Dagblaðið - 11.06.1979, Side 35
DAGBLAÐIC MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 1979.
£
Utvarp
Sjónvarp
D
HJÓNABAND - sjónvarp kl. 21,35:
Eiginmaðurinn
ástfanginn fram hjá
Hjónaband nefnist norskt sjón-
varpsleikrit sem sýnt verður í kvöld kl.
21.35, byggt á smásögunni Knut Tand-
berg eftir Amalie Skram.
Amalie Skram er vel þekktur
höfundur og hefur sjónvarpið áður
sýnt verk eftir hana. Má þar nefna
leikritið um Elsu Kant en það leikrit
vakti mikla athygli hér er það var sýnt.
Handrit að leiknum gerðu Erna
Ofstad og Eli Ryg sem jafnframt
leikstýrði. Aðalhlutverk leika þau
Marit Grönhaug og Jan Haarstad.
Leikritið fjallar um hjónaband, eins
og nafnið bendir til, þeirra Knúts og
Birgittu Tandbergs. Birgitta málar i
frístundum sínum en Knútur spilar á
píanó. Þau hafa engan áhuga á
störfum hvors annars en kjósa að fara
eigin leiðir.
Knútur er mikið upp á kvenhöndina
en sjaldnast er nokkur alvara að baki
ástarævintýra hans. Þó kemur að því
ELÍN
ALBERTS
DÓTTIR
35
rv
GLUGGASMIDI
Tek að mór smíði á öllum g/uggum i hús yðar og
sva/ahurðum.
Fast tilboð.
Vönduð vinna og fullkomnustu vólar sem völ er á til
gluggasmíði.
Upplýsingar í síma 11253kl. 9—12f.h.og eftir kl. 18.
NES-GLUGGAR
örn Felixson,
[._____ Llndarbraut 19, Seltjarnamesl. 'Á
Marit Grönhaug og Kaare Kroppen.
að hann verður alvarlega ástfanginn.
Lýsir leikritið siðan hvernig þau hjón
ganga frá sínum málum.
Þetta leikrit er bæði vel Ieikið og vel
gert, að sögn þýðanda, svo óhætt ætti
að vera að mæla með þvi.
Dóra Hafsteinsdóttir er þýðandi en
myndin er um klukkustundar löng.
MORGUNSTUND BARNANNA - útvarp í fyrramálið kl. 9,05:
HÖLUN BAK VID
HAMRANA
— eftir Armann Kr. Einarsson
í morgun byrjaði Ármann Kr.
Einarsson lestur á ævintýri sínu, Höllin
bak við hamrana, i Morgunstund
barnanna kl. 9.05.
Ármann samdi þetta ævintýri sitt
fyrir 40 áruni og varð það strax vinsælt
enda seldist það uppl Það verður þó
endurútgefið í fyrsta bindi ritsafns
Ármanns sem kemur út á næstunni.
„Það má segja að ævintýrið sé i
þjóðlegum stil, temað i því er bragð á
milli góðs og ills og auðvitað ber það
góða hærri hlut eins og í sönnum
ævintýrum,” sagði Ármann.
Ævintýrið fjallar um leiksystkin sem
verða ósátt. Drengurinn yfirgefur
bæinn i reiði sinni og villist inn á öræfi.
Þar hittir hann fyrir tröllkarl einn sem
tekur hann til fanga.
Tröllkarlinn á töfragler svo drengur
getur ekki strokið frá honum. Þó
kemur að þvi að drengurinn nær
glerinu og kemst burt.
Þá lendir hann í álfabyggð, þar sem
álfakonungurinn er nýdáinn. Hann er
gerður að álfakóngi og giftist álfa-
prinsessu. Þó er hugur hans alltaf hjá
mönnunum og hann er ekki ánægður
fyrr en hann er kominn í mannheim á
ný.
Ármann sagðist vita til að þetta
ævintýri væri'vinsælt hjá börnum og
væri mikið lesið á skólabókasöfnun.
„Ævintýri örva hugmyndaflug
Ármann Kr. Einarsson mun í fvrramálið og næstu morgna iesa 40 ára gamalt
ævintýri sitt.
krakka og eru þroskandi fyrir þá,”
sagði Ármann, ,,og auðgar þeirra hug-
arheim, þeir fá eitthvað til að hugsa
um.”
DB-mynd Sv. Þ.
Ármann heldur áfram að lesa sögu
sína i fyrramálið kl. 9.05 og næstu
morgna.
-ELA.
Tækniþjónusta á
sviði plastiðnaðar
Jorolov Holten, ráðgjafi við Tæknistofnun ríkisins í
Osló, heldur erindi um tækniþjónustu við plastiðnað í
Noregi í Iðntæknistofnun íslands, Skipholti 37,
Reykjavík, miðvikudaginn 13. júní nk. kl. 17.00.
Stjórnendum og tæknimönnum plastiðnaðarfyrirtækja
er sérstaklega boðið að hlýða á ráðgjafann.
Iðntæknistofnun íslands.
FJÖLBREYTT ÚRVAL
AF KÚPLUM
HEIMTUGIR í ELDHÚS, BÖÐ,
GANGA OG ALLS STAÐAR
ÞAR SEM GÖÐRAR
LÝSINGAR ER ÞÖRF
HAGSTÆTT VERÐ
PÓSTSENDUM
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
LJÓS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
sími 844 88
PERMANENT KLIPPINGAR BARNAKLIPPINGAR
LAGNINGAR BLÁSTRAR LITANIR GERUM GÖTI EYRU
SÍMI24596
RAGNHILDUR BJARNADÓTTIR
HJÖRDlS STURLAUGSDÓTTIR
frfálst, úháð dagblað
M0TTAKA SMÁAUGLÝSINGA
í SUMAR
MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA KL. 9-22
LAUGARDAGA KL 9-14.
SUNNUDAGA KL18-22.