Dagblaðið - 11.06.1979, Síða 10
10
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 1979.
MMBUBW
Útgefandi: Dagblaðið hf.
Framkvœmdastjóri: Svoinn R. Eyjóifsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson.
Ritstjómarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjómar: Jóhannes Reykdal. Fróttastjóri: Ómar
Valdimarsson.
íþróttir Hallur Símonarson. Menning: Aðalsteinn ingólfsson. Aðstoöarfréttastjóri: Jóqas Haraldsson.
Handrit: Ásgrímur Pálsson.
Blaðamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómassop, Atli Stoinarsson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stefónsdótt-
ir, Gissur Sigurðsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Helgi Pétursson, Ólafur Geirsson, Sigurður Sverrisson.
Hönnun: Guðjón H. Pálsson.
Ljósmyndir Ámi Páll Jóhannsson, Bjamleifur Bjamloifsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurðs-
son, Sveinn Þormóðsson.
Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjóffsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorieifsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. Dreifing
arstjóri: Már E.M. Halldórsson.
Ritstjóm Síðumúlp 12. Afgreiðsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur-Þverholti 11.
Læknishjálp á vettvangi
Nokkrir menn deyja árlega á
Reykjavíkursvæðinu, eingöngu vegna
þess að sjúkraflutningum i neyðar-
tilvikum er ekki hagað eins og vera
skyldi. Þetta kom skýrt fram á
ráðstefnu, sem Borgarspítalinn hélt ;
fyrir skömmu um neyðarþjónustu.
Þórður Harðarson yfirlæknir á Borgarspítalanum,
nefndi um þetta dæmi á ráðstefnunni. Árin 1976 og
1977 voru fluttir 100 sjúklingar með stöðvað hjarta til
Borgarspítalans.
Af þeim yoru aðeins sjö endurlífgaðir með þeim
árangri, að þeir yrðu síðan útskrifaðir af spítalanum.
Eðlilegt væri, að 13—25 næðu slikum afturbata, ef
sjúkraflutningar væru með svipuðum hætti og í ná-
grannalöndunum.
Læknar og aðrir sérfræðingar í heilsugæzlu eru
sammála um, að við bráðan vanda þurfi að flytja
fyrstu læknishjálp með sjúkrabíl út á slysstað, en ekki
bíða komu bílsins til sjúkrahúss.
Meirihluti sjúkraflutninga er ekki á þessu vanda-
sama sviði. Mest eru það flutningar sjúklinga milli
stofnana. Slíka starfsemi má til hagræðingar reka hér
eftir sem hingað til frá slökkvistöð. Að öðru leyti þarf
að flytja starfsemina.
Neyðarsími sjúkraþjónustu á að svara á sjúkrahúsi,
þar sem þjálfaður hjúkrunarfræðingur getur í
skyndingu ákveðið, hvort um bráðan vanda sé að ræða
eða hvort nóg sé að senda bil af slökkvistöð.
Við þennan spítala þarf að vera neyðarbíll með sér-
þjálfuðu sjúkraliði á vakt. Sjúkraliðsmennirnir þurfa
sérstaka þjálfun, sem tekur 200—300 klukkustundir.
' Þessir menn þurfa meðal annars að kunna ráð til að
sjá um, að öndun haldist óhindruð. Ennfremur, að
hjartað haldi áfram að slá, til dæmis með notkun
hjartalyfja eða hjartaraflosttækja. Einnig þurfa þeir
að kunna að lina sársauka, til dæmis með því að gefa
lofttegundir til innöndunar.
Þriðjungur bráðra sjúkraflutninga er vegna
kransæðastíflu. Um 500 manns fá slíka stíflu á ári og
þar af stöðvast hjartað hjá um 50 manns. Annar
þriðjungur stafar af slysum og síðasti þriðjungurinn af
margvíslegum öðrum ástæðum.
í mörgum tilvikum nægir ekki, að þjálfaðir sjúkra-
liðsmenn fari einir á vettvang. Hjúkrunar-
fræðingurinn, sem svarar neyðarkallinu, þarf að
ákveða í skyndingu, hvort kveðja þurfí hjúkrunarlið
og lækna með neyðarbilnum.
Með þessum hætti væri unnt að hefja læknishjálp
örfáum mínútum eftir að hjarta sjúklingsins hefur
stöðvazt og með tilsvarandi hraða í öðrum tilvikum.
Oftast eru það fyrstu mínúturnar, sem skipta mestu
máli.
Borgarspítalinn hefur boðizt til að taka þessa
þjónustu að sér. Hann hefur boðizt til að sjá ókeypis
um kennslu sjúkraliðsmanna og að senda lækna og
hjúkrunarlið með neyðarbílnum á vettvang án auka-
kostnaðar.
Kostnaðurinn við þessa tilhögun mundi þá aðallega
felast í vinnustundum sjúkraliðsmanna á námskeiðum
og í hærri launum þeirra vegna aukinnar kunnáttu. En
sú viðbót er samanlögð mjög lítil í samanburði við
annan heilsugæzlukostnað.
Slökkvistöðin mundi missa við þetta tvo menn af
hverri vakt, þá sem færðust yfir til Borgarspítalans.
Við það yrði hún ekki eins vel mönnuð til brunavama
og áður. Á því byggist andstaða Rúnars Bjarnasonar
slökkviliðsstjóra við málið.
Á þessum tímum góðra eldvarna verður ekki séð,
að vandamál fækkunar á slökkvistöðinni vegi upp á
móti kostum flutnings neyðarþjónustunnar. Enda eru
allir, sem um málið hafa fjalláð, utan Rúnar, sammála
um hinar nýju tillögur.
____ Danmörk:
§
Fall krónunnar
/*
fyrirsjáanlegt
á næstu vikum
—vegna hinnar nýju gjaldeyríssamvinnu ríkja Efnahags-
bandalagsins verður þó að taka nokkurt tillit til hagsmuna
fleirí ríkja en aðeins Dana sjálfra
Heimildir í Danmörku fullyrða að næstu vikur eða hvort beðið verði
;kki muni líða á löngu þar til fella fram á haustið.
verður krónuna þar í landi. Ekki er Vegna aukinna tengsla þeirra rikja
þó talið víst að af aðgerðum verði nú >em í Efnahagsbandalagi Evrópu eru
/■
Kjallarinn
Lúðvík Gizurarson
Hinn 1. júni sl. gengu í gildi reglur
um verðtryggingu á innstæðum í
bönkum og þá um leið á útlánum.
Einnig er heimilað frá sama tíma að
verðtryggja skuldabréf í fasteigna-
viðskiptum.
Hér var um að ræða ákvörðun
Seðlabankans, en hún byggist á
lögunum frá í vetur um stjórn efna-
hagsmála, sem mest lætin voru út af,
þótt flestir hafi nú gleymt um hvað
var rifist, ef einhver vissi það þá. En
þetta ernúútúrdúr.
Aðalatriði þessa máls er samt
byltingin sem verður í allri starfsemi
bankanna með verðtryggingu útlána.
Það er ekki langt i það að dæmið
snúist við og bankar hér á landi þurfi
að auglýsa eftir lántakendum. Með
því hefst raunar ný öld í íslenzkum
fjármálum, verðtryggingaröld.
mun málið verða rætt á fundi ráð-
herra landanna, sem verður haldinn
16. og 17. þessa mánaðar.
Ekki er talið að um neina stór-
gengisfellingu verði að ræða hjá
Dönum en talað er um 6 til 7%. Hin
aukna gjaldeyrissamvinna ríkja
bandalagsins gerir ráð fyrir því að
þau haldi öll sömu gjaldeyrisstefnu.
Ef eitthvert landanna vill breyta
gengi sinu annaðhvort til lækkunar
eða hækkunar ber því að tilkynna
það og framkvæma innan heildar-
stefnunnar.
Sérfræðingar í dönskum banka-
málum telja að ef ekki verður af
gengisfellingunni fyrir lok þessa
mánaðar muni henni verða frestað til
haustsins. Þá er gert ráð fyrir, að
Bretar komi til samstarfs við önnur
ríki Efnahagsbandalagsins í gjald-
eyrismálum. Ef síðari kosturinn
verður valinn og málið látin bíða
fram til haustsins er þess að vænta að
gengisfellingin verði hærri en ef
gripið verði til aðgerða strax. Er þá
jafnvel talað um allt að 25% gengis-
fall dönsku krónunnar.
Að sjálfsögðu tengjast allar hug-
leiðingar um gengisfellingu öðrum
efnahagsmálum. Ráðandi flokkum í
Danmörku Vinstri flokknum og
Verkamannaflokknum hefur gengið
illa að koma sér saman um nauðsyn-
legar aðgerðir til að takmarka hinn
óhagstæða greiðslujöfnuð. Þingið
mun koma saman 26. júní næstkom-
andi til að afgreiða formlega kiör
Sömu verðmæti
tekin út og
lögð voru inn
Það hefur verið sVö ym langt
skeið að geymdur eyrir í banka hefur
verið glataður vegna verðbólgu en
einu sinni auglýsti banki hér:
„Græddur er geymdur eyrir”. Þess-
ari auglýsingu var hætt þar sem hún
var augljóslega fölsk og röng.
Nú má bráðum taka þessa gömlu
auglýsingu upp aftur og hún fer að
veraífullugildi.
Það verður bylting í íslenzkum
fjármálum þegar Iánsfé verður nóg
og það borgar sig orðið að spara. Það
getur jafnvel farið svo að við
íslendingar hættum að taka
eyðslulán erlendis þar sem nóg verður
af íslenzkum peningum til að taka að
láni í bönkum hér á landi.