Dagblaðið - 09.05.1979, Side 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. MAl 1979.
.............
5
Forráðamenn bflatrygginga segja:
Það finnast vafaatriði f
gjaldskrám bflatrygginga
— sem ráðið geta 10—20 þúsund króna mun á iðgjaldi einnar bflatryggingar
„Það eru vafaatriði í gjaldskrám
bifreiðatryggingafélaganna, atriði
sem við teljum að ætti að leiðrétta og
höfum farið fram á að leiðrétta en
viðkomandi ráðuneyti hefur ekki vilj-
að fallast á,” sagði yfirmaður bif-
reiðadeildar eins af stóru tryggingafé-
lögunum í viðtali við DB. ,,Við
höfum bæði farið fram á leiðrétting-
ar á svoköliuðum áhættusvæðum,
sem landinu er skipt í, og einnig á
gjaldflokkunum sem bifreiðum er
raðað í eftir þyngd og krafti. Óskir
okkar um leiðréttingar myndu þýða
eitthvað lægri iðgjaldatekjur en samt
sem áður hefur ráðuneytið staðið á
móti breytingum.”
Nú á lokadögum greiðslu trygging-
ariðgjalda af bílum án dráttarvaxta
hafa veski margra ökumanna tæmzt
eða létzt ótrúlega við afgreiðsluborð
tryggingafélaganna. Ýmsir skilja
ekki hvað ræður flokkun bíla í gjald-
flokka og enginn skilur að nær helm-
ingsmunur skuli á tryggingaiðgjöld-
um bíla t.d. í Borgarnesi og í
Reykjavík.
Gjaldflokkar bíla hjá tryggingafé-
lögunum eru þrír, að sögn Runólfs
Þorgeirssonar hjá Sjóvá, sem er
meðal reyndustu manna í bílatrygg
ingamálum. Árum saman hefur til
grundvallar gjald flokkask ipnngunni
legið stærð, þungi og orka bílsins sem
tryggjaá.
,,í tryggingamálum eru ætíð sveifl-
ur,” sagði Runólfur, ,, og tjóna-
þunginn sýnir að iðgjöld ættu að
hækka eitthvað á millistærð bíla og
þeim stærstu en „litli bíllinn” ætti þá
að lækka í iðgjöldum. Eins er það að
þar sem mörk eru sett varðandi bila-
stærð, þunga þeirra og orku verða
ávallt einhverjir bílaeigendur nálægt
mörkunum, sumir rétt ofan við línu
sem ákvarðar iðgjald svo munar á
annan tug þúsunda og aðrir lenda rétt
fyrir neðan og sleppa því tiltölulega
vel. Við tryggingamenn höfum rætt
dæmi um slíkt og hugsanlega verða
leiðréttingar gerðar á gjaldflokka-
skiptingu.”
Runólfur sagði eirinig að verðbólga
hefði á síðustu árum eyðilagt alla vis-
indamennsku í tryggingariðgjalda-
málum og væri næstum aflögð með
öllu. Ljóst væri, ef litið væri á
áhættusvæðin þrjú sem landinu er
skipt í hvað bifreiðatryggingar
snertir, að vegna fjölgandi tjóna
þyrfti að hækka iðgjöld sérstaklega á
lægsta áhættusvæðinu, jafnvel lika í
miðflokknum.
Tillögur um breytingar voru sendar
ráðuneyti og byggðust á skýrslum
yfir 52% bilaeignar landsmanna.
Kvað Runólfur slíkan fiölda bíla
mjög marktækan til ákvaróanatöku
um breytingar. En á tillögur trygg-
ingafélaganna var ekki fallizt og taldi
Runólfur það stafa frekar af því að
tillögurnar hefðu borizt seint en að
ráðuneytið vildi ekki líta á stað-
reyndir málsins.
-ASt.
Maraþonskák á Kópavogshælinu: A
Tefldu320skákirá V
tveimur sólarhringum
Tveir starfsmenn Kópavogshælisins,
Páll Bergsson og Gísli Stefánsson,
háðu með sér maraþonskák nú um
helgina og settu nýtt fslandsmet. Sátu
þeir við taflborðið frá föstudagskvöldi
til sunnudagskvölds og tefldu hvorki
meira né minna en 320 skákir.
„Ég vann nú fleiri skákir en mótherji
minn féll líka oft á tíma með gjörunnið
tafl,” sagði Páll Bergsson i samtali við
DB skömmu eftir að maraþonsetunni
við skákborðið lauk í gærkvöld.
„Annars er það ekki aðalatriðið hver
vann heldur málefnið sem við erum að
vekja athygli á með þessu tiltæki, það
er söfnun skátanna á Stór-Reykja-
víkursvæðinu fyrir bíl handa Kópa-
vogshælinu.”
Páll kvaðst vera orðinn töluvert
vankaður eftir tveggja sólarhringa setu
við skákborðið og þurfti hann að hugsa
sig vandlega um fyrir hvert orð sem
hann sagði. Hann kvaðst ekki vilja
endurtaka þolraun sem þessa.
Með því að tefla í tvo sólarhringa
bættu þeir Gísli og Páll metið um sautj-
án klukkustundir. Fyrra met var 31
klukkustund. -ÁT-
Ríkið fær nú 144
krónur af hverj-
um bensínlítra
Bensín hefur hækkað um 115% á 12 mánuðum
Félag íslenzkra bifreiðaeigenda hefur
í fréttatilkynningu rekið upp rama-
kvein vegna nýjustu bensínhækkunar-
innar en engar fréttir fara af frekari að-
gerðum samtakanna hækkunarinnar
vegna.
FÍB sundurliðar bensínverðið
þannig: Síðasta verð Hækkun Núv. verð
Innkaup (cifl 51 26 77
Innl. skattar 121 23 144
Annar innl. kostn. 33 2 35
205 51 256
Hækkun á bensíni nú er talin af
tveim ástæðum, segir FÍB. Frá hendi
hins rússneska seljanda nam hækkunin
51% eða26 kr. álítra.
Hækkun ríkisins umfram samþykkt
fjárlög Alþingis fyrir 1979 er um 23 kr.
á lítra þrátt fyrir yfirlýsingar ráðherra
um að hækkanir á olíuvörum ættu ekki
að vera skattstofn ísl. ríkisins.
FÍB bendir á að innkaupsverð til ís-
lendinga sé nú talsvert hærra en bensin
er selt á frá smásöludælu i Bandaríkj-
unum þar sem lítrinn kostar 46—55 kr.
Sýni þetta að endurskoða þurfi frá
grunni innkaupasamninga þá sem í
gildi eru.
Bensín hefur hækkað um 115% á ís-
landi á síðustu 12 mánuðum, kostaði
119 kr. i maí í fyrra en 256 kr. nú. -ASt.
N
Lyfjaverzlunin:
GEFIZT UPP VIÐ
EINKASÖLU
Stjórnarfrumvarp um lyfjadreif-
ingu, sem kom fram í gær, gerir ekki
ráð fyrir ríkiseinkasölu á lyfjaverzl-
un. í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar sagði þó: „Athugað verði að
tengja lyfjaverzlun heilbrigðisþjón-
ustu og setja hana undir félagslega
stjórn.”
Nefnd sem vann að frumvarpinu
þótti ekki ráðlegt að fara út í mikla
þjóðnýtingu. Hún leggur til að tryggð
verði staða Lyfjaverzlunar ríkisins
sem innkaupa- og dreifingaraðila
fyrir sjúkrahús ríkisins og sveitarfé-
laga auk dvalarheimila aldraðra.
Tryggt verði að Lyfjaverzluninni
„verði ekki settur stóllinn fyrir dyrn-
ar með innkaup erlendis frá”. Þá
verði hún sett undir heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið.
í frumvarpinu er lagt til að lyfja-
sala fari alfarið úr höndum lækna.
Staðarval lyfjabúða er ákveðið og á
enginn landshluti að verða út undan,
segir þar.
aRétt spor^^"""^^
í rétta átt...
.. Sporin í TORGIÐ
Barnaskor
Stærðir28—41
Verð frá
kr. 9.300.-
Kvenskor
Stærðir37—41
Verðkr. 12.300.
Karimannaskor
Stærðir:40—46
Verðkr. 12.300.-
Skór við öll tœkifœri
á allan aldur
Póstsendum