Dagblaðið - 11.04.1979, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979.
Ýta og hanga á kassa-
bflum frá Hveragerði
til Kópavogs
— Skátar á Stór-Reykja-
víkursvæðínu með nýstárlega
f jársöfnun fyrir Kópavogshæli
Það verður áreiðanlega mörgum
forvitnilegt að sjá skáta á Stór-Reykja-
víkursvæöinu ýta og hanga utan á
fjórtán kassabilum frá Hveragerði til
Kópavogshælis. Þetta ætla skátarnir
að gera um helgina 26.-27. maí nk. og
afla með þessu framtaki sínu fjár til
vistmanna Kópavogshælis. Verður það
fé, sem skátarnir safna með áheitum
fólks og tengd verða ekinni vegalengd
kassabílanna svo og með auglýsingum
á kassabílunum, látið renna í bílasjóð
hælisins og er það von skátanna að
vistmenn eignist eigin bíl til sameigin-
legra afnota.
Það eru dróttskátasveitir i Reykja-
vik. Garðabæ, Hafnarnrði, Kópavogi,
Mosfcllssveit og Seltjarnarnesi sem að
kassabílaakstrinum standa. Hver sveit
kemur með einn bíl til keppninnar.
Vegalengdinni, sem er um 50 km er
skipt í 6—10 einingar eða kafla. Á
hverjum kafla verða þrír hinir sömu að
ýta og aka bílnum og sami maður að
sitja við stýrið milli stöðva. Á stöðvun-
um má hins vegar skipta um áhafnir á
kassabílunum.
Skátasveitunum er í sjálfsvald sett
hvernig bílarnir verða, en uppfylla
verður skilyrði um 2ja fermetra
auglýsingapláss á hverjum bíl. Á
honum verða og að vera ljós og hemlar
og pallur sem mennirnir þrír er ýta
hverju sinni geta stokkið upp á er
bíllinn rennur niður í móti.
Skátarnir munu safna áheitum
meöal almennings varðandi aksturinn.
Greiða þeir sem vilja vera með 5 kr.
fyrir hvern ekinn kílómetra. Ef allir
bílarnir 14 komast á leiðarenda verða
eknir 700 km og hámark áheitis því
3500 krónur. Heita skátarnir á
stuðning alls góðs fólks til hjálpar við
aðstoð við vistfólk Kópavogshælis, en í
bílamálum hælisins kreppir skórinn
verulega að, og litlar vonir um úrbætur
nema með almennu átaki. -ASt.
Smíði kassabíls dróttskátasveit-
arinnar i Mosfellssvcit var ekki langt
komin — og þó. Grind bílsins var
komin saman, með afmörkuðu ekils-
rými og palli aftast fyrir þá þrjá sem
ýta hverju sinni. Á grindina vantar nú
lítið annað en spjöldin fyrir
auglýsingarnar. En svo er það hjólaút-
búnaðurinn. Hann fengum við ekki
að sjá þar sem billinn var i smiðju í
Víðinesi. Hjólaútbúnaðurinn sem allt
veltur á, er enn sem komið er,
hernaðarleyndarmál bílasmiðanna
þriggja, þeirra Indriða Jónssonar, sem
situr við Stýrið, Stefáns Jónssonar, sem
er á paliinum og Hermanns Sigursteins-
sonar, sem vantar á myndina. Indriði
er reyndur kassabilasmiður.
DB-mynd Bjarnleifur.
Morðmálið á
Hverfisgötu:
Yfirheyrslum
yfir sambýlis-
konunni lokið
„Það breytir ekki miklu, þó
Hæstiréttur hafi stytt varðhaldsúrskurð
yfir sambýliskonu Svavars Sigurðssonar
um tvær vikur,” sagði Þórir Oddsson
vararannsóknarlögreglustjóri. „Sam-
býiiskonan var í langri yfirheyrslu í
fyrradag og ég tel að yfirheyrslum yfir
henni sé að mestu lokið.”
Ekki vildi Þórir segja neitt um
ástæðu fyrir 5 klukkustunda bið frá
verknaðinum, sem unnin var, þar til lög-
reglu var gert viðvart, en kvað þá
skýringu fengna.
Er verknaðurinn var framinn var
önnur kona í íbúð hins myrta auk sam-
býliskonu hans og banamanns. Sú kona
gaf ýtarlega skýrslu nóttina eftir at-
burðina, að sögn Þóris, og hefur ekki
þótt ástæða til að yfirheyra hana frekar.
_______________________-ASt.
Ónýta olíumölin
ekkikeyptaf
Olíumöl hf.
I frctt í DB i gær om ónýta olíumöl á
isafirði slæddist inn sá vondi mis-
skilningur, aö oliumölin hafi veriö keypt
af Olíumöl hf. Hið rétta er, að ónýta
olíumölin var blönduð og unnin heima á
ísafirði, en fram að þeim tima hafðii
verið keypt af Olíumöl hf. Sú'möl
reyndist prýðileg og ekkert yfir hennf
kvartað. DB biðst afsökunar á þessum
misskilningi -ÓV.
Á sýningunni verða allir kraftmestu kvartmflubflar landsins.
Kvartmfluklúbbur-
inn með bflasýn-
ingu um páskana
Um páskana gengst Kvartmílu-
klúbburinn fyrir mikilli bílasýningu í
Sýningahöllinni við Bíldshöfða. Á
sýningunni verða allir fallegustu og
kraftmestu kvartmilubílar landsins.
Einnig verða á sýningunni sérsmíðaður
keppnisbill frá Svíþjóð. Þá verða á
sýningunni allir helztu torfærujeppar
landsins, virðulegir gamlir bílar og
rallíbílar. Tízkusýningar verða fyrir
alla fjölskylduna, grínistarnir lands-
frægu Halli og Laddi koma á
sýninguna. Verða þeir með sérsamda
kvartmíludagskrá sem verður frumflutt
á sýningunni. Komið verður upp
hringlaga akstursbraut þar sem yngri
sýningargestirnir geta reynt aksturs-
hæfileika sína I rafmagnsbilum og fyrir
þá alyngstu verður barnagæzla.
Sýningin verður opnuð annað kvöld kl.
19.00.
GAJ/DB-mynd RagnarTh.
Skeiðamenn vilja leggja út ífyrstu
hitaveitu í dreifbýli
— Telja nýuppfundin plaströr og hátt olíuverð gefa fyrirtækinu góðan byr
„Það er mikill áhugi meðal fólks
hér í Skeiðahreppi að kannaðir verði
möguleikar á að leggja hitaveitu til
þeirra bæja, sem ekki hafa hitaveitu
þegar,” sagði Jón Eiríksson, oddviti
Skeiðahrepps í samtali við DB.
„Forsendur slíkrar könnunar eru
aðallega þrjár. Hækkað olíuverð, ný
hitaþolin plaströr frá Reykjalundi sem
gjörbreyta viðhorfi til hitaveitna, þar
sem rörin þola allt að 80° hita og siðast
en ekki sizt þéttbýli sveitarinnar.”
Jón kvað jarðhitabelti með heitum
laugum með 60—70° heitu vatni liggja í
beinni línu gegnum Skeiðahrepp. 1950
var borað við skólahúsið í Brautarholti
og íéngust þar 5 sekúndulítrar af 73°
he; u vatni. Dugði það fyrir skólann,
s iaug og þrjú íbúðarhús sem þar
e uogerþarennónýtt vatn.
Síðar var borað við Ósabakka og
fékkst þar hálfur annar sekúndulítri af
58° heitu vatni. Dugði það fyrir bæina
þrjásem þareru.
Samkvæmt mælingum Orku-
stofnunar, var talið að vatns væri
von við Ólafsvallabæina, sem eru sex í
þyrpingu. Var þar borað fyrir tveimur
árum, en árangurvarðenginn þó farið
væri niður á 1000 metra dýpi.
Mælingar Orkustofnunar sýndu
hitaskil í jörðu, að sögn Jóns oddvita,
en er búið var að bora kom í ljós
að þarna var saltlögur, sem gefur
sömu virkni á mæla og hitaskil gera.
Urðu þetta Skeiðahreppsbúum mikil
vonbrigði því Orkustofnun var búin
að reikna með að þarna væri heitt
vatn, sem myndi nægja vesturhluta
sveitarinnar og upphluta Hraungerðis-
hrepps að auki.
Loks var gerð tilraun til borunar á
Blesastöðum fyrir alllöngu. Þar varð
aldrei komizt niður fyrir 200 metra því
fóðring mistókst og borun var hætt.
Jón oddviti sagði að hann væri
búinn að kynna vilja hreppsbúa
iðnaðarráðherra og embættismönnum
iðnaðarráðuneytis. Vilja hreppsmenn
eindregið að athugun fari fram á
frekari jarðborunum og hagkvæmnis-
útreikningar fari fram á jarðhitanýt-
ingu og húsahitun meörafmagni.
Jón kvað það trú margra að
jarðhitasvæðið í Skeiðahreppi væri
framhald jarðhitasvæðis í Biskups-
tungum, en það er rakið til Langjökuls.
í Skeiðahreppi er iarðhiti á Reykjum,
Brautarholti.Húsatóftum og Hlemmi-
skeiði. Þar væri þegar eitthvað af
ónýttu heitu vatni sem hugsanlegt væri
að nýta nú þegar en einnig virtust góðar
líkur til að fá mætti meira heitt vatn á
Húsatóftum með borun.
Skeiðamenn eru þekktir fyrir
sameiginleg átök til framfara í sveit
sinni. Hafa þeir m.a. lagt vatnsveitu til
allra bæja í hreppnum nema tveggja og
er það fatn fengið í Vörðufelli, sem er
stolt sveitarinnar.
-ASt.
Falsaðurlóns
Sigurðssonar
peningur kom-
inn í umf erð
— skiptimarkaður saf nara
Vart hefur orðið við falsaðan Jón
Sigurðsson gullpening í umferð. Þetta
er peningurinn, sem sleginn var 1961.
Gullpeningurinn ófalsaður er nú virtur
á 100 þúsund krónur hjá mynt- og
frímerkjasölum.
Eintak af hinum falsaða peningi
verður til sýnis á skiptimarkaði, sem
Myntsafnarafélag íslands og Félag
islenzkra frímerkjasafnara efna til
næstkomandi laugardag.
Gefst almenningi kostur á að fá mat
sérfræðinga , lagt mat á ýmsa
söfnunarmuni, auk myntar og
frímerkja. Þarna verður hægt að sjá
póstkort, hlutabréf, vöruávísanir,
skömmtunarseðla, prjónmerki og ýmsa
fleiri söfnunarmuni. Þá verður
svonefnd „Jónsbók” til sýnis.
Þess má geta, að þarna verður
einnig hægt að sjá nýju íslenzku
Evrópufrímerkin, sem gefin verða út
hinn 30. apríl næstkomandi.
Fyrsti skiptimarkaðurinn verður
haldinn á Hótel Borg næstkomandi
laugardag, sem fyrr segir. -BS.
m ■ »
Myndir af hinum falsaða Jóns
Sigurðssonar gullpeningi. örvarnar sýna
þá staði á peningnum, sem unnt er að sjá
gallana i hinum falsaða peningi.
Kynningarbæklingur Junior Chamber:
Tröllasögur um
drykkjuskap
Út er kominn kynningarbæklingur
um áfengisvandamáliö. Það er Junior
Chamber, Reykjavík, sem gefur
bæklinginn út. Tilgangurinn með út-
gáfunni er að: 1. Vekja almenning til
umhugsunar og umræðu um þær
válegu afleiðingar sem misnotkun á-
fengis hefur í för með sér. 2. Benda
áfengissjúklingum og aðstendendum
þeirra á þá möguleika sem fyrir hendi
eru til að fá aðstoð. 3. Upplýsa um þá
möguleika sem áfengissjúklingar hafa
til þess að ná afturbata.
Hilmar Helgason, formaður S.Á.Á,
fagnar útkomu bæklingsins í inngangs-
orðum. Hann segir meðal annars að
hann sé „sverð gegn vankunnáttu og
fordómum, auk þess sem hann
upplýsir helztu einkenni sjúkdómsins
alkóhólisma.” Hann segir það
staðreynd, að sjúkdómurinn berji að
dyrum hverrar einustu fjölskyldu í
landinu. ,,Og þegar kallið kemur, getur
hann vissulega hjálpað þér til að hjálpa
öðrum,” segir Hilmar að lokum.
-GAJ-