Dagblaðið - 13.12.1979, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1979.
13
Erlendar
fréttir
sagnaum
fyrirætlanir
í starf smanna-
haldi
Verkalýðsleiðtogar tíu Vestur-
Evrópuríkja þar sem fjölþjóðafyrir-
tækið ITT hefur starfsemi kröfðust
þess af ríkisstjórnum landa sinna að
þær settu fyrirtækinu þá kosti að upp-
lýsa um áætlanir sínar varðandi starfs-
menn.
Ákvörðun þessi var tekin á fundi á
vegum Alþjóðasambands málmiðnað-
armanna sem haldinn var í Genf eftir
að ITT (International Telephone og
Telegraph Corporation) fækkaði
starfsmönnum í fyrirtækjum sínum í
Vestur-Þýzkalandi, Bretlandi, Noregi
og Portúgal. ITT hefur aðalskrifstofur
i New York en rekur starfsemi í rúm-
lega þrjátíu löndum, víðs vegar um
heim.
Á fundinum i Genf var ITT sakað
um að hafa hámörkun hagnaðar síns
fremur að leiðarljósi en velferð starfs-
manna. Formaður Alþjóðasambands
málmiðnaðarmanna sagði að krafan
um upplýsingar frá ITT væri fyrsta
raunverulega tilraunin til að fá fjöl-
þjóðafyrirtækið til að viðurkenna víð-
tæk völd sín og jafnframt viðurkenna
þá ábyrgð sem þau legðu fyrirtækinu á
herðar.
Viðurkennt er af forustumönnum
ITT að það lagði fram verulegan
stuðning til að steypa ríkisstjórn
Allendes i Chile, þegar fyrirtækinu
þótti hagsmunum sínum þar í landi
hætt.
Skákmótið
íBuenos Aires:
Larsen búinn
að tryggja sér
sigurinn
Danski stórmeistarinn Bent Larsen
hefur þegar tryggt sér sigur á skák-
mótinu í Buenos Aires þó að tveim um-
ferðum sé enn ólokið. Eftir elleftu
umferöina, þar sem Larsen gerði jafn-
tefli við Gheorghiu frá Sovétríkjunum í
48 leikjum, hefur hann 2,5 vinninga
forustu.
Najdorf frá Argentínu komst í
annað sæti með því að sigra landa sinn
Tempone en þriðji Argentínumað-
urinn, Quinteros, sigraði Miles frá
Bretlandi. önnur úrslit i elleftu umferð
urðu þau að Petrosjan sigraði Panno,
Andersson geröi jafntefli .við Ivkov,
Spassky vann Lombardy og skák
Franco frá Paraguay og Rubinetti frá
Argentínu fóríbið.
Staðan eftir ellefu umferðir er þá
þessi: Larsen 9,5 Najdorf 7, Miles 6,5
og Spassky, Quinteros og Andersson
með 6 vinninga hver.
Hneyksli á geðsjúkrahúsi í Noregi:
Læknirinn hafði kyn
mök við siúklinginn
Geðlæknir einn í Noregi hefur
verið rekinn úr stöðu sinni sem
aðstoðaryfírlæknir við geðsjúkrahús
nærri Bergen eftir að upp komst um
kynmök hans og eins af kvensjúkl-
ingunum ásjúkrahúsinu. Heilbrigðis-
yfirvöld líta að sögn mál þelta mjög
alvarlegum augum og hafa vísað
málinu til norska saksóknarans um
nánari ákvörðun um meðferð.
Læknaráð viðkomandi sjúkrahúss
áleit málið svo alvarlegt, er það kom
til afgreiðslu þess, að það vísaði
lækninum samstundis úr starfi. Skal
það gilda í það minnsta þar til rann-
sókn er lokið. Læknirinn hefur nú
tekið við starfi á öðru geðsjúkrahúsi.
Nafn geðlæknisins, sem er 45 ára,
hefur ekki verið gefið upp. Hann
hafði starfað i fjögur ár á viðkom-
andi sjúkrahúsi. Var hann sagður
mjög vinsæll meðal starfsfólks og
sjúklinga. Kom það því mjög á óvart
er upp komst um hin nánu mök sem
hann hafði haft við kvensjúklinginn.
Engin ákæra hefur verið gefin út á
hendur lækninum. Ekki mun neinn
aðili heldur hafa kært hann fyrir
verknaðinn. Mun það alfarið verða
ákvörðun norska saksóknarans hvort
eitthvert mál verður höfðað eða mál-
iðafgreitt áannan hátt.
50. Ibt, 41. árg. 13. di'sembw 1070,
Hressilegt víðtai
við Axel í Vikunni í dag
Samantekt
Jónasar
Kristjánssonar
segir Axel Clausen.
Hann er 91 árs
á 21 barn,
— það yngsta níu ára
Urdráttur
fjórum jól