Dagblaðið - 11.04.1979, Page 5
DAGBLAÐIÐ. MIDVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979.
( Flugleiðaforstjórarnir éttast að sundrungin ríði félaginu að fullu: )
„GANGA UM OG RÆGJA
YFIRMENN SÍNA”
— sagði Örn Ó. Johnsen á aðalfundi Flugleiða í gær. Telur stjórnarfyrirkomulagið úr sér gengið og býðst til að segja af sér
„Mikill meirihluti (starfsfólks)
vinnur störf sín í hljóði, af sam-
vizkusemi og hlutleysi, og blandar sér
ekki í deilur þeirra hópa, sem ganga
um rægjandi yfirmenn sína, stjórnar-
menn, forstjóra og framkvæmda-
stjóra, og skipa jafnvel starfsfélögum
sínum í flokka, ýmist sem óalandi og
óferjandi eða sem goð á stalli,” sagði
örn Ó. Johnson, aðalforstjóri Flug-
leiða, í ræðu sinni á aðalfundi félagsins
ígær.
ítrekaði Öm þau orð sín frá
aðalfundi fyrra árs, að mesta vanda-
mál Flugleiða hf. væri sú sundrung,
sem ríkti innan félagsins. Hann sagði
vera viðsfjarri að það vandamál væri
úr sögunni. „Sundrung og flokka-
drættir innan félagsins og einstakra
starfshópa hafa ágerzt til muna og
ekkert bendir til batnandi ástands,”
sagði forstjórinn.
Hann sagði að vægast sagt væri vafa-
samt, að Flugleiðir geti i framtíðinni_
gegnt ,,hinu þýðingarmikla hlutverki
sínu og skyldum sínum við
þjóðfélagið.” Lagði hann til, að ríkis-
sjóður eignaðist stærri hlut í félaginu
en þau 6%, sem hann ætti nú. Enn
væru óseld önnur 6% hlutabréfa og
taldi hann að nú ætti að bjóða ríkis-
sjóði þau til kaups. Ríkissjóði „væri
einnig í lófa lagið að festa frekari kaup
á hlutabréfum félagsins, hjá ýmsum
aðilum, sem nú vilja selja sína hluti,”
sagði Örn Ó. Johnson.
„Ég er andvígur ríkisrekstri sem
slíkum,” sagði hann, ,,en ég tel
fullkomlega eðlilegt, sérstaklega úr því
sem komið er, að ríkissjóður eignist
t.d. 20—25% í félaginu og gæti hann
þá skipað það jafnvægisafi innan
félagsins og þá festu, scm það þai I'nú a
að halda frekar en flestu öðru.”
Hann sagði síðan: ,,Ég tel að sú;
skipan mála, sem við búum við í dag,
við stjórnun félagsins, þ.e.a.s.
svokölluð stjórnarnefnd, skipuð þrem-
ur forstjórum, sé ekki heppileg eins og
nú er komið og sé gengin sér til húðar.
Hér þarf það til að koma, að fyrir-
tækinu sé stjórnað af einum forstjóra,
svo sem almennt tíðkast. Slíkur maður
þarf að hafa til að bera þekkingu, festu
og hæfileika til stjómunar. Verði þessi
■stefna upp tekin er það i verkahring
stjórnar félagsins að finna slikan mann
og eigi síðar en þegar hann er fundinn
mun ég segja upp starfi mínu sem aðal-
forstjóri, með eðlilegum uppsagnar-
fresti.”
Sigurður Helgason forstjóri ræddi
einnig um deilurnar i félaginu og
sundrungina í sinni ræðu. Hann
ítrekaði óskir sínar um sameiningu og
góðan anda frá aðalfundinum í fyrra
og kvaðst telja, að síður en svo hefði
dregið saman með mrtnnum. „Þvcrl á
móti tcl ég að crjurnar.sundrunginog
óeiningin liali mkiztstói' gaogerþað
allt til hins verra. Ég tel sérstaklega, að
á þessum tímamótum sé ekkert
nauðsynlegra, en að starfsmenn allir
geri sér grein fyrir því, að sameiningin
er endanleg. Þau öfl, sem eru að verki
og stuðla að áframhaldandi sundrung
og óeiningu, eru að vinna félaginu
mikinn skaða og gera þá sjálfum sér
um leið hinn versta grikk.
Það fer heldur ekki framhjá neinum
manni, sem fylgist með, að þessi
óeining og sundrung innan félagsins
smitar út frá sér. Rógurinn um félagið
Flugleiðafundurinn:
„Engin lausn að fara bónarveg til
kommúnista í ríkisstjórn”
— segir Jón Sólnes, alþingismaður
hefur aukizt mikið út á við, bæði í fjöl-
miðlum og jafnvel í sölum alþingis. Tel
ég það til hinna verstu verka, að þeir
sem standa að óeiningunni og
sundrunginni skuli verða lil þess að
sverta álit félagsins út á við sem raun
ber vitni.”
-ÓV.
Sigurður Helgason, forstjöri hugsar sitt ráð á aðalfundinum enda fataðist honum
hvergi þegar i pontuna var komið.
,,Það kann ekki góðri lukku að
stýra þetta ósamlyndi i stjórn
félagsins. Það fæst engin lausn á
vandamálunum með því að fara bónar-
veg til kommúnista í ríkisstjórn
íslands,” sagði Jón Sólnes i umræðum,
sem urðu á aðalfundi Flugleiða að lok-
inni skýrslu stjórnarformanns, Arnar
Ó. Johnson. Hann bætti við: „Þeir
menn, sem hér sitja nú í stjórnar-
stólunum eiga að segja af sér störfum.
Það hljóta að vera til aðrir menn til
þessara starfa,” sagði Jón Sólties al-
þingismaður.
„Þeir stjórnendur, sem ekki ráða
við sitt starfsfólk, eiga að segja af sér.
Þeir valda ekki verkefni sínu,” sagði
Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri á
Seltjarnarnesi.
Óttarr Möller sagði, að menn ættu
ekki að standa upp með jafnfráleitar á-
sakanir og fram hefðu komið á stjórn
Flugleiða i máli síðustu ræðumanna.
„Ég sé ekkert athugavert við, að ríkið
ætti stærri hlut i Flugleiðum. Við erum
háðir ríkisvaldinu. Þangað þurfum við
að sækja um alla skapaða hluti, hvort
sem þeir varða leyfi, verðlag eða bók-
staflega hvað sem er,” sagði Óttarr.
Hann kvað stjórn félagsins hafa gert
það, sem hún gat bezt eftir ástæðum,
og ekki mætti kenna henni um erfiða
afkomu félagsins. Hún ætti allt aðrar
rætur en óheilindi stjórnarmanna eða
ódugnað.
Fleiri tóku ekki til máls um skýrslu
formanns.
-BS.
Stjórn Flugleiða endurkjörin —
þrír gáf u ekki kost á sér af tur
Eftir að atkvæði höfðu verið talin í
kosningu aðalstjórnar Flugleiða hf.,
þakkaði Örn Ó. Johnson þeim þrem
mönnum, sem gengu úr stjórn og vara-
stjórn og ekki höfðu gefið kost á sér við
kjör, fyrir mikil og giftudrjúg störf í
þágu flugfélaganna og Flugleiða frá
stofnun þess félags.
Þessir menn voru Kristján
Guðlaugsson, formaður, Svanbjörn
Frímannsson ogThor R. Thors.
Fundarsókn á aðalfundinum, var,
mælt i hundraðshlutum atkvæða,
92.84%. Þessir menn hlutu kosningu í
aðalstjórn með atkvæðamagni innan
sviga: Sigurgeir Jónsson (19.820.593),
Alfreð Elíason (19.200.256), E.
Kristinn Olsen (18.069.071), Örn Ó.
Johnson (17.889.150), Grétar Br.
Kristjánsson (17.858.508), Halldór
Jónsson (17.585.324), Óttarr Möller
(17.553.461), Bergur G. Gíslason
(17.529.859), Sigurður Helgason
(17.493.906). Þess má geta, að þessir
menn voru 'allir kosnir að tillögu
stjórnar Flugleiða. Upp á fleirum var
stungið. Næstur áðurgreindum
stjórnarmönnum að atkvæðum var
Árni Jónsson (6.039.778) og aðrir með
færri atkvæði.
í varastjórn voru kosnir: Dagfinnur
Stefánsson, Einar Árnason, sem ekki
gaf kost á sér í aðalstjórn, og Ólafur Ó.
Johnsoo. Endurskoðendur voru endur-
kjörnir: Björn Hallgrímsson og Þor-
leifur Guðmundsson, og til vara:
Stefán J. Björnsson og Valtýr
Hákonarson.
-BS.
Flugleiðafundurinn:
Tillöguf lutningur og
X | |M#|o kI aIc — óheilbrigt að hafa tvö fslenzk
UnUdHUIV flugfélögsemkepptuinnanlands
Allmargar tillögur lágu fyrir
fundinum og voru bornar fram og
ræddar. Tillaga nr. 1 um fríför hlut-
hafa var felld, tillaga nr. 2 að efnt
verði til samkeppni um gerð nýs
merkis fyrir félagið var einnig felld.
Sömuleiðis tillaga um að leitað verði
eftir nýju heiti félagsins á enskri
tungu. Tillaga um að félögin verði
aðskilin og hvert félag stundi áfram
flugrekstur á sama hátt og áður var
einnig felld. Samþykktar voru
tillögur um 2.95% arðgreiðslur til
hluthafa. Ejnnig tillaga um stjórnar-
laun og laun endurskoðenda. Þeir
Svanbjörn Frímannsson og Kristján
Guðlaugsson tóku báðir til máls og
þökkuðu góð orð. Kristján
Guðlaugsson sem um 30 ára skeið
hefur starfaö að flugmálum flutti i
lokin ávarp þar sem hann þakkaði
samstarfsmönnum sinum fyrr og nú
gott samstarf og ánægjulega
samvinnu. Hann sagði að óheilbrigt
og óeðlilegt væri að hafa tvö íslenzk
flugfélög sem kepptu hér innanlands.
Hann hefði unnið að sameiningu
félaganna og talið það heillavænleg-
ast til þess að íslenzkt flug stæðist.
Hann hvatti að lokum Flugleiðafólk,
hvar svo í flokki sem það stæði, til
sameiginlegra átaka, til þess að
styrkja félagið og að berjast gegn
andróðri innanfélags og utan.
-BS.
Séð yfir fundarsalinn.
DB-mynd Hörður.
örn Ó. Johnson, formaður og forstjóri.