Dagblaðið - 09.05.1979, Síða 8
8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1979.
Alvarlega horfir íatvinnumálum á Patreksfirði:
Öllu starfsf ólki sagt
upp á næstunni í hrað-
frystihúsinu Skildi
— sem er stærsti atvinnurekandi staðarins með 80—120 starfsmenn
Hraðfrystihúsið Skjöldur á Pat-
reksfirði á nú i verulegum rekstrar-
erfiðleikum og líkur eru á því að öllu
starfsfólki veröi sagt upp á næstunni.
Þá horfir mjög alvarlega í atvinnu-
málum Patreksfirðinga því Skjöldur
er langstærsti atvinnuveitandinn á
staðnum, þar eru á launaskrá 80—
120 manns eftir árstíma.
Magnús Guömundsson forstjóri
Skjaldar sagði að verkfall farmanna
kæmi frystihúsinu ákaflega illa.
Erfiðleikar hafa lengi verið í rekstrin-
um en þegar ekki er hægt að skipa út
afurðum liggur ljóst fyrir að segja
þarf upp fólkinu. Peningar eru ekki
fyrir hendi. Húsið stendur það illa
fyrir. Ákvörðun um uppsagnir
verður tekin fyrir alveg á næstunni.
Hjá hraðfrystihúsinu Skildi leggja
upp þrír stórir bátar í eigu hússins,
auk eins báts til og skuttogarans
Guðmundar í Tungu. Að sögn
Magnúsar hefur verið nær dauður
sjór frá páskum, auk þess sem þorsk-
veiðibannið gerði það að verkum að
netabátar urðu að draga net úr sjó og
togarinn að veiða fisk er ekki passaði
i vinnslu hússins.
Þá hafa svo miklar birgðir safnazt
fyrir hjá húsinu að togarinn var
sendur til Sandgerðis og látinn landa
þar. „Við liggjum með gífurlegar
birgðir af skreið, saltfiski og freð-
fiski,” sagði Magnús. „Húsið er að
verða fullt. Fyrir verkfall var gert ráð
fyrir því að skip kæmi og næði í 6—7
þúsund kassa en það varð ekki af
þvi.”
-JH.
Skýrsla OECD:
STJÓRN-
LAUS
VERD-
BÓLGA?
Hætt er viö að islenzka rikis-
stjórnin missi stjóm á verð-
bólgunni, segir i skýrslu Efna-
hags- og framfarastofnunarinnar
OECDsem birt var ígær.
OECD hvetur islenzk stjórn-
völd til að beita áfram harðri
skattastefnu og draga úr út-
lánum.
í skýrslunni segir að efnahagur
Islands ,,hafi getað ráðið við”
meiri veröbólgu en þekkist í flest-
um öðrum aðildarríkjum stofn-
unarinnar en nýtt ástand hafi
skapazt eftir 45% verðbólgu i
fyrra.
Þá segir að gangi stefna stjórn-
valda upp megi búast við 34%
launahækkunum í ár samanborið
við 55% í fyrra. Verðbólgan ætti
þáaðvera34—55%. -HH.
Guðfræðinem-
arámóti prests-
kosningum
Aðalfundur Félags guðfræði-
nema, haldinn i apríl 1979, lýsir
ánægju sinni með framkomið
stjórnarfrumvarp á Alþingi um
afnám prestskosninga. Væntir
aðalfundurinn þess að þingmenn
sjái sér fært að samþykkja frum-
varpið á yfirstandandi þingi til
þess að af megi leggjast sem fyrst
hinn mest sundrandi þáttur í
starfi prestsins.
-GAJ-
Nflstm hfmm
PLASTPOKAR
O 82655
Rýmkuð starfræksla vínveitingahúsa:
Beðið eftir blessun
dómsmálaráðherra
„Dómsmálaráðuneytið er ekkert
farið að taka afstöðu til þess ennþá
hvort vínveitingaleyfi verður rýmkað,
við vorum rétt að fá þessa áskorun
borgarstjórnar,” sagði Ólafur Walter
Stefánsson skrifstofustjóri í dóms-
málaráðuneytinu í viðtali við DB í gær-
dag.
Eins og greint var frá í blaðinu í gær
samþykkti borgarstjórn Reykjavíkur
fyrir sitt leyti að leyfa veitingahúsum
að hafa opið til kl. 03 að nóttu og um
leið að hleypa fólki inn lengur en til
23.30 eins og verið hefur. Einnig var
samþykkt að skora á dómsmálaráðu-
neyti að rýmka í samræmi við þetta
vínveitingaleyfi þannig að selja mætti
vín til hálfþrjú á nóttu.
„Dómsmálaráðuneytið þarf að
leggja blessun sína yfir þessa breytingu
á opnunartímanum því um er að ræða
breytingu á lögreglusamþykkt og í
rauninni tvær breytingar, annars vegar
á opnunartíma og hins vegar á reglum
um slit skemmtana, auk svo breytingar
á áfengislögum um þann tíma sem selja
má vín,” sagði Ólafur Walter.
Á meðan dómsmálaráðuneytið
fjallar um málið verðum við að láta
okkur nægja að dansa til tvö á nótt-
unni.
-DS.
Fjöldi f ólks heim
sótti Amarholt
BORÐSTOFUBORÐ
OG STÓLAR
WW WW rnMlvILL.IUMIML'li
SÍÐUMÚLA 2 - SÍMI 39555 STÁLHÚSGAGNAGERÐ STEINARS
„Það er búin að vera mikil umferð
hérna í dag. Við áttum von á um þrjú
hundruð gestum í heimsókn en fengum
um það bil eitt þúsund,” sagði starfs-
maður á Arnarholti er DB kom við á
vistheimilinu síðdegis i gær. Þar var
efnt til opins húss. Fólk fékk að skoða
húsakynnin, gat keypt sér kaffi og
muni sem vistfólkið hafði búið til.
Á Arnarholti eru nú 48 sjúklingar á
aldrinum frá átján ára til hálfáttræðs.
Meðalaldurinn er aðeins yfir fjörutíu
ár. Flestir þeirra eru fatlaðir eftir geð-
ræna eða vefræna sjúkdóma og einnig
eru þar nokkrir vangefnir. Nær allir
sjúklingarnir vinna og þiggja laun
fyrir. Einnig njóta þeir margs konar
endurhæfingar.
Vistheimilið að Arnarholti hefur
verið starfrækt síðan árið 1945. Eldri
húsakynnin voru reist af Thor Jensen
en í desember 1977 var tekið í notkun
nýtt hús sem stórlega var til bóta fyrir
heimilið. -ÁT-
Hvernig aðstoðar
þú sjónskerta?
Blindrafélagið hefur gefið út bækl-
ing er nefnist Hvernig aðstoðar þú
sjónskerta? í bæklingnum segir
meðal annars: „Vertu eðlilegur í um-
gengni við okkur, sem sjónskert
erum, hvorki úr hófi forvitinn né
vandræðalegur. Komdu fram við
okkur eins og venjulegt fólk. Talaðu
við okkur sjálf en ekki förunaut
okkar. Brýndu ekki raustina. Við
heyrum flest ágætlega. Heyrn og til-
finning er okkar „sjón”. Láttu því til
þín heyra . . .” Blindrafélagið hyggst
dreifa þessum bæklingi sem víðast.
-GAJ-
Námskeið fyrir foreldra
Barnaársnefnd Blindrafélagsins,
Hamrahlíð 17 Reykjavík, hefur hug á
að efna til námskeiðs fyrir foreldra
sjónskertra og blindra barna. Fyrir-
hugað er að námskeið þetta standi í
viku og hefjist 19. júní í sumar.
Meðal annars er ætlunin að veita for-
eldrum ýmsar hagnýtar upplýsingar
sem nauðsynlegar eru til þess að
tryggja eðlilegan þroska sjónskertra
og blindra barna. Ennfremur telur
nefndin það mjög æskilegt að for-
eldrar þessa barnahóps fái tækifæri
til að koma saman og til þess að ráð-
færa sig við sérhæfða blindrakennara
og aðra er eitthvað kunna að hafa til
málanna að leggja. Grunur leikur á
að nokkuð sé um sjónskert og blind
börn viðs vegar um landið sem fara á
mis við sjálfsagða þjónustu.
Barnaársnefnd Blindafélagsins
skorar því á alla þá er áhuga hafa á
þátttöku að tilkynna sig sem fyrst til
blindraráðgjafa í síma 91—38488.
-GAJ-