Dagblaðið - 09.05.1979, Side 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. MAl 1979.
3
Vaxtagreiðsla
Gjaldheimtunnar
N
— hvenærber
þéraðfá
greidda vexti?
Spurning
dagsins
Hvernig lízt þér á að
ríkið taki upp
einkasölu á
ölgerðarefnum?
Ágúst Hróbjartsson hringdi:
Mig langar til þess að vekja athygli
já því á hversu óréttlátan hátt dráttar-
Ivextir hjá Gjaldheimtunni eru teknir.
Hér áður fyrr fékkst þú 1/2% í vexti
af upphæð sem þú áttir inni hjá
Gjaldheimtunni. Ef þú hins vegar
skuldaðir henni voru teknir af þér 1
og 1/2% vextir. Síðan var þessu
breytt þannig að ef þú skuldar Gjald-
heimtunni núna eru teknir af þér 3%
vextir en áfram færð þú ekki nema
1/2% ef Gjaldheimtan skuldar þér.
Annað óréttlæti í vinnubrögðum
Gjaldheimtunnar veldur mér mikilli
reiði. Þú færð við endurskoðun
skattskýrslu aukaálag að upphæð
t.d. kr. 2 milljónir. Þú greiðir strax
þessar 2 milljónir, siðan kærir þú
málið til ríkisskattstjóra. Málinu er
vísað til ríkisskattanefndar og tekur
málsumfjöllun um 1 ár. Þegar niður-
staðan loks kemur hefur verið fallizt
á að þú greiðir 1 milljón. Þú átt sem
sagt 1 milljón inni hjá Gjaldheimt-
unni og ert búinn að eiga hana þar í 1
ár. En hvað skeður? Þú færð enga
vexti greidda af þessari milljón. Ef þú
aftur á móti hefðir ekki greitt þessar
tvær milljónir hefðu 3% vexdr verið.
reiknaður aftur á bak um 1 ár sem þú
hefðir mátt greiða Gjaldheimtunni.
í öðru lagi: Segjum að þú sért bú-
inn að greiða 1200 þús. krónur í
fyrirframgreiðslu'til Gjaldheimtunn-
ar. Þegar þú færð skattseðilinn þinn
kemur í ljós að þú átt ekki að greiða
nema 500.000 krónur. Þú færð 1/2%
vexti greidda af þeim 700.000 krónur
sem þú hafðir greitt umfram til
Gjaldheimtunnar.
Fyrirspurn
til dómsmála-
ráðherra
Afgreiðsla Gjaldheimtunnar i Reykjavlk.
DB-mynd R. Th. Sig.
í báðum þessum dæmum er um að
ræða upphæðir sem Gjaldheimtan
hefur tekið af þér og greitt síðan til
baka. En hvernig í ósköpunum
stendur á því að þú færð aðeins
greidda vexti í síðara dæminu.
DB hafði samband við Guðmund
Vigni Jósefsson gjaldheimtustjóra:
,,í 43. grein skattalaganna er sagt að
kæra á skattagreiðslu fresti ekki
greiðsluskyldu. Og í þeirri grein er
hvergi gert ráð fyrir vaxtagreiðslu í
tilvikum sem nefnt er í fyrra dæminu.
Hvort þetta er óréttlátt eða ekki vil ég
ekki segja um. Ég túlka aðeins lögin
eins og þau eru. Hins vegar liggur
fyrir frumvarp um staðgreiðslukerfi
skatta og er í því frumvarpi gert ráð
fyrir vaxtagreiðslu í slíkum til-
vikum.”
hkuí
Aðalsteinn Aðalsteinsson verzlunar-
stjóri: Mér lízt illa á það. Ég vil að fólk
geti keypt ölgerðarefni á frjálsum
markaði.
Eyþór Stefánsson bóndi: Ég held að
það sé ágæt hugmynd. Þá eru þau á
réttum stað.
Vilborg Eggertsdóttir húsmóðir: Illa.
Fólk ætti að geta keypt þessi efni og
bruggaðað vild.
Ungstúlka hringdi:
Hefur fíkniefnalögreglan rétt til
þess að láta atvinnurekendur vita að
fólk sé á sakaskrá hjá henni og þar
með verða ef til vill völd að því að
fólk missi vinnuna?
Hringið
ísíma
27022
milli kl.
13 og 15,
eða skrifið
Heimilis
læknr
Raddir lesenda taka við
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttaríns „Heimil-
islœknir svarar" sfma
27022, kl. 13-15 alla
virka daga.
- ----------- ■ - «>
NU
eru laus ýmis hverfi á Reykjavíkur-
svæðinu fyrir
BLAÐSÖLUBÖRN
Sigvaldi Jónsson öryrki: Mér er alveg
sama. Ég er ekkert að hugsa um frjálsa
verzlun eða ríkisverzlun.
BLAÐINU EKIÐ
HEIM TIL YKKAR
A
HVERJUM MIÐVIKUDEGI
Hjördis Þórhallsdóttir húsmóðir: Það
er alveg fráleitt. Hver og einn á að geta
búið til vín að vild.
HAFIÐ SAMBAND VIÐ
AFGREIÐSLU
í síma 27022
Svanlaug Friðþjófsdóttir húsmóðir
með meiru: Mér lízt vel á það. Ég er
alveg andvíg því að fólk geti bruggað
eigið vin.