Dagblaðið - 17.04.1979, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1979.
Morgunpósturinn
f róðlegt og skemmtilegt ef ni
Lcsandi skrifar:
Ég hlusta oft á Morgunpóstinn í
morgunútvarpinu og líkar hann
ágætlega. Þeir heiðursmenn Páll
Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauks-
son eiga þakkir skildar fyrir fróðlegt
og fjölbreytt efni. Fimmtudaginn 22.
marz var viðtal við sr. Pétur Sigur-
geirsson vígslubiskup á Akureyri.
Það var margt gott og sálubætandi
sem sá mæti maður sagði og er ekki
Hríngið í síma
27022
milli kl. 13 o.
\815)
ástæða til að rifja það allt upp. Við
ættum þó að hugleiða síðustu orð
hans sem voru á þessa leið: „Leitið
fyrst guðsríkis og þess réttlætis og þá
mun allt annað veitast yður að auki”.
Þetta var heilræði til þjóðarinnar sem
allir ættu að fara eftir.
Að síðustu las stjórnandi þáttarins
upp málshátt sem er ekki síður athug-
unarverður: „Meira má guðskraftur
en kvikindakjaftur”. Já svo sannar-
lega er þetta satt. Fólk mætti vera
meira trúað og fylgja orðum kærleik-
ans og réttlætisins en að vera sifellt
með öfund, illmælgi og nið um ná-
ungann, sem hefur slæmar afleiðing-
ar, á báða bóga, ekki síður fyrir þann
sem sendir skeytið. Það hafa eflaust
allir heyrt að hægt er að senda
óvini sínum svo slæmar hugsanir að
sá sem fyrir því verður biði þess ekki
bætur; nema að fá kraft frá guði til
að standast slíkar ásóknir. Þó eru
margir niðurbrotnir á sál og líkama
vegna andlegra óvina sem þeir fá ekki
frið fyrir því að það eru fáir vinir í
þessu þjóðfélagi þar sem allir reyna
að hagnast á kostnað annarra. Fólk
stendur líka aldrei saman í einu eða
neinu þegar eitthvað er gert á hluta
þess eins og t.d. verðhækkanir á öll-
um sviðum. Ef allir væru samtaka þá
væri hægt að kveða ósómann niður.
Hér kemur svo sönn dæmisaga sem
gæti átt við marga og við gætum
margt af henni lært. Ónefnd kona
Páll Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson, umsjónarmenn Morgunpóstsins.
hefur orðið illilega fyrir barðinu á
öfund og lygi. Hún hefur hrökklazt
úr einum vinnustað í annan, en alltaf
hefur einhver óvinur elt hana á rönd-
um, hvert sem hún fer. Vinnuveit-
andi eða vinnufélagar hafa fengið
einhverjar ósannar sögur sem er trú-
að. Þeim er trúað og treyst sem eru
falskir og lygnir og þeir komast bezt
áfram í lífinu. En sú sem fyrir þessu
hefur orðið hefur staðizt allar raunir,
því að hún er heiðarleg, skynsöm og
síðast en ekki sizt trúuð. Hún hefur
oft snúið sér til guðs í raunum sínum
og fengið styrk. Vonandi að fleiri
gerðu slíkt hið sama.
Maturinn á hótel
Varðborg alveg
frábær
ogframreiðslufólkið kurteist
Orðaleppar í námsbók
— Mikið f urðuverk er stofnanaíslenzkan
A.B. hringdi:
„Ég var á Akureyri um sl. helgi og
meðan ég dvaldi þar gisti ég á Hótel
Varðborg. Mig langar til þess að
koma því á framfæri hve maturinn
þar var sérstaklega góður. Ég hef
dvalið víða á hótelum og get fullyrt
að hvergi hef ég fengið jafngóðan
mat. Úr mörgu var að velja og allt
var þetta jafngott. Einnig var fram-
leiðslu fólk ið sérstakiega kurteist og
almennilegt. Ég vona svo að þetta
hótel haldi áfram á sömu braut því
þeir eiga ekkert nema hrós skilið fyrir
frammistöðuna.
Þeir sem gista Akureyri geta átt von á
góðum mat og góðri þjónustu á
Hótei Varðborg.
Oddný Guðmundsdóttir Bakkafirði
skrifar:
Nemandi, sem sat áhyggjufuilur
yFir námsbók sinni, kvartaði um, að
hann vissi ekki sitt rjúkandi ráð inn-
an um alla þessa orðgnótt. Þetta er
tilraunaútgáfa, gefin út á vegum
Félagsvísindadeildar HÍ. Hér eru
fáein sýnishorn:
Frumhópur
Fjarhópur
Menningarkimi
Skörun
Hlutverkasveipur
Félagslegt safn
Staðtölulegur
Vænting
Festi (hvorugkynsorð)
Þar sem þessi orð eru notuð í les-
máli fylgir þeim margorð greinar-
gerð:
Frumhópur er sagt, að hafi mark-
mið og sé tilfmningabundinn.
Fjarhópur er, til dæmis, af-
greiðslumaður og viðskiptavinur.
(Hvernig í ósköpunum sem tveir
menn geta verið hópur). En þeir eru,
segir skýringin, „ótvírætt dæmi um
fjarhóp”. Nánar skilgreint þannig:
,,— samskiptin eru gersneydd tilfinn-
ingainntaki”. (Er það nú vist? Ætli
kaupandinn geti ekki verið bálreiður
við búðarmanninn?)
Staðtölulegt safn er þannig, að
fólk er flokkað, ,,án þess, að þvi
fylgi nokkur félagsleg tilvísun”. Sem
dæmi um staðtölulegt safn er t.d. allt
fólk, sem notar gleraugu, svo og örv-
hent fólk, segir í bókinni. (Þetta
dæmi er þó ekki vel til fundið. örv-
hentir menn gætu einmitt átt það til
að stofna harðsnúna vinstri hreyf-
ingu.)
Menningarkimi, segir skýringin, að
, .birtist, þegar vikið er að verulegu
leyti frá viðmiðun hinnar ríkjandi
menningar”.
Hlutverkasveipur er „samsafn
hlutverkanna”.
Festi (hvorugkynsorð) eru, til
dæmis, fjölskyldufesti, menntafesti,
trúarbragðafesti, stjórnmálafesti og
efnahagsfesti, segja skýringarnar.
Festi virðist hér um bil sama og kerfi.
Þó er sagt, að festi gangi lengra en
kerfi.
Vænting er dularfullt orð. ,,Vænt-
ingar eru festar”. (Er það rétt flt. af
hvorugkynsorði?) „Þær eru hluti af
einhverju tilteknu festi og beinast að
einstaklingum og hlutverkum
þeirra”.
Hér fer á eftir kafli, sem ekki er
með öUu auðskilinn: „Þótt um mikla
skörun væntinga sé að ræða, er
vandalaust fyrir hvern og einn að
staðfesta, að töluvert ólíkar vænt-
ingar eru bundnar samskiptum eftir
því, hver er mótleikari framhalds-
skólanemans.”
BÍLASALAN
Ávaltt
mikið
úrval
notaðra
bHteiða
Cortina 1600L árg. ’77, ekinn 12 þós.
Gamall, góður, ódrepandi, furðuflottur
jeppafjandi, einn sá bezti hér á landi að
æða um i mold og sandi. Jeepster árg.
'61, blár og hvítur, V—6, hár og
reisulegur. Mjög góður að sögn eig-
anda, sem er hrekklitill og bezta skinn.
Verð 1200 þús.
Ford Escort sendibfll árg. 1974,
hvftur, ekinn 90 þús. Vetrardekk.
Fallegur bfll f góðu lagi. Verð 1290
þús.
4ra dyra, grænsans., sumard. +
vetrard., útvarp, sem nýr, skoðaður
’79, gæti tekið ódýran bfl upp f. Verð
3,8 m.
Maveric árg. ’70, ekinn 93 þ. m., 6 Simca 1100 sendibfll árg. ’75, ekinn 66
cyl., sjálfsk., gulur, vetrard., útvarp. þús., hvftur, gott lakk, sumard. +
Þessir seljast alltaf. Verð 1500 þús. vetrard. Verð 1300 þús.
Ford Escort, þýzkur, árg. ’74, ekinn
74 þús., 2 dyra, rauður, vetrard., mjög
góður blll. Verð 1500 þús.
Audi 100 LS árg. ’73, gulur, 2ja dyra,
ekinn 80 þús. Mjög fallegur og góður
bfll. Verð 2,5 m.
Pontiac Catalína árg. 1970, 8 cyl, 400
cup, sjálfskiptur. 4ra dyra, útvarp,
vetrardekk, skipti. Verð 2,2 m.
Vegna mikillar sölu undan-
faríð vantar okkur fjölmarg-
ar tegundir á skrá, td. flest-
ar gerðir af japönskum bíl-
Cortinu og
um, Volvo,
margar aðrar gerðir nýlegra
bíla. Útvegum þvott og bón
á bíla, góð vinna.
Saab 99 árg. '12,2 dyra, fjólublár, nýtt Simca 1100 LE árg. '11, ekinn 23 þús.
lakk, vetrardekk, nýupptekin vél og gulur, gott lakk, 5 dyra, vetrardekk
kassi, skoðaður ’79, toppbill. Verð útvarp. Verð 2,5 m.
1900 þús.
Austin Mlni árg. 1974, ekinn 63 þús.
drapplitur, gott lakk. Vetrardekk út-
varp. Mjög gott eintak. Verð 950
þús.
Mazda 616 árg. ’75, ekinn 53 þús.,
brúns., 4ra dyra, vetrardekk, útvarp.
Blll f góðu standi. Verð 2,5 m.
BÍLASALANj
Mazda 929 árg. '14, 2ja dyra, rauður,
vetrardekk, útvarp, segulband
skoðaður '19, ekinn 58 þús., góður
bill. Verð 2,3 m.
Wagoneer árg. 1970, ekinn 120 þús., 6
cyL, gullsans., nýtt lakk,
upphækkaður, útvarp. Bill f algjörum
sérflokki. Verð 2,1 m.
Þetta gengur ekki lengur. Þá er nú
betra að eiga bfl.
Sími 29330