Dagblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979
Sölumaður á
bílasölu óskast
Óskum eftir að ráða röskan og góðan sölu-
mann á bílasölu okkar.
Tilboð sendist auglýsingadeild Dagblaðsins
merkt „Bílasala 79”, er greini aldur, og upp-
lýsihgar um fyrri störf.
Bílasalan Skeifan,
Skeifunni 11.
Félag starfsfólks í
veitingahúsum
Sumarhús félagsins að Svignaskarði er hér
með auglýst til afnota fyrir félagsmenn
sumarið 1979. Umsóknir þurfa að berast sem
fyrst. Upplýsingar á Skrifstofu FSV Óðinsgötu
7, sími 19565.
Stjómin
Framhaldsaðalfundur
BSF Byggung Kópavogi verður haldinn
laugardaginn 19. maí kl. 14.00.
Nánar auglýst síðar.
Stjómin
NÝR ÚNOTAÐUR NÝR
E/ectroIux ísskápur —
E/ectrolux frystiskápur
Litur: Gulbrúnn
H. 175, B. 59,5. D 59,5. 335 lítrar. Kælir
200 ltr. Frystir 155 ltr. Hagstætt verð:
450.000-
Nýr kostar 513.000.-
Upplýsingar í síma 41551 eftir kl. 18.00.
1954 AA 1979
25 ára afmælisfundur
AA-samtakanna á íslandi
í tilefni 25 ára afmælis AA-samtakanna á ís-
landi efna þau til opins fundar í Háskólabíói
að kvöldi föstudagsins langa, kl. 20.30.
Dagskrá:
Dr. Milton A. Maxwell, stjórnarformaður General
Service Board of Alcoholics Anonymous — Þjónustu-
stofnunar AA-samtakanna í Bandaríkjunum og Kanada
— flytur kveðjur alþjóðasamtakanna og ræðir AA-hug-
sjónina.
Kór Söngskólans i Reykjavík syngur.
AA-félagar flytja ávörp.
Fundurinn er öllum opinn og vænta AA-
félagar sem flestra vestur í Háskólabíó þetta
kvöld.
Afmælisnefnd.
AMIN ER
FLlllNN FRá
I LU11^1 mw lllll
KAMPALA
:
-
iiiililipil
.
,
Hermenn frá Tansaníu og útlag-
ar frá Uganda héldu inn í úthverfi
Kampala í nótt og sækja nú til
miðborgarinnar. Borgin er talin
nánast mannlaus.
Óstaðfestar fréttir hermdu i
gær, að Amin forseti hefði flúið
borgina í bílalest glæsibifreiða og
haldið til borgarinnar Jinja, þar
sem fjölmargar sveitir hermanna
hans halda til.
Sagt var að sonur hans, Taban,
væri meðal særðra hermanna á her-
spítala þar i borginni.
Árásin á Kampala hófst í gær
með öflugri eldflauga- og stór-
skotaliðárás. Eldsneyti og rafmagn
er af skornum skammti í Kampala
og búizt var við að borgin félli
innan skamms.
Símar heyrðust hringja i tómum
húsum eða höfðu verið teknir af.
Embættismenn, sem enn eru í
borginni hafa ekki sinnt neinum
störfum, heldur reyna þeir að leita
sér skjóls, hver sem betur getur.
Enginn svaraði í símaþjónustu lög-
reglunnar sem annars er opin allan
sólarhringinn og í stað hreystilegra
frétta af gangi mála á víg-
stöðvunum hefur útvarpið í
Kampala aðeins útvarpað léttri
tónlist. „Þvi miður getum við ekki
útvarpað fréttum,” sagði þulur þar
í morgun.
Erlendur sendimaður sagði í
viðtali við fréttamenn Reuters:
„Það virðist augljóst, að Kampala
er að falla. Hvað Amin gerir þá er
hins vegar öllum hulin ráðgáta.”
Innrásarliðið kom tii borg-
arinnar og hefur lokað fimm að-
flutningsleiðum til hennar frá austri
til norðausturs. íbúar í norður-
hluta borgarinnar sögðu frétta-
mönnum símleiðis, að þeir hefðu
rétt nýverið heilsað upp á liðs-
foringja úr her Tansaníumanna,
sem heföi verið vel fagnað af
íbúum.
Engar ákveðnar fréttir hafa
borizt af vömum hermanna Amins,
sem hann skildi eftir á hraðbraut-
inni til Entebbeflugvallar.
Fréttamaður Reutersfrétta-
stofunnar var fyrstur vestrænnar
blaðamanna til þess að koma til
Kampala og sagði hann í skeyti að
hermenn Tanzaníu hvíldu lúin bein
i forsetahöllinni innan um dýrgripi,
sem lægju eins og hráviði um allt.
Iran:
Ellefu skotnir um
miðnætti í nótt
Ellefu háttsettir embættismenn
frá stjórnartíð keisarans í íran voru
teknir af lífi rétt fyrir miðnætti í
nótt. Voru mennirnir leiddir fyrir
aftökusveit eftir leynileg réttarhöld
byltingardómstóls og skotnir.
Mennirnir ellefu, þar á meðal
stjómmálamenn, vom skotnir um
kl. ellefu í gærkvöldi, en réttarhöld
yfir þeim hófust síðdegis í gær.
Meðal þeirra sem teknir vom af
lífi voru tveir fyrrum yfirmenn
SAVAK, leyniþjónustu keisarans,
Pakravan hershöfðingi, sem einnig
var sendiherra í Frakklandi og
Pakistan, Moghadan hershöfðingi,
Riazi, fyrrum forseti neðri deildar
þingsins, og Khalatbari, fyrrum
utanríkisráðherra.
Alls hafa nú 90 manns verið
teknir af lífi í fran síðan bylting
Khomeinis var gerð í febrúar.
Helmingur aftakanna hefur farið
fram undanfarna viku, eftir að rétt-
arhöld yfir föngum hófust á ný.
Auk þeirra, sem áður voru
taldir, vom ejnnig teknir af lífi einn
lífvarðarforingi, fyrmm borgar-
stjóri Teheran, fyrrum land-
búnaðarráðherra, fyrrum forseti í-
þróttasambands landsins, tveir
fyrrum þingmenn og fyrrum forseti
herráðsins.