Dagblaðið - 11.04.1979, Síða 32
Nýskipan á eftirlaunum aldraðra
Einstaklingur fær
minnst 150 þúsund
—á mánuði, segir félagsmálaráðherra—1680 milljóna viðfangsef ni
„Ég held að menn muni sjá hve
mikið réttlætismál þetta er og það
fari greiðlega gegnum þingið. Forseti
efri deildar hefur lofað að taka það
fram yfir öll önnur mál,” sagði
Magnús H. Magnússon félagsmála-
ráðherra í viðtali við DB í morgun
um frumvarp hans um nýskipan á
eftirlaunum aldraðra.
„Nokkur ágreiningur varð í nefnd-
inni sem kannaði málið. FuUtrúar
vinnuveitenda og launþega vildu að
ríkið borgaði allt,” sagði Magnús.
Hann sagði að málið hefði verið af-
greitt í ríkisstjórninni með samkomu-
lagi. Þó gætu komið fram á þingi til-
lögur um að ríkið borgaði meira, en
það ætti ekki að tefja málið.
4500 manns fá ný réttindi sam-
kvæmt frumvarpinu. Einna lægstur
samanlagður framfærslueyrir hjá
öldruðum einstaklingi ætti eftir
breytinguna að verða um 150 þúsund
á mánuði, sagði Magnús. Hann fengi
um 50 þúsund í eUilífeyri, 54 þúsund í
tekjutryggingu, ef hann hefði ekki
aðrar tekjur, og loks minnst um 46
þúsund samkvæmt breytingunni nú,
til viðbótar hinu. Þá er miðað við, að
ellilífeyrir sé tekinn strax við 67 ára
aldur. Sé 'um hjón að ræða, fá þau
80% hærri ellilífeyri og tekjutrygg-
inguenþessartölur.
Magnús sagði að þetta væri stórt
skref í átt til verðtryggingar eftir-
launa. Hann vonaðist til, að verð-
tryggður lífeyrissjóður fyrir aUa
landsmenn kæmi tU eftir um tvö ár.
„Það er margt nýtilegt í frumvarpi
Guðmundar H. Garðarssonar,”
sagði Magnús. Hann kvaðst þó ekki
vUja láta gömlu lífeyrissjóðina standa
áfram sem lánasjóði, eftir að lífeyris-
sjóður fyrir landsmenn yrði á kom-
inn. Breytingar á lánakerfi hús-
næðismála, sem hann stefndi að,
geysileg aukning lána þár, ætti að sjá
um nauðsynleg húsnæðislán.
Álög á Irfeyrissjóði
og vinnuveitendur
Kostnaður af hinum nýju eftir-
launum og uppbót á þau, alls 1350
milljónir króna, svo og uppbót á
eftirlaun Lífeyrissjóðs bænda 330
milljónir, á að berast af sameiginleg-
um sjóði. Lífeyrissjóðir, sem standa
utan samkomulags launþegasamtaka
og vinnuveitenda, greiða 5% af ið-
gjaldatekjum sínum eða um 470
milljónir í sjóðinn. Sjóðir, sem eiga
aðild að samkomulagi launþegasam-
takanna, greiða 1% af iðgjaldatekj-
um sínum eða 100 milljónir. Sjálf-
stæðir atvinnurekendur greiða „eftir-
launaiðgjald”, sem nemur 0,5% af
launaskattstofni eða um 200 millj-
ónir. Rikissjóður, Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga og Atvinnuleysistrygg-
ingasjóður greiða það, sem á vantar,
og er hlutur hvers talinn verða rúm-
lega300milljónir. -HH
Ný tækni
við hraða-
mælingar
Lögreglan var við hraðamælingar á
Vesturlandsveginum í gærkvöldi og
beitti þar nýrri tækni við mælingarnar,
þ.e. radarinn var hafður inni í lög-
reglubílnum. Voru fjölmargir bílar
stöðvaðir á yfir 100 km hraða og þar á
meðal einn bílstjóri sem var drukkinn.
Að sögn Asmundar Matthíassonar
varðstjóra í umferðardeildinm hafa
þessar mælingar verið auknar verulega
að undanförnu efdr að færðin batnaði.
Á myndini sést Sveinbjörn Guðmunds-
son lögregluþjónn við hraðamælingar á
Vesturlandsveginum í gærkvöldi.
GAJ/DB-mynd Sv. Þorm.
Mondale
kemur
íkvöld
Walter Mondale, varaforseti
Bandaríkjanna, kemur í opinbera
heimsókn tíl íslands í kvöld og
staldrar við þangað tíl á
föstudagsmorgun. *
Varaforsetinn hittir forsætis-
ráðherra, Ólaf Jóhannesson, að
máli þegar í kvöld. í fyrramálið
hitta varaforsetínn og fylgdarlið
hans forsætisráðherra, utanríkis-
ráðherra og fleiri islenzka
embættismenn í Ráðherra-
bústaðnum. Á morgun skoðar
Mondale Árnasafn, fer í snögga
ferð tíl Þingvalla, og situr há-
degisverðarboð - dr. Kristjáns
Eldjárns forseta að Bessastöðum
og kvöldverðarboð forsætís-
ráðherra á Hótel Sögu annað
kvöld.
Héðan fer Mondale til Noregs,
og byrjar heimsóknina þar
óformlega í Mundal skammt frá
Bergen, en þaðan er varafor-
setinn ættaður og ber það nafn í
ameriskri útgáfu.
Undanfarna nokkra daga hafa
verið hérlendis bandarískir leyni-
þjónustumenn og öryggisverðir,
sem undirbúið hafa komu vara-
forsetans. - ÓV
«««&%£
Þótt Sigrún verði ekki nitján ára fyrr en í haust þá ferst henni móðurhlutverkið greinilega vel úr hendi. En við fisk-
verkunarborðið verður ófyllt skarð.
p p. DB-mynd Ragnar Sigurjónsson.
FYRSTU TVIBURARIEYJUM
— sem fæðast ef tir gos
„Nei, ég er ekki í neinum vandræð-
um með bleiur. Það er búið að redda
því öllu. Ég er líka búin að fá aðra
vöggu,” sagði 18 ára móðirin Sigrún
Sigurðardóttir, sem fæddi fyrstu tví-
burana eftir gos þann 31. marz síðast-
liðinn klukkan 17 og 17.15.
Þeir voru 2460 og 2650 grömm.
Hún sagðist alls ekki hafa átt von á
því að bömin yrðu tvö, en það yrði allt
í lagi, það væri búið að redda bæði
bleium, vöggu og öllu, sem með þyrfti.
Það vantaði eiginlega ekki nema nöfnin
á börnin og nú væru hún og kærastínn
að pæla í þeim. Kærastinn heitir ís-
leifur Ástþórsson, er 21 árs og vinnur í
vélsmiðjunni Magna.
„Hann hjálpar mér örugglega með
strákana,” sagði Sigrún, „annars eru
þeir ofsa rólegir og voða góðir.”
- IHH
Týndur síðan á föstudag
Lögreglan í Kópavogi hóf í
morgun leit að tæplega þrítugum
Kópavogsbúa, sem ekkert hefur til
spurzt síðan kl. 3 síðdegis sl.
föstudag. Um er að ræða Hilmar
Bjarnason, Hlíðarvegi 46, sem
fæddurer6.12 1949. Hann sást síðast
við Lækjartorg í Reykjavík.
Hilmar er stýrimaður á mb. Ólafi
Gísla. Er hann fór að heiman var
hann klæddur blárri vatteraði úlpu,
dökkum flauelsbuxum, dökkri
skyrtu og peysu og í gulum
vinnuskóm. Hann er 178 cm að hæð,
frekar dökkur yfirlitum, var vel á sig
kominn líkamlega en gengur svolítið
lotinn. Allir sem kunna að hafa séð
Hilmar frá áðumefndum tíma eru
beðnir að hafa samband við Kópa-
vogslögregluna.
-ASt.
Alvarlegt
holtsbraut
f gærkvöldi var ekið á pilt á
vélhjóli á mótum Breiðholtsbrautar
og Bústaðavegar. Áreksturinn var
sagður harkalegur og slasaðist piltur-
inn mikið. Engar upplýsingar var um
þettá slys að hafa hjá lögreglunni í
morgun, en pilturinn lá i gjörgæzlu-
:deild Borgarspítalans en var ekki tal-
inn í alvarlegri lífshættu. Myndin er
tekin á slysstað.
ASt/DB-mynd S. Þorm.
hjálst, úháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 11. APRlL 1979
Skákþing íslands:
Björn Þ.
vannIngvar
6. umferð á Skákþingi fslands var
tefld í gær. Þau úrslit sem mesta
athygli vöktu voru að Ingvar Ásmunds-
son tapaði fyrir Birni Þorsteinssyni.
önnur úrslit í landsliðsflokki urðu þau,
að Jóhann Hjartarson vann Jóhannes
Gísla Jónsson, Hilmar Karlsson vann
Jóhann öm Sigurjónsson. Jafntefli
gerðu Elvar Guðmundsson og Bragi
Halldórsson, Haukur Angantýsson og
Sævar Bjarnason, Haraldur Haralds-
sonog Jón Pálsson.
Haukur heldur enn forystunni með
5 vinninga, Björn er nú kominn í 2.
sæti með 4,5 vinninga og Ingvar er í 3.
sætí með 3,5 vinninga og eina skák
óteflda. Bragi HaUdórsson er með 3,5
vinninga og Sævar Bjarnason með 3. í
áskorendaflokki er JúUus Friðjónsson
enn efstur með 4,5 vinninga, en hann
tapaði í gær. Ölafur Kristjánsson er i 2.
sæti með 4 og biðskák. f meistara-
flokki er Hannes Ólafsson efstur með 4
vinninga eftir 4 umferðir og í opnum
flokki er efstur Óttar F. Hauksson með
4 vinninga.
-GAJ-
Sauðárkrókur:
Bakaríið
brann í
morgun
Milljónatjón varð á Sauðárkróki í
morgun er Sauðárkróksbakarí brann.
Eldurinn kom upp um áttaleytið og var
slökkvistarfi að ljúka er DB fór í prerit-
un.
Bakaríið er við Aðalgötu og til húsa í
riýbyggingu sem tekin var til notkunar í
fyrra. Nýr bakarofn var í bakaríinu og
var talið við fyrstu rannsókn, að eldur
hafí komið upp við hann.
fbúð bakarans og fjölskyldu hans
var á hæðinni fyrir ofan og urðu þar
skemmdir af reyk, en eldur komst ekki
að.
Veður var gott á Sauðárkróki í morg-
un og var því komizt hjá enn meira
tjóni, þar eð fleiri hús eru áföst
bakaríinu. |
-T.A. Sauðárkróki / HP
Móttaka
smáauglýsinga
yfir hátíðina
Móttaka smáauglýsinga
verður opin til kl. 18 í dag og
verður síðan lokuð, skírdag,
föstudaginn langa, laugardag og
páskadag. Opið verður annan
páskadag kl. 18—22 fyrir aug-
lýsingar sem eiga að birtast í
næsta blaði, sem kemur út þriðju-
daginn 17. apríl. Starfsfólk aug-
lýsingadeildar sendir öllum les-
endum beztu óskir um gleðilega
páska.