Dagblaðið - 11.04.1979, Qupperneq 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979.
HINIR ÓHREINU
Hildur skrifar:
Frásagnir af því þegar almenningur
ígrýtti holdsveika til bana fyrr á
öldum hneyksla okkur siömenntaða
jnútímamenn meira en orð fá lýst.
Við skiljum ekki slíka framkomu við
veikt fólk. Okkur dettur ekki í hug að
kasta grjóti í sjúklinga, við faerum
þeim frekar blóm og konfekt, segjum
Við þá uppörvandi orð og brosum
iblíðlega eins og góðu fólki sæmir. Er
ekki dásamlegt að lifa í dag þegai
allir eru svona góðir við þá sem eru'
veikir? Ég hef samt tekið eftir því að
það er einn hópur sjúklinga sem
verður útundan í öllu konfekt- og
blómaflóðinu og þó ekki sé beinlínis
hægt að segja að almenningur grýti
hóp þennan í hel þá hefur hann
sannarlega margan manninn úr
þessum hóp pínt til dauða á sízt
sársaukaminni og mun langdregnari
hátt.
Vinir hverfa
Þegar fólk verður þeim sjúkdómi
að bráð sem í daglegu tali kallast
geðveiki hverfa í flestum tilfellum
vinir og kunningjar sjúklingsins.
Ótrúlega oft má segja það sama um
systkini, foreldra, maka og þá börn.
Margir nánir aðstandendur geðsjúkl-
inga í dag nenna ekki að lyfta litla
fingri til hjálpar eigin afkvæmi
maka, systur eða bróður. Hvað þá
þeir sem ekki eru aðstandendur.
Rétt mátulegt
Þetta stafar af því að oft telur þetta
fólk, og raunar allur almenningur, að
geð eikin sé sjúklingnum sjálfum að
ken.ia og þessi slæma líðan sem
henr.i fylgir sé rétt mátuleg á hann.
Þeir sem svona eru þenkjandi viður-
kenna það ekki berum orðum en allt
þeirra framferði og orðbragð sannar
það. Eða hvers vegna er annars verið
að bölva sjúklingnum, kalla hann
letingja og fleiri ónefnum. Hver
bölvar krabbameinssjúklingi fyrir
sjúkdóm sinn? Hver segir um eigin-
konu krabbameinssjúklings: Hún
verður bara aðskilja við manninn,
hann er greinilega kominn með
krabba, þetta er bara roluskapur að
vera að dröslast með mann sem er
greinilega orðinn fárveikur. Af
hverju hendir hún honum ekki út,
helvítis manninum? Hver segir:
Bölvað vesen á henni Gunnu alla tíð,
hún er hreinlega að drepast úr þessu
krabbameini stelpubjálfinn,
aumingja foreldrar hennar að þurfa
að standa undir dillunum í henni alla
tíð.
Sjúklingnum
að kenna
Ég veit ekki um neinn sem segir
slíkt þegar krabbameinssjúklingur á í
hlut, en fjöldamarga sem nota slíkt
og enn verra orðbragð ef um er að
ræða geðsjúkling nema í staðinn fyrir
orðið krabbamein nota þeir orð eins
og kUkkun, geggjun, brjálæði o.fl.
Þetta sannar að mínu mati að fólk
álítur að geðsjúkdómurinn sé
sjúklingnum sjálfum að kenna.
Sannarlega er þó geðveiki ekki
fremur geðsjúklingum að kenna en
krabbamein krabbameinssjúkling-
um.
Þeir fáu sem reyna að hjálpa eiga
ekki hægt um vik. Þekking lækna og
annars starfsfólks á sjúkrahúsum
nýtist ekki til fulls sökum ófull-
nægjandi aðstæðna innan sjúkrahúss
sem utan og þekkingarskortur kemur
oft í veg fyrir að þeir aðstendur sem
reyna að hjálpa geti veitt nógu góða
aðstoð í erfiðleikum sjúkUngsins.
Málefni
geðveikra
Málefni geðveikra eru sem sagt i
algjörum ólestri en þar getur þú gert
mikið til bóta. Þú getur reynt að
hreinsa hug þinn og annarra af for-
dómum í þeirra garð. Þú getur hætt
að líta á þá sem vonlausa aumingja,
fúlmenni eða trúða. Þú átt að bera
sömu virðingu fyrir þeim og öðru
fólki, því þeir eru hvorki meiri né
minni en aðrir, þó þeir eigi við
erfiðan sjúkdóm að stríða. Ef þú hins
vegar heldur áfram að hreyta í þá
fúkyrðum og sýna þeim hrottaskap
eða niðurlægjandi virðingarlausa
vorkunnsemi, lokar áfram á bá
SKARTGRIPIR
Fermingargjöfín í ár
SIGMAR 6. MARÍUSSON
Hverfisgötu 16A — Sími 21355.
t geðdeild Landspitalans.
DB-mynd Sv. Þorm.
dyrum heimilis þíns og fyrirtækis,
heldur áfram að slúðra um þá, og
heldur áfram að hneykslast eða hlæja
að þeim, gerðum þeirra eða orðum
sem sjúkdómur þeirra hefur stjórnað
frekar en þeir sjálfir, er sekt þín
sannarlega ekki minni en þeirra sem
grýttu þá holdsveiku og sannarlega
ertu ekki betri manneskja en þeir. í
von um að við getum lagt niður þann
ósið að auka á kvalir sjúklinga og
auka þar með sjúkdóm þeirra læt ég
bréfi þessu lokið.
Raddir
lesenda
Á Alli ríki
pleysið
, ,Alli ríki — það er hann, sem á
pleysið,” stóð í Morgunblaðinu.
Ég tel ekki víst að Alli hefði fengið
sína nafnbót hefði hann ekki verið
svo heppinn að eiga bróður sér við
hlið, sem er aðaleigandi á móti Alla,
þótt hans sé að engu getið í viðtali
Morgunblaðsins við þennan fram-
einn?
kvæmdamann. Einnig hefur mikið
mætt á skrifstofustjóranum, því að
Aðalsteinn hefur ekki alltaf verið við
til að reka þetta einsamall. Kristinn
bróðir hans og Magnús skrifstofu-
stjóri eiga mikinn heiður af
rekstrinum.
Jóhann Þórólfsson.
PÁSKASTEMMINGIN FYLGIR
PÁSKALILJUNUM
Lítið við í noestu blómaverslun
og sannfœrist