Dagblaðið - 17.04.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1979.
7
Þúsundir fólks skoðuðu bflasýningu Kvartmfluklúbbsins:
VONUMST TIL AÐ SYNINGIN LOSI
OKKUR VIÐ MESTA SKULDABAGGANN
— Klúbburinn skuldar nú milljónir króna
Alls skoðuðu milli fimmtán og
sextán þúsund manns bílasýningu þá er
Kvartmíluklúbburinn gekkst fyrir um
bænadagana og páskana. Sýning þessi
er ein af aðaltekjulindum klúbbsins og
stærsti liðurinn i vetrarstarfi hans.
„Aðsóknin er svipuð og við gerðum
okkur vonir um,” sagði Jóhann
Kristjánsson varaformaður Kvartmílu
klúbbsins er Dagblaðið ræddi við hann
seinnipartinn í gær. „Við opnuðum
sýninguna á miðvikudagskvöldið. Allt
var rólegt fyrst í stað, en eftir það hefur
verið stöðugur straumur af fólki á
öllum aldri.”
Á sýningunni, sem var haldin í
sýningahöllinni Ársölum við Bílds-
höfða, gaf að líta 55 bíla. Þar af voru
fjórir torfærujeppar og tveir rallbilar.
Þá voru á sýningunni ein tíu mótorhjól
— þar af eitt sex strokka — og nokkrar
vélar.
Að sögn Jóhanns Kristjánssonar
vakti sænskur kvartmílubíll, sem
fluttur var hingað til lands gagngert
fyrir sýninguna, einna mesta athygli
allra sýningargripanna. Bíll þessi er
Chevrolet Vega að uppruna en er sér-
smíðaður til kvartmílukeppni. Af
„innlendum” gripum sagði Jóhann að
bíll af gerðinni Chevrolet Monza hefði
vakið hvað mesta hrifningu. Annars
[XSUND-I |
S4 keppntsbÚl sem tlesti sigra vnnn t btlakeppnum i stflnsln irl er jeppi Benedlkts Eyjólfssonar. Hann var að
sjilfsögðu i sýningu Kvartmtluklúbbslns og skaitaði öllum þeim verðlaunapeningum og bikurum sem hann og
eigandinn höfðu unnið sér inn i sameiningu. DB-mynd Ragnar Th.
anddyri sýningarhallarinnar hafði sænska kvartmilubílnum verið komið fyrír. í kringum hann var yfirleitt stór hópur fólks, sem velti mjög vöngum yfír þessu
urðuverki. DB-mynd RagnarTh. Sigurðsson.
gafst gestum sýningarinnar kostur á að
kjósa um fallegasta bílinn, þann verk-
legasta og loks hinn athyglisverðasta.
Kvartmíluklúbburinn hefur gengizt
fyrir þremur bílasýningum á undan
þessari. Að sögn Jóhanns Kristjáns-
sonar eru sýningarnar ásamt keppnum
aðaltekjulindir klúbbsins.
„Við vonumst til þess að sýningin
eigi eftir að losa okkur við mestallan
skuldabaggann,” sagði Jóhann. „Við
skuldum núna fjórtán milljónir króna í
kvartmílubrautinni sem lögð var síðast-
liðið haust. Þá upphæð þurfum við að
hafagreitt alla næsta sumar.”
Vígja átti kvartmílubrautina síðast-
liðið haust. Það fórst hins vegar fyrir,
því að á vígsludaginn féll fyrsti snjór
vetrarins. — Kvartmílubrautir þurfa að
vera skraufaþurrar til að hægt sé að
keppaáþeim. -ÁT-
Stærsta leikfanga verzlun landsins
LAUGAVEG118
GLÆSI
LEGT
ÚRVAL
LEIK
FANGA
FYRIR
ALLA
ALDURS
FLOKKA
FLUGELDAR
BOLTAR
SIPPUBÖND |
•
FÖTUR
OG
SKÚFLUR
•
OG MARGT
MARGT
FLEIRA
Mikið úrva/af ieikföngum tii sumargjafa
LAUGAVEG118
^ivprpoot'
SÍMAR: 11135 OG14201