Dagblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 4
SAFNARAR rf Stjórnir Félags frímerkjasafnara og Myntsafnarafélags íslands munu gangast fyrir skipti- og sölumarkaði í Gyllta saln- um að Hótel Borg laugardaginn 14. apríl kl. 2—6 e.h. Gengið verður inn um aðaldyr. Vonast er til að meðal efnis verði: Frímerki, mynt, seðlar, póstkort, gömul umslög, hlutabréf, vindlamerki, skömmtunarseðlar, vöruávísanir, jóla- merki, prjónmerki og margt annað, sem menn kynnu að vilja skipta, kaupa eða selja. Við vekjum athygli á, að þarna gefst kjörið tækifæri til hagkvæmra skipta eða ódýrra kaupa. Stjórnarmenn frá báðum félögum munu verða við- staddir til aðstoðar og ráðgjafar. Nánari upplýsingar veita Anton Holt sími 23603 og Björgúlfur Lúðvíksson sími 35273. pFYRIR PÁSKANA snittur og brauðtertur. Pantanir í síma 16740. Brauðbankinn Laufásvegi 12 — Sfmi 16740. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979. DB á ne ytendamarkaði LIFRARPOTTUR SOOglifur hveiti, salt og pipar 100 g smjörlíki 250 g sveppir 2 laukar 1 tsk. paprika 1/2 tsk. rosmarín 1/2 tsk. sellerísalt 3 dl sjóðandi vatn 2 dl tómatkraftur (puré) 4 bollar soðin hrísgrjón Uppskrift dagsins Saxið laukinn og sneiðið sveppina, það sett í pott með 2 msk. af smjöri, látið krauma í 15 mínútur. Kryddinu blandað saman við. Lifrin er skorin í ræmur, velt upp úr hveiti með salti og pipar, brúnuð i smjörlíkinu og sett í pottinn. Vatni og tómatkrafti hellt á pönnuna og soðinu hellt yfir, látið krauma í 15 mín. Borið fram með hrísgrjónum. Verð: 850 kr. Meðferð og ending páskablómanna: Óli Valur Hansson gef ur nokkur góð ráð Þótt páskaliljur séu aðeins litið út- sprungnar, opna þær sig furðu fljótt eftir að þær hafa verið settar í vatn og fluttar inn í stofuhita, en einmitt eitt af því ánægjulega við blóm er að sjá þau springa út og breiða úr sér. Á flestum heimilum mun það orðin hefð fyrir páska að verja smávegis fjármunum til kaupa á afskornum blómum. Blóm Iífga ætíð upp á hátíðlegri stund og veita mörgum hrifningu og gleði, sem erfitt er að tjá með orðum. Ýmis afskorin blóm eru nú fáanleg í blómaverzlunum, en í sambandi við páskahátíðina hefur það löngum verið siður að nota páskaliljur öðrum blómum fremur. Mörgum finnst að þær heyri frekar páskunum til en önnur. Ending afskorinna blóma er vissulega mikið háð því, hvaða með- ferð þau hljóta eftir að þau eru kom- in inn á heimilið. Gildir þetta ekkert síður um páskaliljur en önnur blóm. Þeir sem eignast blóm gera sér vissu-: lega ætíð vonir um, að þau lifi sem lengst, en til þess að svo megi verða þarf að sýna þeim nokkra umhyggju, eins og öllu öðru sem er lifandi. Varðandi endingu (lífslengd) ræður og ætíð miklu á hvaða þroska- stigi blómið er þegar það er fengið. Um páskaliljur gildir t .d. að örugg- astar eru þær með að standa lengst séu þær aðeins nýútsprungnar. Nokkuð auðvelt er að átta sig á þessu þroskastigi. Eru þá blómblöðin rétt byrjuð að opnast, þannig að vel sést inn í blómtrektina, og jafnframt er blómið tekið að halla sér út frá blóm- stilknum. Munar jafnan nokkrum dögum hvað páskaliljublóm á um- ræddu stigi á fyrir sér lengri lífdaga en fullútsprungið blóm. Strax og páskaliljur hafa verið fengnar þarf að koma þeim fyrir í vatni. Séu þær ekki fluttar strax inn í stofu er best að geyma þær á köld- um stað við 2—50 hita. Veljið hentugan blómavasa og gætið þess að skola hann vandlega úr sápuvatni áður en blómunum er komið fyrir. Setjið síðan dálítið áf ylvolgu vatni í vasann og látið jafnvel ögn af plöntufæðu í vatnið. Skerið því næst dálítið af neðsta hluta stöngulsins á hverju blómi og skerið jafnvel smá- vegis upp í stöngulinn, en það auð- veldar mjög vatnsupptöku. Hag- Þessi unga stúlka heldur hér á fallegum páskaliljum, en margs er að gæta i með- ferð þeirra, DB-mynd Hörður. ræðið að lokum blómunum þokka- lega og gætið þess að þau standi ekki ímjög miklu vatni. Veljið blómunum góðan stað í stofu, en þó ekki mjög nálægt ofni né heldur þar sem dragsúgs gætir, og. geymið þau helst á svölum stað að nóttu til. Fylgist vel með vatninu í vasanum og bætið í eftir þörfum. Sé blóma- fæða ekki notuð er best að endurnýja alveg vatnið annan hvern dag. Svejhherbergishúsgögn — Mesta úrvalið INGVAR 06 GYLFI GRENSÁSVEGI3108 REYKJAVlK, SiMI; «1144 OG 33630. Sérverzlun með rúm

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.