Dagblaðið - 09.05.1979, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1979.
9
Búnaðarmálastjóri um versta vor í 30 ár:
Fellir hjá fjárbændum ef harð-
indin haldast um nokkra hríð
— gras-, kartöf lu- og garðávaxtaplöntur líklegast með minnsta móti í sumar
„Ef þessi kuldatíð helzt fram í
miöjan mánuð fara fjárbændur-
bændur að lenda í alvarlegum vand-
ræðum af því tagi sem ef til vill eiga
sér ekki stað nema nokkrum sinnum
á öld. í kjölfar sauðburðarins lenda
þeir í vandræðum með að hýsa lamb-
fé, reynist þess þörf vegna kulda. >á
fara bændur að verða fóðurtæpir og
fóðurlausir, sem farið er að bera á
hjá stöku bændum þótt slíkt sé
hvergi orðið landshlutavandamál
enn. Kjarnfóðurskortur kann einnig
að verða i kjölfar dreifingarörðug-
leika vegna íss við landið í vetur og
farmannaverkfallsins nú. Þá er hætta
á óeðlilega miklum lambadauða, ef
nauðsyn reynist að hýsa lömbin
óvenjulengi, og ef ekki fer að vora
fyrr en seint í júní er beinlínis hætta á
felli,” sagði Halldór Pálsson búnað-
armálastjóri í viðtali við DB í gær.
Taldi hann allar likur benda til að
vorveðráttan nú hefði slæm áhrif á
grassprettu í sumar, sem hvergi væri
komin í gang nú, ekki einu sinni í
hlýjasta héraði landsins, í Mýrdaln-
um.
Vegna óvenjumikils klaka í jörðu
víðast um land nú bjóst hann einnig
við lítilli kartöflu- og garðávaxtaupp-
skeru.
Minntist Halldór vorsins 1949 sem
einhvers versta vors, nema ef vera
kynnið vorið nú. Gróður fór ekki i
gang vorið ’49 fyrr en komið var yfir
miðjan júlí en þá var klaki mun
minni í jörðu en nú og auk þess kom
þá langvarandi góðviðri er hjálpaði
gróðri fljótt á legg.
Halldór var bjartsýnn á að afrétt-
arbeit yrði með venjulegum hætti
enda tekur gróður þar ekki að vaxa
fyrr en i júní í venjulegu ári. -GS.
Stefntað beinu N-Atlantshafsflugi Flugleiða:
„Ætti ekki að hafa
neikvæð áhrif á ferða-
mannastrauminn”
— segir hótelstjóri Hótels Loftleiða
„Ég lít ekki á þetta sem alvarlegar á Alþingi í gær og segir m.a. aö ljóst
fréttir þar sem ég tel að þeir sem á sé að N-Atlantshafsflugið geti vart
annað borð hafa hug á viðkomu hér haldið áfram nema hluti þess veröi
bóki sig í þau flug sem viðkomu hafa floginn beint milli Ameriku og
hér,” sagði Erling Aspelund, hótel- Evrópu án millilendingar á Kefla-
stjóri á Loftleiðum, i viðtali við DB í víkurvelli.
gær. Tvö ráðuneyti eru nú að kanna
Þetta var álit hans á þeim kafla i horfur á leyfi til sliks flugs hjá banda-
skýrslu utanríkisráðherra er flutt var riskum flugmálayfirvöldum. _GS.
FLUGLEIÐIR AUKA
ENN FLUGREKSTUR
Þrátt fyrir margs konar erfiðleika ara, Luxair, fyrirhuga stofnun leigu-
hjá Flugleiðum þessa stundina stefnir flugfélags til farþegaflutninga, væntan-
allt á að félagið muni enn auka umsvif lega undir nafninu Aerolux.
sin í flugrekstri á næstunni, að þessu Svo sem DB hefur skýrt frá er ekki
sinni óbeint í gegnum Cargolux sem fyrirhugað að hið nýja félag skerði flug
Flugleiðir eiga þriðjung i. Flugleiða á einn eða annan hátt.
Cargolux og flugfélag Luxemburg- -GS.
Sumarstarf fyrir börn
og unglinga 1979
Bæklingurinn „Sumarstarf fyrir
börn og unglinga 1979” er kominn út
og er dreift til allra aldurshópa á
skyldunámsstigi í skólum Reykjavíkur-
borgar. í bæklingi þessum er að finna
framboð borgarstofnana á starfi og
leik fyrir börn og unglinga í borginni
sumarið 1979. Um er að ræða eftirtald-
ar stofnanir: íþróttaráð Reykjavíkur,
Leikvallanefnd Reykjavíkur, Skóla-
garða Reykjavíkur, Vinnuskóla
Reykjavíkur og Æskulýðsráð Reykja-
víkur. Starfsþættir þeir sem um getur í
bæklingnum eru fyrir aldurinn 2—16
ára. Flest atriðin snerta íþróttir og úti-
vist en einnig eru kynntar reglulegar
skemmtisamkomur ungs fólks.
Vinnuskóli Reykjavikur er starf-
ræktur fyrir þá nemendur sem setið
hafa í 7. og 8. bekk grunnskóla í borg-
inni skólaárið 1978—1979 og eiga lög-
heimili í Reykjavík. Starfstími skólans
hefur undanfarin sumur verið frá 1.
júní—1. ágúst. Sl. sumar var tímakaup
til nemenda 60% af taxta Dagsbrúnar
fyrir sömu aldursflokka en heimilt er
að greiða allt að 15% kaupauka, miðað
við afköst. Umsóknareyðublöð fást hjá
Ráðningarstofu Reykjavíkur Borgar-
túni 1 og ber að skila umsóknum um
skólavist fyrir 24. maí nk., s. 18800.
Framvísa ber nafnskírteini. Allir sem
sækja um á réttum tíma og uppfylla
inntökuskilyrðin fá skólavist.
-GAJ-
Frumvarp um bætt-
an aðbúnað sof nar
,,Ég þori ekki að reikna með að tali við DB. Frumvarp hans um bætt-
tími vinnist til að koma málinu fram an aöbúnað á vinnustöðum og aukið
fyrir þinglok,” sagöi Magrtús H. öryggi virðist því munu sofna á þessu
Magnússon félagsmálaráðherra I við- þingi. -HH.
Hveragerði
íbúð óskast til leigu. Uppl. í
síma 99-1724.
NEMENDUR í FJÖLBRAUTARSKÓLANUM MÓTMÆLA:
SUNDLAUGARBYGGINGU
FRESTAÐ EINU SINNIENN
Gunnar Bender, nemandi i Fjölbrauta-K
skólanum, afhendir Sigurjóni Péturs-^
syni, forseta borgarstjórnar, undir-
skriftalistana. DB-mynd RagnarTh.
„Við mótmælum því harðlega að
það á að fresta byggingu íþróttahúss.
Þörf á íþróttahúsi er mjög brýn.”
Þannig segir meðal annars i mótmæla-
skjali er Gunnar Bender, nemandi í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, af-
henti Sigurjóni Péturssyni, forseta
borgarstjórnar, í gær. Mótmælaskjal-
inu fylgdu undirskriftir 500 nemenda
Fjölbrautaskólans. Sigurjón sagðist
ekki kannast við að íþróttahús hefði
verið á fjárhagsáætluninni. Hins vegar
hefði verið frestað framkvæmdum við
sundlaug við skólann. Þeirri fram-
kvæmd hefði einnig verið frestað
undanfarin ár. Það byggðist fyrst og
fremst á því að sundlaugin væri ekki
ómissandi hluti af kennslurými skól-
ans. Hér væri miklu fremur um hverfis-
sundlaug að ræða og þetta hefði verið
eitt af örfáum verkefnum sem hægt Gunnar Bender sagði að nemendur
hefði verið að hægja á framkvæmdum skólans mundu fylgja málinu fast eftir.
við. Kvaðst hann mundi athuga málið. -GAJ-
Alltaf
eitthvað
nýtt
Við seljum barna-, unglinga- og dömu-
fatnað. Nýir dömukjólar í hverri viku.
Mikið úrval af blússum og bolum fyrir
dömur. Barnavesti, heil og hneppt,
stærðir 4—16. Flauelsmittisbuxur og
smekkbuxur, stœrðir 2—16. Gallabuxur,
stærðir 6—16, á aðeins kr. 5.900—6.900.
Mikið af sumarjökkum (mittis) á börn og
unglinga.
Vorum að fá mikið af frotté-fatnaði á
dömur, svo sem: vesti, boli og peysur,
heilar og hnepptar, gott í sólarlandaferð-
ina.
Póstsendum
Laugavegi 66
Sími 12815.