Dagblaðið - 17.04.1979, Qupperneq 1
Eldurí íbúð íHafnarfirði:
Maður lézt af völdum reykeitrunar
—eldurinn hafði kraumað lengi áður en hans varð vart
Klukkan 6.48 á skírdagsmorgun
var slökk viliðið i Hafnarfirði kvatt
aö fjölbýlishúsinu nr.96 við Álfaskeið
í Hafnarfirði. Var mikill eldur í enda-
íbúð á 3. hæð, en húsið er fjórar
ibúðarhæðir. Slökkviliðsmenn björg-
uðu þegar við komuna manni og
tveimur konum út um glugga á norð-
austurherbergi íbúðarinnar og
notuöu við það slökkviliðsstiga.
Er fleiri slökkviliðsmenn bar að
fóru reykkafarar inn í íbúðina og
fundu húsbóndann, Halldór Einars-
son netagerQarmann, í hjónarúminu.
Var hann þegar fluttur i slysadeild
Borgarspítalans og gefið súrefni og
veitt hjartahnoð á leiðinni. Lá hann
síðan í gjörgæzludeild þar sem hann
lézt í nótt.
Hitt fólkið var einnig flutt í slysa-
deild en fékk fljótt að fara heim.
Einn slökkviliðsmanna fékk einnig
reykeitrun og var fluttur í sjúkrahús.
Hresstist hann fljótt og hefur með
öllu náðsér.
Ljóst þykir að eldurinn hafi komið
upp í sjónvarps- og bókaherbergi í
SA-horni íbúðarinnar. Þar var allt
brunnið sem brunnið gat. Mun eldur-
inn lengi hafa kraumað þar áður en
hans varð vart.
Húsmóðirin sem svaf í hjónarúm-
inu vaknaði við eldinn og gerði
slökkviliði viðvart og um sama leyti
komu boð um eldinn frá vegfaranda
á Reykjanesbraut. Tókst slökkviliðs-
mönnum fljótt að ráða niðurlögum
eldsins.
Mjög miklar skemmdir urðu á
íbúðinni og vatn og reykur fóru
víðar um húsið með tilheyrandi
skaða. •
-ASt.
\
\
!
!
j
l
í
i
i
í
4
4
4
5. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL1979 — 87. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTII l.-AÐALSÍMI 27022.
friálst,
úháð
dagblað
Þrjátíu og þriggja ára gamall
maður var stunginn með brauðhníf í
bakið snemma í morgun í húsi við
Barónsstig. Hann var ekki talinn í
lifshættu, þegar síðast var vitað i
morgun.
Ljóst er, að tuttugu og níu ára
gamall maður veitti þennan áverka
og er hann í gæzluvarðhaldi. Hann
var farinn af staðnum, þegar
lðgreglan kom þangað laust fyrir
klukkan sex í morgun. Fleira fólk var
þama á fyrstu hæð hússins að
Barónsstíg 22 þar sem kona er hús-
ráðandi eftir því sem næst verður
komizt. Hafði fólk setið að drykkju
þar.
Þegar lögreglan kom á staðinn
gátu þeir, sem þar voru gefið upplýs-
ingar um manninn, sem áverkann
veitti og gefið upp heimilisfang hans.
Fannst hann skammt frá heimili sinu
í Álftamýri, þegar hans var leitað
þar.
Kiukkan um fimmtán mínútur
fyrir sex í morgun kom konan, sem er
húsráðandi á lögreglustöðina við
Hverfisgötu. Skýrði hún frá þvi,
að maöur lægi í blóði sínu eftír hnifs-
stungu, sem honum hefði verið veitt á
heimili hennar þá fyrir skömmu.
Kvað hún árásarmanninn hafa
gengið með sér allt að Hlemmtorgi og
hafi hann ætlað að gefa sig fram við
lögreglu, en brast svo kjarkinn,
þegar þangað var komið.
Fór lögreglan þá þegar að Baróns-
stig 22. Þar lá hinn stungni. Kvartaði
hann undan kvölum í hjarta og
iungum að þvi er virtíst. Þar voru
einnig tveir menn, sem þarna höfðu
verið staddir.
Var strax farið með hinn særða á
slysavarðstofuna og síðan með hitt
fólkið í gæzlu og tíl yfirheyrslu.
Virðist málið liggja ljóst fyrir, enda
þótt ekki sé vitað hvort einhver
ágreiningur hafi orðið hvati að
árásinni. Hnifslagið kom nærri
herðablaði vinstra megin. Sem fyrr
segir er hinn særði ekki talinn í lífs-
hættu. Yfirheyrslur eru hafnar hjá
Rannsóknarlögreglu rikisins.
-BS.
Lögreglan fyrir utan húsið Barónsstig
22i morgun.
DB-mynd: Sv. Þorm.
Af malbiki út í fjörugrjótið
Á áttunda tímanum I morgun var bif-
reið ekið út af Sœtúni i Reykjavik niður i
stórgrýtta Laugamesgöruna. Þama var
stúlka ein á ferð i nýlegum Datsunbíl.
Ekki er vitað hvað slysinu olli, en til-
gátur eru uppi um að stúlkan hafi fengið
aðsvif þvi akstur hennar var reikull áður
en útafaksturinn varð. Enginn grunur er
um áfengisneyzlu. Stúlkan var flutt i
slysadeild en ekki talin alvarlega slösuð.
Myndin sýnir lögreglumenn bera stúlk-
unafrá bílnum sem situr á stórgrýtinu.
ASt /DB-myndSveinn Þorm.
| Spennandikeppniílandsliðsflokkiískák:
Ingvar Ásmundsson
íslandsmeistari 79
Ingvar Ásmundsson varð í gær-
kvöldi íslandsmeistari í skák 1979.
Ingvar hefur nokkrúm sinnum áður
verið mjög nærri því að hreppa titilinn
en ekki tekizt fyrr en nú. Keppnin var
mjög spennandi að þessu sinni þvi
fyrir síðustu umferðina áttu þrír kepp-
endur möguleika á sigri, Haukur
Angantýsson sem hafði 7,5 vinninga,
Ingvar sem hafði 7,5 og Björn
Þorsteinsson sem hafði 7 vinninga. í
síðustu umferðinni sigraði Bjöm hinn
unga og efnilega Jóhann Hjartarson,
Haukur gerði jafntefli við Elvar
Guðmundsson en skák Ingvars og
Sævars Bjarnasonar fór S bið. Það var
þvi ljóst, að Ingvar yrði að vinna sigur í
þeirri skák til að tryggja sér titilinn og
þegar skákin var tefld áfram í gær-
kvöldi tókst honum að knýja fram
sigur. Ingvar hlaut því 8,5 vinninga en
þeir Haukur og Bjöm 8.
Það dregur nokkuð úr þessum sigri
Ingvars, að fiesta okkar sterkustu
menn vantaði á mótið s s. Friðrik,
Guðmund Sigurjónsson, Inga R. Jón
L., Helga Ólafsson og Margeir.
1 áskorendaflokki sigraði Benedikt
Jónasson með 8,5 vinninga. í 2. sæti
varð Júlíus Friðjónsson með 8 vinn-
inga. Þeir fiytjast í landsliðsflokk. Í
meistaraflokki; sigraði Hannes Ólafs-
son og í opna flokknum sigraði Óttar
F. Hauksson.
-GAJ-
Skákin sem réð úrslitum á mótinu.
Ingvar Ásmundsson og Sævar Bjama-
son eigast við. Haukur Angantýsson
fylgist spenntur með til vinstri:
DB-mynd: Hörður.
STUNGINN MED BRAUÐ-
HNÍF í BAKIÐ
ekki talinn í lífshættu,
árásarmaðurinn
þekktist ognáðist