Knievel
„Scott var spurður að því hvenær
hann hefði fyrst setið vélsleða. ,,Ég
man það ekki,” sagði hann. „Faðir
minn keypti fyrsta vélsleðann þegar ég
var 10 eða 11 ára, ég man ekki hvort,
það er svo langt síðan. Hann byrjaði
strax að þjálfa mig og ég fór að keppa í
hraðakstri. Seinna sá ég að ég myndi
geta unnið mér inn fé með því að
stökkva yfir alls konar hluti á
sýningum. Eftir að ég hafði unnið við
þetta í nokkum tima kom Evel Knievel
að máli við mig og bað mig um að sjá
um helming á sýningu sem hann var
með. Hann var að reyna að slá heims-
metið í að stökkva yfir hluti á
mótorhjóli. Ég sló til og ákvað að
hnekkja heimsmeti líka. Það tókst, ég
stökk rúmlega 112 fet (37 metrar). Ég
hef aldrei reynt að slá þaðsíðan.
Stökkið hérna er heldur lengra en ég
vildi hafa það miðað við að ég hef ekki
stokkið í tvö ár. En aðstæður hér eru
góðar svo ég ákvað að láta slag standa.
-DS.
Barnaog
unglingaskrifboroin
Ódýr, hentug og falleg.
Sendum hvert á land sem er.
STIL-HUSGOGN
AUÐBREKKU 63 KÓPAVOGI SÍMI 44600
1 :
1' l
Hann flýgur yfir bílana sex á vélsleðanum, nærri þvi eins og ekkert sé.
* -
Búmms og niður með rassinn. Skellurinn var svo mikill að Scott hófst á loft aftur
og lenti með enn meiri skelli. DB-myndir Hörður.
Láttu sjá þig!
★★★★★★★★★★★★★★★★★
Hef ur þú séð
JOHN ANTHONY
★★★★★★
★★★★★★
r 4] Efekki;
LÁTTU ÞAÐ EFTIR
ÞÉR AÐ SKREPPA
í ÓÐAL í KVÖLD.
Hann er;
SYNGJANDI SÆLL OG GLAÐUR