Dagblaðið - 11.04.1979, Page 29
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979.
37
„Gula er ágætt gælunafn á þessa
plötu. Það er ekki nóg með að
umslag hennar sé gult, platan sjálf er
einnig þannig á litinn og sömuleiðis
plötumiðinn,” sagði Jakob Magnús-
son tónlistarmaður meðal annars er
hann kynnti nýja hljómplötu sina í
Hljóðrita á mánudaginn.
Jakob er kominn hingað til lands
gagngert til að kynna plötu sína sem
hann hljóðritaði vestan hafs. Platan,
sem ber nafnið Special Treatment,
kemur út hér á landi í lok þessa
mánaðar. í Bandaríkjunum verður
hún send á markaðinn í mailok og í
júní kemur hún út í öðrum Evrópu-
löndum eníslandi.
Eins og skýrt hefur verið frá í Dag-
blaðinu er Jakob Magnússon
samningsbundinn hjá jazzdeild stór-
fyrirtækisins Warner Brothers.
Við gerð plötunnar Special
Treatment naut hann aðstoðar fjölda
frægra tónlistarmanna. Sem dæmi
má nefna gítarleikara Doobie
Brothers Jeff „Skunk” Baxter,
Manolo Badrena ásláttarleikara
Weather Report og Richard Green
fiðluleikara úr hljómsveitinni
Seatrain. >á kemur við sögu á plöt-
unni saxófónleikarinn Ernie Watho,
sem hefur leikið með Frank Zappa,
Herbie Hancock, Lee Ritenour og
fleirum. Hann kemur einnig lítillega
við sögu á Greaseplötunni. — Einnig
leikur á plötunni tékkneski fiðlu-
leikarinn Michael Urbaniak. Það
þykir tíðindum sæta, því að hann
hefur ekki komið fram á plötum
annarra en sjálfs síns um fjögurra til
fimm ára skeið.
Þá má ekki gleyma þeim þremur
tónlistarmönnum sem eru í hljóm-
sveit Jakobs. Þeir eru Steven Ander-
son bassaleikari, David Logeman
trommuleikari og Carlos Rios, sem
spilar á gítar. Þessir menn fara með
Jakobi í hljómleikaferð um Banda-
ríkin. Hún hefst væntanlega í júní
næstkomandi. Að sögn Jakobs er
ekki endanlega ákveðið með hvaða
hljómsveitum þeir félagar eiga að
koma fram, en Yes og Stanley
Clarke Band koma til álita.
Á fundinum, sem Jakob Magnús-
son boðaði til í Hljóðrita, kvaðst
hann hafa verið fjóra mánuði við að
hljóðrita plötuna Special Treatment.
Upptökur fóru fram í hljóðverum i
Los Angeles og New York.
,,Ég hef ákveðið að taka næstu
plötuna mína ekki upp í Banda-
ríkjunum,” sagði Jakob. „Menn
vinna þar fullhægt fyrir minn smekk.
Þá er einnig mjög dýrt að fá tónlistar-
menn til liðs við sig og sömuleiðis á
maður í alls kyns útistöðum við
stéttarfélög og þess háttar.
Ég reikna með því að ég kjósi að
taka næstu plötu upp í Frakklandi,
Plata Jakobs Magnússonar Special Treatment er tilbúin
GULTER
i; H i
Fjöldi þekktra hljóðfæraleikara kemur fram á plötunni
JAKOB MAGNÚSSON — Næsta
plata, sem upptökur hefjast á á
hausti komanda, verður ekki hljóð-
rítuð vestanhafs heldur f einhverju
Evrópulandi.
/S
ÁSGEIR
TÓMASSON
STEINAR BERG — Fullur hugur er f CBS mönnum að koma fslenzkrí tónlist á ffamfærí á alþjóóamarkaói.
STEINARHF. FÁ BNKAUMBOD
HJÁ ÞREMUR RISAÚTGÁFUM
Samningurínn víð CBS ergagnkvæmur
Þýzkalandi eða einhvers staðat
annars staðar í Evrópu. Þá myndi ég
einnig nota Hljóðrita eitthvað. — Ég
stefni að því að byrja á þeirri plötu
næstahaust.”
Á plötunni Special Treatment eru
níu lög, öll leikin. Þau eru eftir Jakob
og Steven Anderson bassaleikara.
Hljómplötuútgáfan Steinar hf.
hefur öðlazt einkarétt á innflutningi
hljómplatna frá risaútgáfunum CBS,
WEA og K-Tel. Samningurinn við
fyrstnefnda fyrirtækið er gagn-
kvæmur, þannig að CBS öðlast
einkarétt á útgáfu hljómplatna frá
Steinum alls staðar í heiminum nema
áfslandi.
Að sögn Steinars Berg forstjóra
Steina hf. er þessi gagnkvæmi
samningur við CBS meira en orðin
tóm. Fullur hugur er í mönnum að
reyna að koma íslenzkri tónlist á
framfæri á alþjóðamarkaði. Þetta er
ný leið, sem ekki hefur verið áður
opin, til að koma islenzkri tónlist á
framfæri erlendis.
Nýjar plötur frá erlendu fyrir-
tækjunum þremur fá nú í framtíðinni
svipaða meðhöndlun hjá Steinum hf.
og ef íslenzk plata væri að koma út.
Kynningar verða mun stærri í sniðum
en áður, innflutningur á tveggja laga
plötum verður aukinn mjög, en hann
hefur nánast legið niðri til skamms
tíma. Þá verður veggspjöldum og alls
kyns útsdllingarefni dreift til
verzlana.
I
RAFÆKI
NÚ ER RAFTÆKJADEILDIN í
NÝINNRÉTTUÐU HÚSNÆÐI
Á1.HÆÐ
6 fyrren um «
hf ætlar voru kynnt m veriö sýnd
l*"
lagi aö metsöluplötu nokkru ^ ^ heimssekjum, áöur
, eintaki fylgir ein tópa sto sjWfir á staölnn-
,1, sérstök kvikmynd en v,ð k i verða auk þeirra Halla,
erö meö hljómsveltmni *,”r Heiga Uösmenn hilám-
jfjtrsssaiA-sss-a
*” ssri-ásjwe
,um af ,t.» 11»““* 'i6‘
186
”atan og kvlkmyndin lagk ----—
Nýkomið
úrval
rafljósa.
JON LOFTSSON HF.
HRINGBRAUT121 - SÍM110600