Dagblaðið - 09.05.1979, Blaðsíða 1
Á
5. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ1979 - 104. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 1 l.-AÐALSÍMI 27022.
Hafnarfjörður:
>
Helmingur af 20 ára
skógræktarstarfi ónýtt
— Þr jár 9 ára telpur ætluðu að kveikja „lítið bál” en úr varð eldhaf
sem nær 200 manns þurfti til að yf irvinna
Leikur þriggja níu ára telpna meA
eld innan girðingar Skógræktarfélags
Hafnarfjarðar í gær orsakaði
milljónatjón i verðmætum og ónýtti
um helming gróðurs sem Skóg-
ræktarfélagið hefur unnið að í um
eða yfir 20 ár. Eldurinn varð á
skammri stund mjög mikill og barðist
allt slökkvilið Hafnfirðinga,
lögreglan, hjálparsveit skáta,
björgunarsveit SVFÍ, vinnuflokkar
Hafnarfjarðarbæjar auk liðsauka frá
Slökkviliði Reykjavíkur og Skóg-
ræktarfélagi Rvíkur alls voru 200
manns, við eldinn í rúmar tvær
klukkustundir.
Tilkynning um eldinn kom kl.
16.15 og magnaðist hann gífurlega á
örskammri stund. Stelpurnar sem
orsökuðu brunann ætluðu aðeins að
kveikja „lítiðbál.”
Um það bil helmingur girts lands
Skógræktarfélagsins í Hafnarfirði er
brunnið, alls um 15 hektarar. Þarna
var mest af sitkagreni, stafafuru og
bergfuru auk alls kyns plantna Skög-
ræktarmenn segja að í krónum talið
sé tjónið upp á margar milljónir en
ánægja fólksins, sem að þessu
gróðurstarfi hefur unnið, verður ekki
metin til fjár.
Og allt var þetta vegna leiks óvita
með eld. Það verður ekki of brýnt
fyrir foreldrum að sjá nú til þess að
börn þeirra séu ekki meðeldspýtur og
sérhver sem fer um landið á þessum
þurra tíma verður að gæta sérstak-
lega vel að með %ð henda hvorki frá
sér vindlingi né eldspýtu.
-ASt.
Ólafur bað ráðherrana
að merkja við mikil-
vægustu málin:
MERKTU
VIÐ 36 AF
39 MÁLUM
— f jöldi þingmála
„sofnar” á loka-
sprettinum
Fjöldi þingmála er að ,,sofna”, þar
sem hálf önnur vika mun eftir af þessu
þingi. „Merkið þið nú við þau frum-
vörp á ykkar vegum sem þið leggið
mesta áherzlu á að nái fram,” sagði
Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra
við ráðherra sína fyrir rúmri viku. 39
stjórnarfrumvörp voru þá óafgreidd.
Ráðherrarnir skiluðu Ólafi merking-
um. Þeir höfðu merkt við 36 af hinum
39 stjórnarfrumvörpum.
Vonlaust er að þau mál öll gangi
fram þessa daga. Hverjum þykir sinn
fugl fagur, og munu margir ráðherr-
arnir berjast til hinztu stundar við að
reyna að koma „sínum” málum í gegn.
Fundir eru farnir að standa til mið-
nættis. Lokaspretturinn í fullumgangi.
Flestöll þingmannafrumvörp og -til-
lögur stranda, einnig frumvörp
stjórnarþingmanna, svo að ekki sé
minnzt á frumvörp og þingsályktunar-
tillögur stjórnarandstæðinga.
,,Já, það er mikið tillöguflóð, en
ekki er það óvanalegt á fyrsta þingi
eftir kosningar, þegar margir nýir þing-
menn taka sæti,” sagði Sighvatur
Björgvinsson, formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins, í viðtali við DB. -HH
~'"-"("*TjaldaneSmálið: ]
„Ráðuneytið hefur
aldrei beðið um gögn”
— segir formaður Réttarverndar
„Við í Réttarvernd gengumst í því
að safna saman öllum gögnum um
þetta mál og ræða við starfsfólk,”
sagði Ellert Guðmundsson, formaður
Réttarverndar, í viðtali við Dagblað-
ið um Tjaldanesmálið. „Þessi gögn
hafa verið fyrir hendi allan tímann og
við ítrekað í bréfum til ráðuneytisins,
eins og sjá má, að við hefðum þau
undir höndum og myndum .afhenda
þau um leið og við værum beðnir um
það. Ráðuneytið hefur hins vegar
alltaf hafnað beiðni okkar um rann-
sókn, án þess að biðja einu sinni um
að fá að sjá gögnin. Það finnst okkur
furðulegt,” sagði Ellert ennfremur.
í svarbréfi heilbrigðisráðuneytisins
við beiðni Réttarverndar um rann-
sókn í málinu frá því 11. apríl í ár
segir í niðurlagi: „Síðan það bréf
(fyrra bréf Réttarverndar þar sem at-
hygli er vakin á málinu) var skrifað
hafa því ekki borist nein gögn um
málefni sem snerta aðbúnað vist-
manna á Tjaldanesheimilinu.
Ráðuneytið mun þvi ekkert aðhaf-
ast nema íslensk réttarvernd eða aðrir
aðilar láti þvi í té gögn sem gefa til-
efni til aðgerða.”
- HP
t
Ráðherra:
(JPS! Um leið og strákarnir hoppuðu niður á brettið þeyttist stúlkan upp í loft — ekki
laus við að vera hálfhrœdd, ef marka má svip hennar. DB-mynd Ragnar Th.
„VIL FA GOGNIN
STRAX Á BORÐIД
„Ég hef ekkert um þetta mál að brigðisráðherra í morgun.
segja annað en það, að ég vil fá öll „Við munum síðan kanna málið i
gögn í málinu inn á mitt borð strax,” ljósi þeirra.”
sagði Magnús H. Magnússon heil- -HP
Vitnisburður starfsstúlkna á Tjaldanesheimilinu:
„Líkist óhugnanlegum tilraunum...”
J)
Dagblaðið hefur undir höndum
bréf fyrrverandi starfsfólks á Tjalda-
nesheimilinu þar sem greint er frá at-
burðum sem það segir hafa gerzt í
starfstið sinni og Réttarvernd vitnaði
í bréfum sínum til. Bréfin eru undir-
rituð.
í einu bréfinu segir m.a.:
„í þeim tilfellum, sem einhverjir
piltanna fengu útrás fyrir tilfinningar
sínar eða óánægju með því að rífast
við starfsfólkið eða fóru í hár saman,
þá gaf forstöðumaðurinn róandi lyf,
yfirleitt Truxal 15 mg eða 50 mg og
sendi viðkomandi í rúmið.”
Þá segir í sama bréfi: „Veturinn
’75—76 leið einn piltanna mjög af
geðsjúkleika, gat ekki sofið og var
mjög árásargjarn og gaf forstöðu-
maðurinn þá í samráði við lækni
heimilisins, að okkur var tjáð, stóra
skammta af mismunandi róandi Iyfj-
um í pillu- eða sprautuformi, svo
mest líktist óhugnanlegum tilraun-
um.”
í öðru bréfi segir: „Ég hef orðið
vitni að því aö hann hefur tekið pilt
með steinbítstaki og haldið í kaldri
sturtu og einnig hellt vatni ofan í
hann, svo lá við köfnun ...”
Þá segir í þriðja bréfinu: ,,Oft kom
það fyrir, að forstöðumaðurinn fyrir-
skipaði að gefin skyldu ,,lyf á lín-
una”, ef einhverjir drengjanna voru
óstýrilátir ...” - HP
A