Dagblaðið - 11.06.1979, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 11.06.1979, Blaðsíða 15
15 I Iþróttir Iþróttir DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 11. JÚNÍ1979. I Iþróttir Iþróttir ■ ■ ■ Skúli reynir við Norðuriandametið i gær. DB-mynd Ragnar Th, SKUU MISSTINIÐUR NORDURLANDAMEÍID Þrattur vann á Akureyri - Sanngjam sigur Reykjavíkuiiiðsins á KA Þróttur er greinilega að rífa sig upp úr þeirri laegð, sem liðið var í í fyrstu leikjum íslandsmótsins. í gær vann Þróttur sanngjarnan sigur á KA á Sanavellinum á Akureyri, 0—2. Höfuðmunurinn á liðunum lá i því að Þróttarar voru fljótari á knöttinn og börðust betur. Náðu yfirtökum á miðjunni. Þeir léku undan sterkri sunnangolu í fyrri hálfleik og skoruðu þá tvívegis. Þróttur fékk óskabyrjun og eftir aðeins fimm min. lá knötturinn í marki KA. Það var klaufalegt mark KA- manna. Steinþór Þórarinsson, bak- vörður KA, fékk tækifæri til að hreinsa frá marki en tókst ekki betur til en að senda knöttinn í eigin stöng. Þar rann boltinn fyrir markið og þegar Haraldur Haraldsson, miðvörður, ætlaði að spyrna frá lagði hann knöttinn beint fyrir fætur Jtjþanns Hreiðarssonar, sem kominn var í sókn Þróttar, og Jóhann gat ekki annað en skorað. Þremur min. síðar munaði litlu að Þróttur skoraði aftur. Baldur Hannes- son átti skot í þverslá og aftur fyrir — skot frá vítateig. En á 24. mín. komst Þróttur í 2—0. Baldur tók hornspyrnu vel — spyrnti yfir á stöngina fjær. Þar kom Ársæll Kristjánsson og skallaði í þverslá. Knötturinn hrökk út í teiginn fyrir fætur Sverris Brynjólfssonar, sem skoraði auðveldlega, alveg óvaldaður. Markverði KA urðu á mistök að ná ekki knettinum úr hornspyrnunni — var of framarlega. Á 41. mín. fékk KA eina færi sitt í fyrri hálfleiknum. Jóhann Jakobsson kastaði sér fram og skallaði knöttinn rétt framhjá marki Þróttar. Leikmenn KA voru seinir í gang i leiknum. í síðari hálfleik lék KA undan vindinum og sótti mjög utan það að á sjöundu mín. átti Þróttur skot ofan á þverslá úr aukaspyrnu Á 56. min. fékk Njáll Eiðsson knöttinn frír, aleinn, í vítateig Þróttar en skaut hátt yfir. Sannkallað dauðafæri. Rétt á eftir var fyrst bjargað frá Gunnari Blöndal — síðan Óskari Ingimundarsyni. Pressa KA var þung og á 63. mín. átti Gunnar skalla í þverslá Þróttar-marksins — frá markteig. Þar var illa farið með gott færi. Sending frá Elmari Geirssyni og á 70. mín. komst Elmar i dauðafæri en spyrnti knettinum himinhátt yfir Þróttar-markið. Leikmenn Þróttar voru jafnir í leiknum — Jóhann Hreiðarsson og ÁrsælJ Kristjánsson beztir. Hjá KA var Einar Þórhallsson yfirburðamaður. Áhorfendur voru milli siö og átta hundruð. Dómari Ingi Jónsson og dæmdi þokkalega. -St.A. r —Fjögur Islandsmet í kraftlyftingum „Höndin opnaðist hjá mér og ég missti niður Norðurlandametið i rétt- stöðulyftu einmitt þegar dómarínn ætlaði að fara að dæma lyftuna lög- lega. En ég er ánægður með þetta — er að byrja æfingar aftur og var aðeins 12 kg frá mínu bezta samanlagt. Ég er að byggja upp fyrír Norðurlandamótið i september. Miða allt við að vera í sem beztri æfingu þá — og öxlin er að lag- ast,” sagði Skúli Óskarsson cftir að hann hafði reynt að lyfta 307.5 kg í réttstöðulyftu á íslandsmótinu i kraft- lyftingum í Laugardalshöllinni i gær. Norðurlandametið er 305 kg og greini- legt að það fellur fljótt fyrir Skúla. Hann heldur á föstudag til Englands og tekur þátt í opna brezka meistaramót- inu í Birmingham á sunnudag. Fjögur íslandsmet voru sett á mótinu í gær. Kristján Kristjánsson, ÍBV, setti íslandsmet í hnébeygjulyftu í 60 kg flokki. Lyfti 157.5 kg, en eldra íslands- metið var 150 kg. Gunnar Steingríms- son, ÍBV, setti tvö íslandsmet í 90 kg flokki. 272.5 kg i hnébeygjulyftu og 300 kg í réttstöðulyftu en eldri metin voru 270 kg og 292.5 kg. í yfirþyngdar- flokki setti Arthúr Bogason, ÍBA, íslandsmet í réttstöðulyftu, 332.5 kg. íslandsmeistarar í einstökum flokk- um urðu: í 52 kg flokki Gísli Valur Einarsson, KR, lyfti samtals 260 kg. í 60 kg flokki Kristján Kristjánsson, ÍBV, með samanlagt 405 kg. í 67.5 kg flokki Hörður Markan, Á, lyfti samtals 507.5 kg, en Kári Elísson, ÍBA, féll út. f 82.5 kg flokki varð Skúli Óskars- son, UÍA, íslandsmeistari, lyfti samtals 710 kg. í 90 kg flokki varð Gunnar Steingrímsson, ÍBV, íslandsmeistari með 732.5 kg samanlagt. í 100 kg flokki varð Guðmundur Sigurðsson, Á, íslandsmeistari með 685 kg. í 110 kg flokki varð Óskar Sigurpálsson, ÍBV, íslandsmeistari. Lyfti samtals 820 kg og í þyngsta flokknum varð Arthúr Bogason, ÍBA, íslandsmeistari með 805 kg. Taugar Sveins brugð- ust á lokaholunni —og Sigurður Haf steinsson vann Dunlop-keppnina í Leirunni Dunlop keppnin svonefnda, fór fram í Leirunni um helgina í miklu vatns- veðri — einkanlega í gærdag, en þá var nær stanzlaus rígning. Keppnin var mjög jöfn og spennandi og úrslit réðust ekki fyrr en á allra síðustu holunum. Eftir fyrri daginn leiddu þeir Sigurður Hafsteinsson, GR, og Þorbjörn Kjær- bo, hinn síungi, báðir á 75 höggum. Fast á hæla þeirra komu svo þeir Barry Lane, sem keppti þarna sem gestur, og Sigurður Pétursson á 76 höggum. I gær náðist örlítið slakari árangur, enda hafði veðrið slæm áhrif á kepp- endur. Þegar 27 holum var lokið var Sveinn Sigurbergsson, GK, kominn með forystu, en hann missti hana niður á lokaholunni er hann fór útaf braut- inni og fór holuna á 7 höggum — 3 yfir pari. Sigurður Hafsteinsson hélt hins vegar sínu striki og sigraði í keppninni á 152 höggum — fór síðari daginn á 77 höggum. Barry Lane varð í 2.-3. sæti ásamt Sigurði Péturssyni, GR, á 153 höggum. í fjórða sæti kom svo Þor- björn Kjærbo á 155 höggum, en í 5.— 6. sæti urðu jafnir Sveinn Sigurbergs- son og Björgvin Þorsteinsson á 156 höggum. Sveinn er úr GK en Björgvin frá Akureyri. Þetta er fyrsta mótið i vor þar sem Björgvin er á meðal fremstu manna, en hann hefur verið í erfiðum prófum í Háskólanum að undanförnu. i keppninni með forgjöf sigraði Gunnar Schram, GS, á 138 höggum nettó (með 23 í forgjöf)- í öðru sæti varð Ægir Magnússon, Selfossi, á 143 nettó (22 í forgjöf) og þriðji varð Jóhann Jósepsson, GS, á 145 nettó (6 í forgjöf). Dunlop umboðið veitti þarna mjög vegleg verðlaun og alls kyns aukaverðlaun að auki þannig að margir fóru ánægðir heim þrátt fyrir rigning- una og kalsann. -SSV EMíkörfu Evrópumeistaramótið i körfuknatt- leik karla hófst á ítaliu á laugardag. Úrslit í þeim leikjum, sem háðir hafa erið. Tékkóslóvakía-Grikkland 74—67. Spánn-Hoiland 105—83, Frakkland- ísrael 92—83. Sovétríkin-Búlgaría 104—71. Ítalía-Belgía 86—76 og Júgóslavía-Pólland 102*95. Samkvæmt rannsóknum sem Rannsóknastotnun byggingariónaöarins hefur gert á steypuskemmdum og sprungumyndunum á húsum, hefur komlö i Ijós aö eina varanlega lausnln til aö koma í veg fyrir leka og áframhaldandi skemmdir, er aö klæöa þau alveg tll dæm meö álklæöningu. A/klæöning er seltuvarin, hrindir frá sér óhreinindum, og þolir vel íslenska A/klæöning er fáanleg i mörgum litum sem eru innbrenndir og þarf aldrei aö Leltiö nánari upplýsinga og kynnist möguleikum A/klæðningar. Sendiö teikningar og við munum reikna út efnisþörf og gera verðtilboð yöur aö kostnaöarlausu. FULLKOMIO KERFI TIL SÍÐASTA NAGLA INNKAUP HE ÆGISGÖTU 7, REYKJAVÍK - SÍMI 22000 - PÓSTHÓLF 1012. TELEX 2025 - SÖLUSTJÓRI: HEIMASÍMI 71400.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.