Dagblaðið - 09.05.1979, Page 4
4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. MAl 1979.
DB á ne ytendamarkaði
Súkkulaðitertur eru allra uppáhald
Venjuleg, hefðbundin fyrir börnin og ein „spari” fyrir fullorðna fólkið
Súkkulaðitertur og kökur hafa
löngum verið uppáhald barna og
unglinga. Margir fullorðnir eiga erfitt
með að láta á móti sér, þegar boðið er
upp á væna sneið af slíkri köku. Hér
fara á eftir uppskriftir aðvenjulegri
súkkulaðitertu, sem hentar vel í t.d.
barnaafmæli — og síðan að mokka-
rúllutertu sem gæti frekar verið
„fyrir fuliorðna”.
Súkkulaðiterta
1/2 bolli smjörl.
1 bolli sykur
2 msk. kakó
2 egg
11/2 bolli hveiti
1 tsk. natron
1 tsk. lyftiduft
1/2 tsk. salt
1/2 bolli súrmjólk
Vanilla eftír smekk
Kremið:
1 pakki flórsykur
1/2 bolli smjör
2—3 msk. kakó
legg
Mjólk, rjómi eða vatn þar til kremið
er mátulega þykkt til að smyrja því i
kökuna.
Smjörið er hrært vel með sykrinum
og eggjunum bætt út í, síðan kakóinu
og þurru hlutunum ásamt mjólkinni.
Þetta verða tveir botnar, sem hefast
mjög vel, bakaðir við 200°C hita í um
það bil 20—25 mín. Þegar botnarnir
eru orðnir kaldir eru þeir lagðir
saman með kreminu, sem einnig er
smurt á hliðar og ofan á kökuna.
Það er búið til á þann hátt að
smjörið er hrært með flórsykrinum og
egginu. Síðan er kakóinu bætt út í
ásamt vökvanum. Ef vill má bragð-
bæta kremið með vaniiludropum, en
mörgum finnst óþarfi að hafa van-
Vörumarkaður
í næstu viku verður opnaður stór vöru-
markaður í miðbænum með ýmsar vörur. Þeir
sem eiga vörur og þurfa að selja þær ættu að
nota tækifærið og fá leigða aðstöðu á
markaðnum og koma vörunum í peninga. Hér
er gott tækifæri fyrir iðnfyrirtæki, heildverzl-
un og þá sem hafa hætt verzlunarrekstri en
eiga eftir vörurnar. Uppl. í síma 17130 eða í
síma 12708 eftir kl. 7 í kvöld.
Rfkisútvarpið
auglýsir stöðu dagskrárstjóra lista- og
skemmtideildar sjónvarps lausa til umsóknar.
Starfið er veitt til fjögurra ára.
Umsóknum sé skilað til Sjónvarpsins, Lauga-
vegi 176, á eyðublöðum sem þar fást, fyrir 1.
júní nk.
BOTNLAUS
STUIH
Það hljómar ótrúlega að vefja eigi rúliutertunni upp með þurri diskaþurrku, og síðan rúlla henni i sundur er hún er
orðin köld, en þetta gekk eins og i sögu hjá okkur i „tilraunaeldhúsinu'
DB-mynd Bjarnleifur.
Súkkulaðiglassúr:
100 g suðusúkkulaði
2 msk. smjör
2 tsk. Ijóst síróp
illudropa bæöi í kökunni og einnig í
kreminu. Hráefnið í svona súkku-
laðitertu (og kremið) telst okkur til
að kosti um það bil 600 kr.
Mokkarúlluterta
Hérnakemur svo „fulloröins-kak-
an”, og er hráefnið í hana nokkuð
mikið dýrara en í hina hefðbundnu
súkkulaðitertu. Okkur taldist til að
rúllutertan kostaði tæpar 1500 kr. En
þeir sem smökkuðu á henni úr „til-
raunaeldhúsi” DB voru á einu máli
um að hún væri vel þess virði og
mjög góð.
I kökuna fara:
5 egg (við stofuhita)
1 bolli flórsykur
pínulitið salt
3 msk. kakó
Mokkafylling:
11/2 peli þeytirjómi
1/2 bolli flórsykur
3lsk. kaffiduft
Eggjahvíturnar eru þeyttar mjög
vel, helmingnum af flórsykrinum er
stráð út í og þeytt áfram þar til sykur-
inn er alveg genginn saman við hvít-
urnar. Þeytið nú rauðurnar mjög vel
(í annarri skál) eða þar til þær eru
orðnar þykkar, látið þá saltið út i og
síöan afganginn af flórsykrinum
ásamt kakóinu. Blandið nú rauðu-
hrærunni varlega saman við hvít-
urnar. Fóðrið venjulegt rúllutertu-
form aö innan með vaxpappír,
smyrjið vel með smjöri og stráið
örlitlu hveiti á pappírinn. Smyrjið
deiginu jafnt í formið og bakið við
200°C hita í 15 min.
Losið þá kantana varlega og hvolf-
iö kökunni á þurra diskaþurrku sem
kakói hefur verið stráð á. Rúllið kök-
unni saman með þurru stykkinu og
látið hana kólna alveg.
Búið nú til glassúrinn. Brjótið
súkkulaðið i smábita og látið í skál
yfir heitu vatni (ekki láta vatnið
sjóða) og látið smjörið út i. Þegar
þetta er vel bráðið er sírópinu hrært
vel saman við. Látið þetta bíða
aðeins.
Fyllingin er ekki annað en stíf-
þeyttur rjóminn, með flórsykrinum
og kaffiduftinu. Þegar kakan er
orðin vel köld er henni rúllað varlega
í sundur og fyllingunni smurt á og
kökunni síðan rúllað saman aftur.
Samskeytin eru látin snúa niður.
Loks er glassúmum smurt yfir
kökuna. Hann er dálítið þunnur og
vill því leka niður með hliðunum. —
Þetta hljómar dálítið flókið, en er
það alls ekki, þegar á hólminn er
komið og alveg óhætt að reyna að
spreyta sig.
-A.Bj.
„Ekki mikill gróði af vinnu utan
heimilisins þegar börnin eru tvö”
„Ég get ekki orða bundizt að láta í
ljósi ánægju mina með þessa „heima-
vinnandi húsmóður” sem skrifaði í
Dagblaðið núna fyrir nokkrum dög-
um um sparnað þeirra sem eru
heima.
Ég er alveg viss um að það er ekki
mikill gróði að því að vinna utan
heimilis, þegar börnin eru orðin tvö.
Ég skal ekki segja með eitt barn. Hins
vegar vinnur einn maður ekki fyrir
öllu þegar „Iifistandardinn” er eins
og hann er nú, verið að kaupa ibúð
og allt sem því fylgir.
Ég er ein af þeim sem er heima og
reyni þá að spara með því að sauma
og prjóna á börnin, fyrir utan að mér
finnst það sérlega gaman. Ég keypti
t.d. efni í axlabandaflauelsbuxur á
þrjú börn, elzt 12 ára. Það kostaði
6000 kr. Síðan náði ég í tvo búta fyrir
300 kr. (gamalt verð), sem dugðu í
tvennar buxur á þennan tólf ára.
Þarna fékk ég í fimm buxur fyrir
6.300 kr.
Ég geri mikið að því að kaupa búta
í þuxur, bæði á mig og börnin. Beztu
kaupin fmnst mér í Buxna- og búta-
sölunni Skúlagötu. Garn kaupi ég
alltaf á verksmiðjusölu Gefjunar á
100—150 kr. hespuna. Þannig fékk
ég fyrir veturinn í 3 „gammosíur”, 3
lambhúshettur, 3 vettlinga og 2 sokka
fyrir 2.530 kr.
Og svona væri hægt að telja enda-
laust.
Beztu kveðjur, Edda.”
Raddir neytenda