Dagblaðið - 09.05.1979, Blaðsíða 28
Kópavogur:
FOGETILEYFÐI
EKKIDISKÓTEKID
—viljum stuðla að heilbrigðum skemmtunum segir bæjarfógeti
Krakkar í Kópavogi hafa i velur
stundað diskótek að Hamraborg 1.
Oiskódansinn hefur verið stundaður
á föstudags- og laugardagskvöldum
en þó ckki um hverja helgi. Tveir að-
ilar hafa staðið fyrir þessum diskó-
dansi og sl. laugardag aetlaði iþrótta-
félagið Gerpla aö sjá um gleðina.
Fógeti í Kópavogi greip hins vegar
inn í og leyfði ekki diskótekið á
laugardaginn. Þetta hefur valdið
óánægju unglinga og annarra er
staöið hafa að þessu diskóteki.
DB hafði samband við Sigurgeir
Jónsson bæjarfógeta i Kópavogi og
spurði hann um málið. Bæjarfógeti
sagði það rétt vera að ekki hefði verið
veitt leyfi til þessarar skemmtunar.
„Við höfum mjög viljað stuðla að
því að unglingar hér í Kópavogi gætu
skemmt sér á vínlausri skemmtun.
Leyfi voru því veitt fyrir þessum
diskótekum og gekk það mjög vel í
upphafi. Lögregluvarðstjóri gaf
þessu góð meðmæli, en ástandið
hefur farið versnandi.
Dagblaðið sagði m.a. frá skrílslát-
um eftir slíka skemmtun og því fór ég
að athuga hvað hæft væri i því. Það
reyndist rétt vera. Skemmtanirnar
hafa farið úrskeiðis hjá báðum aðil-
um.”
Þá sagði bæjarfógeti að umsókn
um leyfið heföi verið hent inn til sín
eftir viðtalstima á föstudag. Nefnt
væri fólk sem ætti aö bera ábyrgð, en
það reyndist endasleppt. Leyfið væri
ekki veitt upp á þau býti.
„En þetta er siður en svo gert af
kvikindishætti,” sagði fógeti. „Við
vildum aðeins stuðla að heilbrigðum
skemmtunum.”
-JH
Irjálst, nháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 9. MAl 1979,
ísafjörður:
Sportsigl-
ingamaður
bjargaði grá-
síeppusjó-
manni með
snarræði
SOFNAR BRUGGFRUMVARPK)
Mjög tvísýnt er um, hvort „brugg-
frumvarpið”, stjómarfrumvarp um
einkasölu ríkisins á öl- og vingeröar-
efnum, nær fram aðganga fyrir þing-
lok.
Fjármálaráöuneytið leggur þó
mikla áherzlu á að málið verði af-
greitt.
Bæði er aöeins um hálf önnur vika
eftir af þingtímanum og málið
skammt komið í meðferð þingsins og
nokkur klofningur i stjórnarliðinu
um máiið. Innan þingflokks Alþýðu-
flokksins er að minnsta kosti veruleg
andstaða við þetta frumvarp.
Magnús H. Magnússon félags-
málaráðherra tjáði DB, að hann ef-
aðist mjög um að frumvarpið næði
fram að ganga fyrir þinglok. Sú
skoðun hefur einnig komið fram hjá
ýmsum þingmönnum I viðtali viö
blaöið.
- HH
Pétur þulur
kærir fyrir
útvarpsráði
Pétur Pétursson þulur og félagar
hans í Andófi '79 hafa kært fyrir út-
varpsráði meðferð fréttastofa Ríkisút-
varps á kosningaúrslitum i BSRB. Þeir
lögðu í gær fram ósk um, að við þá
yrði rætt um úrslitin en í stað þess var
aðeins rætt við Kristján Thorlacíus for-
mann BSRB og Tómas Árnason fjár-
málaráðherra, þá sem töpuðu
kosningunum.
Pétur sagði í viðtali við DB í
morgun, að sér hefði þótt einhliða að
málum staðið fyrir kosningarnar í ríkis-
fjölmiðlunum og enn ætti að hafa sama
hátt, eftir „rassskellingu” þessara
manna.
-HH.
Kröfurfarmanna:
Tillaga Alþýðubanda-
lagsins:
3% til allra
nema há-
tekjumanna
utan BSRB
- frumvarp væntanlegt
Alþýðubandalagið vill að samþykkt
verði á Alþingi fyrir þinglok, að allir
fái 3% grunnkaupshækkun nema
hátekjumenn utan BSRB. Að öðru
leyti verði hafinn undirbúningur al-
mennra kjarasamninga sem fari fram
næsta haust.
Alþýðubandalagið undirbýr einnig
tillögur um einhvers konar hátekju-
skatt en flokkurinn hefur ekki komizt
að endanlegri niðurstöðu í því efni.
Alþýðubandalagið vill að launaþak
verði sett við laun 350—400 þúsund
krónur á mánuði. Verðhækkanir verði
ekki leyfðar nema þær leiði af erlend-
um verðhækkunum.
Þessi lög skuli gilda annaðhvort til
1. desember eða áramóta.
Ráðherrar flokksins munu á morgun
gera tillögur um þessi efni í rikisstjórn-
inni.
Ólafur Ragnar Grímsson alþingis-
maður (AB) hafði samband við DB og
óskaði tekið fram vegna ummæla sem
höfð voru eftir honum í gær um
hálaunamenn, að þar hefði hann ekki
átt við BSRB-menn.
-HH.
Snarræði sportsiglingamanns frá ísa-
firði bjargaði mannslífi á ísafjarðar-
djúpi á laugardaginn er skipstjóri af
grásleppubáti dróst fyrir borð með
netunum.
Var þar á ferð 8 tonna grásleppu-
báturinn Nonni ÍS 64. Sá sem eftir var í
bátnum, þegar skipstjórann tók út, var
viðvaningur i fyrsta túr sínum á bátn-
um og kunni ekki einu sinni á hann.
Hefði honum vafalítið ekki tekizt að
bjarga skipstjóranum í tæka tíð, þar
sem sjór var mjög kaldur.
Sportsiglingamaðurinn renndi báti
sínum í skyndi upp að skipstjóranum
og náði honum úr sjónum aðeins um
minútu eftir að hann féll útbyrðis, og er
þetta snarræði tvímælalaust talið hafa
bjargað lífi skipstjórans. -GS.
Yfir 100%
verðbólga
— á næsta ári segir
Hagdeild VSÍ.
„Það hefur ekkert gerzt í farmanna-
deilunni,” sagði Ingólfur Stefánsson
hjá Farmanna og fiskimannasambandi
íslands í morgun. „Allt situr við það
sama.”
Framkvæmdastjórn Vinnuveitenda-
sambands íslands ræddi farmanna-
verkfallið á fundi sínum i gær og þar
var m.a. lögð fram spá Hagdeildar
Vinnuveitendasambandsins um
hækkun launa, F-vísitölu og dollara-
gengis miðað við að aðeins yrði gengið
að u.þ.b. þriðja hluta þeirra krafna,
sem yfirmenn á farskipum hafa sett
fram og aðrir aðilar vinnumarkaðarins
fengju sömu hækkun launa.
Samkvæmt þeirri spá yrði verðbólgan á
næstu 12 mánuðum 107% og í septem-
ber 1980 yrði gengi dollarans 940 kr.
miðað við 333.20 í dag.
„Þá segir og í ályktun VSÍ, að „þar
sem þjóðartekjur aukast ekki á þessu
ári, geta samningar um kauphækkanir
ekki leitt til kjarabóta, heldur einvörð-
ungu aukinnar verðbólgu. . .”
„Kröfur yfirmanna á farskipum fela í
sér yfir 100% kauphækkun”.
DB bar þessa ályktun VSÍ undir
Ingólf og sagðist hann ekki trúaður á
að það setti þjóðfélagið á hvolf, þótt
farmenn fengju einhverja kauphækk-
un.
„Þegar skipafélögin taka erlend
leiguskip, skila þau yfirleitt hagnaði.
Launagreiðslur á þau skip eru samt um
100% hærri en til íslenzkra áhafna. Ég
skil því ekki barlóminn í íslenzku skipa-
félögunum.
Við höfum enda aldrei fengið upp-
gefið hve mannakaupið er stór hluti í
rekstrinum og svo virðist sem Þjóð-
hagsstofnun hafi þær tölur ekki
heldur.” -JH.
'Það er ekki nóg að þvo bara gluggana sem laða, lokka og seiða viðskiptavinina —
húsið þarf allt sitt bað.
DB-mynd: Magnús Hjörleifsson.