Dagblaðið - 11.04.1979, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979.
9
Erlendar
fréttir
REUTER
Heims-
fréttir
f stuttu
máli
Salisbury:
Ródesíski þjóðarflokkur Ians
Smith forsætisráðherra virðist munu
vinna öll þingsæti hvítra í þingkosn-
ingum, sem nú fara fram til þings
landsins en meirihluti þingmanna er
svartir menn. Eftir að kosningu lauk í
nótt fékk flokkur hans þrjú af
fjórum viðbótarþingsætum og talið
var að hann fengi það fjórða en taln-
ingu lýkur í dag.
Kaíró:
Búizt er við að Sadat, forseti
Egyptalands, muni tilkynna í dag, að
gengið verði til þjóðaratkvæðis um
friðarsáttmálann við Israelsmenn.
Sáttmálinn var samþykktur á þingi
landsins í nótt með 329 atkvæðum
gegn 13 eftir 25 stunda fund.
Washington:
Carter Bandaríkjaforseti hefur lagt
á það áherzlu í ræðu að finna verði
nýja orkugjafa og varaði hann olíu-
félögin við ströngum aðgerðum
stjórnvalda, ef þau notuðu ekki hluta
af ágóða sínum til þess að fjármagna
frekari leit að olíu og gasi.
Róm:
Tilkynnt hefur verið að efnt verði
til þingkosninga á Ítalíu dagana 3. og
4. júní nk. Ríkisstjórnin féll á van-
trauststillögu sem borin var fram 31.
marz sl. og Sandro Pertini, forseti
leysti þingið frá störfum eftir að til-
raunir til stjórnarmyndunar fóru út
um þúfur.
Washington:
Carter Bandaríkjaforseti sagði á
fundi með fréttamönnum í gær, að
enn væru nokkur atriði í væntanleg-
um afvopnunarsamningi við Sovét-
menn sem skoða þyrfti nánar, áður
en hægt væri að undirrita samning-
inn. Hann lagði þó áherzlu á, að
báðir aðilar nálguðust takmarkið.
Vínarborg:
Fréttir hafa borizt um mikinn elds-
voða í Búkarest i Rúmeníu. Kviknaði
í stóru vöruhúsi en tölum um látna
ber ékki saman. Að sögn stjómar-
valda létu þrír menn lífið en slökkvi-
liðsmenn segja að a.m.k. 40 manns
hafi farizt í eldinum. Eldur varð laus
í vöruhúsinu skömmu eftir að það
hafði verið opnað í gærdag.
Nicosia:
Spyros Kyprianou, forseti Kýpur,
og Rauf Denktash, leiðtogi Tyrkja á
eynni, munu eiga fund um deilumál
þjóðarbrotanna í næsta mánuði.
Fundur þessi er haldinn að tilhlut-
ann Kurt Waldheim, aðalritara Sam-
einuðu þjóðanna.
Lima:
Nítján blaðamenn í Perú létu af
hungurverkfalli, sem staðið hefur i
átta daga, eftir að herforingjastjóm
landsins lofaði, að útgáfa tíu dag-
blaða sem bönnuð hafði verið yrði
leyfðá ný.
Los Angeles:
Réttarhöldum í máli fyrrverandi
sambýliskonu leikarans Lee Marvin
gegn honum, þar sem hún krefst 1.75
milljón doilara bóta fyrir heitrof,
lýkur í dag eftir vitnaleiðslur sem
staðið hafa í rúman mánuð.
Spánn:
45 börn drukkna
—voru á heimleið úr skólaferðalagi
Björgunarsveitir vinna enn að
þvi að reyna að ná upp líkum 50
manna, þar á meðal 45 barna, sem
drukknuðu í gær, er fólksflutninga-
bifreið féll af brú í á, skammt frá
borginni Benavente á Spáni.
Bifreiðinerennáumátta metra
dýpi og unnu björgunarsveitir og
kafarar í nótt í skini leitarljósa við
að reyna að ná hinum látnu út úr
bifreiðinni. Níu börn og ungur
hermaður sem fékk far með bif-
reiðinni komust lífs af. Munu þau
hafa verið framarlega í bílnum og
hafa tekizt að synda út um brotna
glugga á honum, og var þeim
hjálpað af ungmennum úr ná-
grenninu, sem sáu bifreiðina falla. ,
Börnin og kennarar þeirra voru
á heimleið til þorpsins Vigo i
Galasíu eftir páskaferðalag til
Madrid og fleiri staða.
Að sögn sjónarvotta var bif-
reiðin á hægri ferð á brúnni þegar
ökumaður missti stjórn á henni.
Rakt hún utan í handriðið, rann
yfir til hinnar hliðar brúarinnar og
féll í ána.
Samgönguráðuneytið hefur þeg-
ar fyrirskipað rannsókn á slysinu,
sem er hið versta af nokkrum
slíkum á Spáni á undanförnum
árum.
Fyrir aðeins fjórum mánuðum
létu 30 börn lífið er skólabifreið var
ekið í veg fyrir járnbrautarlest,
skammt frá Salamanca.
Harmi slegnir foreldrar
barnanna komu til slysstaðarins
strax og fréttir af slysinu bárust. öll
börnin, á aldrinum 11 til 14 ára,
voru í sama barna- og unglinga-
skólanum í Vigo.
Hermaðurinn ungi sagði við
fréttamenn: „Ég gleymi aldrei
ópunum í börnunum, er bíllinn féll
í ána.” Hann sagði að hann gæti
ekki skilið, hvers vegna það hefði
gerzt. Búizt var við Sofíu Spánar-
drottningu til staðarins síðar í dag
til þess að tala við foreldra
barnanna og þá er komust lífs af.
Damour, Líbanon:
ísraelskar herþotur gerðu árás á
tvö sjávarþorp í nótt, trúlegast í
hefndarskyni fyrir sprengjutilræði á
markaðstorgi i Jerúsalem i gær. Hafa
samtök skæruliða Palestínuaraba lýst
sig ábyrga fyrir því. Segir í tilkynn-
ingu yfirvalda í Líbanon, að óttazt
sé, að fjöldi manns hafi látið lífið í
loftárásum þessum. Árásin á borgina
Damour var gerð rétt fyrir dögun og
þykja ísraelsmenn hafa höggvið
nærri höfuðborginni, Beirút, en
Damour er rétt sunnan við hana.
Talsmaður ísraelsstjórnar í Tel
Aviv sagði að árásinni hefði verið
beint að stöðvum Palestínuskæru-
liða.
PlflStlM llf
PLASTPOKAR
O 82655
Opal hjf. Skipholti 29.