Dagblaðið - 09.05.1979, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. MAl 1979.
23
/2
V3
Ég dauðsé eftir að hafa verið |
að pæla í þessu sjálfur. Nú verð
ég að hringja i viðgerðai - ■—
-——ímanninn á morgun! y
Herbergi
eða einstaklingsíbúð óskast nú þegar eða
sem fyrst. Uppl. í síma 81663.
Herbergi óskast.
Snyrtilegur og reglusamur maður óskar
eftir herbergi á leigu. Uppl. í síma 21733
eftirkl. 18.
6. mán.
Hjón óska eftir íbúð á leigu í 6 mán. frá
1. júní nk. Sími 40724 á kvöldin.
Herbergi.
Reglusamur maður óskar eftir 1 herb. á
leigu. Uppl. í síma 40724 á kvöldin.
Leigusalar.
Reglusöm 28 ára stúlka óskar að taka á
leigu 2ja til 3ja herb. íbúð strax, fyrir-
framgreiðsla. Vinsamlega hringið í síma
12227 eftir kl.5.
Guðfræðinemi óskar
eftir 2ja herb. íbúð frá 1. júní. Uppl. í
síma 21037 eftir kl. 18.
FélagsráðgjaB og tónlistarnemi
með 8 ára gamlan dreng óska eftir 3ja til
4ra herb. íbúð, helzt í mið- eða vestur-
bænum, strax. Uppl. í síma 71043 eftir
kl. 8 á kvöldin.
Ung hjón f nauðum
með 3ja mán. gamalt bam óska eftir
íbúð strax í Hafnarfirði, eru á götunni.
Uppl. í síma 50197.
Ungt par óskar
eftir ibúð til leigu í eldri hverfum bæjar-
ins sem fyrst, erum mjög róleg. Fyrir-
framgreiðsla ef óskað er. Vinsamlega
hringið í síma 29017 eftir kl. 4.
Öska eftir góðrí fbúð,
má vera lítil eða stór (mætti vera í Mos-
fellssveit). Alger reglusemi, erum 3 í
heimili. Uppl. í síma 42406.
Óska eftir 5 herb. ibúð
á leigu, 4 í heimili, algjör reglusemi.
Uppl. i síma 33758 eftir kl. 7.
Ung hjón með 1 barn
óska eftir að taka á leigu litla íbúð með
sem minnstum fyrirframgreiðslum en
öruggum mánaðargreiðslum. Uppl. hjá
auglþj. DB í sima 27022.
H—526.
Atvinna í boði
Starfskraftur,
vanur buxnasaum, óskast. Últíma Kjör-
garði.simi 22206.
Vantar stúlku
til afgreiðslustarfa, kvöld- og helgar-
vinna. Uppl. í síma 54352 eftir kl. 8 á
kvöldin.
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa eftir hádegi. Uppl. á
staðnum frá kl. 4. Björnsbakarí, Hring-
braut 35.
Maður óskast
til starfa. Uppl. í síma 52922. Garðastál.
Óskum eftir að ráða
starfskraft til að starfa við málmhúðun.
Uppl. á staðnum frá kl. 14—17 daglega.
Stáliðjan Þverbrekku 6, Kóp.
Stúlka, ekki yngri en 18 ára,
óskast á heimili í Sviþjóð. Uppl. gefnar í
síma 75488 eftir kl. 5. Barbro Dahl,
Smörblommegránd 10, 16240 Valling-
by, Sverige.
Dugleg stúlka
á aldrinum 25—45 ára óskast. Þvotta-
húsið Grýta, Hátúni 4 (ekki í síma).
Kvenmaður eða karlmaður
óskast til starfa í sportvöruverzlun,
aðeins maður sem hefur reynslu í við-
leguútbúnaði og áhuga á sportvörum
kemur til greina. Uppl. milli kl. 5 og 6 í
Sportmagasíninu Goðaborg við Óðins-
torg.
Saumakonur óskast
strax, ákvæðisvinna, Klæði hf. Skipholti
7,sími28720.
Óskum eftir að ráða
stúlku til almennra skrifstofustarfa,
verzlunarskólamenntun æskileg. Uppl.
ekki gefnar í síma. Þ, Þorgrimsson og co.
Ármúla 16.
Atvinna—Mosfellssveit.
Óskum eftir kjörafgreiðslumanni eða
konu, þarf að hafa góða þekkingu á
meðferð kjötvöru, einnig stúlku til af-
greiðslu í kvöldsölu, vaktavinna, enn-
fremur konu með góða starfsreynslu og
góða þekkingu á afgreiðslu fatnaðar og
gjafavöru (vinnutími 13—18). Uppl. í
síma 66450.
Stúlka óskast i sveit.
13 ára dugleg og barngóð stúlka óskast í
sumar. Uppl. að Belgsholti hjá Sigrúnu,
sími 93—2111 um Akranes.
Vallarumsjón.
Starfsmaður óskast til að hafa umsjón
með knattspyrnuvelli ásamt búnings- og
félagsaðstöðu í Hafnarfirði. Hentar t.d.
sem aukastarf. Umsóknir sendist til
augld. DB eigi síðar en mánudaginn
14. maí nk. merkt „Aukastarf 64”.
Atvinna óskast
18ára stúlku
vantar vinnu strax, helzt á Reykjavíkur-
svæðinu. Uppl. í símum 92—7431 og
92-7672.
17 ára gamall verzlunamemi
(piltur) óskar eftir vinnu í sumar, getur
byrjaðstrax. Uppl. í sima 41829.
Óska eftir að komast að
sem aðstoðarbakari í sumar. Uppl. í síma
73987.
19árastúlku
vantar vinnu í sumar, getur byrjað
strax. Uppl. í síma 34106,
Atvinna og húsnæði
óskast fyrir hjón með 4 börn, allt kemur
til greina, bæði til sjávar og sveita. Uppl.
ísíma 17184.
34 ára maður óskar
eftir vel launuðu framtíðarstarfi, hefur
meirapróf. Uppl. í síma 44848.
19árastúlka
óskar eftir atvinnu, margt kemur til
greina. Uppl. í síma 21379.
2 skólastúlkur,
15 og 16 ára, óska eftir vinnu í sumar,
margt kemur til greina. Uppl. í síma
43103.
Áreiðanlegur ungur maður
óskar eftir að komast á samning hjá
húsasmíðameistara, er vanur bygginga-
vinnu. Uppl. í síma 92—3962. eftir kl. 7.
Strákur sem verður 16 ára
i byrjun júní óskar eftir vinnu. Margt
kemur til greina, hefur vélhjól til um-
• ráða. Getur byrjað frá og með 15 þesssa
mán. Uppl. í síma 40198.
19ára pilturóskar
eftir vinnu, allt kemur til greina. Uppl. i
síma 23708 í dag og næstu daga.
Ungur pilturá 16. ári
óskar eftir vinnu í sumar, allt kemur til
greina. Uppl. í síma 71684 eftir kl. 7.
19 ára stúlka
með gott verzlunarpróf óskar eftir vinnu
í sumar. Uppl. í síma 18269.
12ára stúlkaóskar
eftir vist í Garðabæ. Uppl. í síma
43103.
22 ára stúlka óskar
eftir vinnu á kvöldin og um helgar, flest
kemur til greina. Uppl. í síma 44258.
Óska eftir atvinnu
part úr degi og/eða á kvöldin. Uppl. í
síma41144.
Óska eftir að komast
að sem nemi í bifvélavirkjun, er tvi-
tugur, reglusamur og stundvís. Uppl. í
síma 84972 eftir kl. 7.
Ungur maður óskar eftir
framtíðarstarfi, vanur akstri ýmissa öku-
tækja og meðferð þungavinnuvéla,
getur byrjað strax. Uppl. i síma 66396
eftirkl. 16.
15 ára stúlku vantar
sumarvinnu, allt kemur til greina, gjarn-
an í sveit. Uppl. í síma 61422 (96).
Ung og ábyggileg kona
óskar eftir hálfdagsvinnu í júní og júlí.
Tilboð sendist á augld. DB merkt
„Sumarvinna 79”.
Skólastúlka
á viðskiptasviði óskar eftir vinnu, getur
byrjað strax. Allt kemur til greina. Uppl.
í síma 43846.
Ungstúlkaóskar
eftir vinnu á kvöldin og um helgar, allt
kemur til greina. Uppl. í síma 75448 eftir
kl. 5.
Óskum eftir
kvöld- og helgarvinnu, höfum bíl til um-
ráða. Uppl. í sima 53415 og 54528 eftir
kl. 7 á kvöldin.
t
Verðbréf
s
Hagkvæm viðskipti.
Innflutningsfyrirtæki vill selja vöruvíxla
og önnur verðbréf á góðum kjörum.
Tilboð merkt „Hagnaður” sendist DB
sem fyrst.
1
Einkamál
S)
Ungur fráskilinn maður
óskar eftir að kynnast konu, 22—27 ára,
er einn og einmana. Á bæði ibúð og bíl,
barn er ekki fyrirstaða, þvert á móti.
Farið verður með öll tilboð sem algjört
trúnaðarmál. Tilboð sendist til augld.
DBmerkt„28— 1979”fyrir l.júni.
I
Kennsla
8
Enskunám i Englandi.
Lærið ensku og byggið upp framtíðina,
úrvals skólar, dvalið á völdum
heimilum. Fyrirspurnirsendist í pósthólf
636 Rvík. Uppl. í síma 26915 á daginn
og 81814 á kvöldin. Ökukennsla á sama
stað, kennt á BMW árg. 78.
I
Tilkynningar
8
Foreldrar og börn ath.
Leikskóli Ananda Marga Einarsnesi 76,
Skerjafirði, getur tekið á móti 6—10
börnum til viðbótar fyrir hádegi ogsama
fjölda eftir hádegi. Góð aðstaða til
leikja, jafnt úti sem inni. Heimilislegur
blær á staðnum. Menntað starfsfólk.
Vinsamlega hringið i síma 17421 eftir
hádegi eða 81923 á kvöldin.
1
Ýmislegt
8
2500 ferm skógi vaxið land
í Þrastaskógi til leigu. Til greina kæmi
að hafa húsvagn. Tilboð sendist augld.
DB merkt „Þrastaskógur”.
14áradrengur óskar
eftir að komast á gott sveitaheimili í
sumar, er vanur sveitastörfum. Uppl. í
síma 50818.
Kvengullúr tapaðist
i gær, líklega í Tjamargötu. Fundarlaun.
Simi 75317.
Tapazt hefur
kvenmannsúr á leiðinni frá Glæsibæ í
leið 2 kl. 18.50. Vinnsamlegast skilið í SS
Glæsibæ.
Barnagæzla
8
14 ára stúlka óskar
eftir pössun í sumar, býr 1 Kópavogi.
Uppl. í síma 40466 eftir kl. 18.
Halló stelpur,
er ekki einhver 12 ára stelpa sem hefur
áhuga á að koma til Vestmannaeyja í
rúmlega mánuð að passa litla stúlku?
Uppl. eru gefnar í síma 2419 eftir kl. 7 í
kvöld.
Skemmtanir
v_______;_______>
•Diskótekið Dísa — Fcrðadiskótek.
Tónlist fyrir allar tegundir skemmtana,
notum ljósa„show” og leiki ef þess ei
óskað. Njótum viðurkenningar
viðskiptavina og keppinauta fyrir
reynslu, þekkingu og góða þjónustu.
Veljið viðurkenndan aðila til að sjá um
tónlistina á ykkar skemmtun. Höfum
einnig umboð fyrir önnur ferðadiskótek.
Diskótekið Dísa, simar 50513 (Óskar),
'52971 (Jón)og 51560.
Diskótekið Dollý
er nú búið að starfa í eitt ár (28. marz). Á
þessu eina ári er diskótekið búið að
sækja mjög mikið í sig veðrið. Dollý vill
þakka stuðið á fyrsta aldursárinu. Spil-
um gömlu dansana. Diskó-rokk-popp
tónlist svo eitthvað sé nefnt. Rosalegt
Ijósashow. Tónlistin sem er spiluð er
kynnt allhressilega. Dollý lætur við-
skiptavinina dæma sjálfa um gæði diskó-
teksins. Spyrjizt fyrir hjá vinum og ætt-
ingjum. Uppl. og pantanasími 51011.