Dagblaðið - 28.01.1980, Síða 6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 1980.
Cannes-faramir koma heima í kvöld:
Sömdu um útgáfu á íslenzku
poppi í þremur löndum
— og það f jórða
í deiglunni
1 kvöld koma íslenzkn
popplónlislarmenirnir, sem i siðuslu
*viku tóku þátt í alþjóðlegu tónlistar-
og hljómplöturáðstefnunni MIDEM
'80 í Cannes í Frakklandi.
Einn listamannanna, Björgvin
Halldórsson söngvari, kom hcim á
laugardaginn og sagði hann í samtali
við DB i gær að það hefði nú gerst í
fyrsta skipti, að ákveðið væri að gel’a
út íslen/ka popptónlist á erlendum
markaði.
„Viðgerðumsamninga um útgál'u
á litlum plötum með Brunaliðinu,
Hl H-flokknum og mér sjálfum í
þrcmur löndum og aðeins á eftir að
reka smiðshöggið á samning um út-
gál'u i fjórða landinu. Þetta eru
Kanada, þar sem gefnar verða út
þrjár litlar plötur, Finnland, þar sem
gefnar verða út að minnsta kosti
tvær, fjórar koma út i Perú og að
líkindum ein á Spáni,” sagði
Björgvin.
Hann sagði að hljómsveitirnar
hcfðu fengið góðar viðtökur á
ráðstefnunni, þar sem þær skemmtu
þrjú kvöld á kunnum næturklúbbi og
hefði íslenzkri popptónlisl verið sýnd
rnikill áhugi. Auk þeirra fjögurra
plötufyrirtækja, sem myndu gef'a út
nefndar plölur, hefðu fjölmargir
aðrir óskað eftir að heyra meira af
islenzkri tónlist og talið hana standa
ýmsu því, sem efst væri á baugi, síst
að baki.
„Þetta gekk þvi vonum framar,"
sagði Björgvin Halldórsson, „og það
er loks orðið að veruleika, að íslensk
popptónlist verður gefin út erlendis.
Svo er bara að sjá hvernig til teksl —
það veltur á þessum erlendu fyrir-
tækjum.”
i kvöld verður flull i Radio
l.uxembourg viðtal við hljóm-
sveitarstjóra Brunaliðsins, Magnús
Kjartansson, og leikin verða lögin,
sem gefin verða út ytra. -ÓV.
íslenzku popptónlistarmennirnir í Cannes fagna útgáfu laga sinna í Kanada ásamt Alex Groshak (þriðji frá vinstri), for-
stjóra V-Records og Sunflower International Records í Kanada, en lög með Brunaliðinu, HLH-flokknum og Björgvin
Halldórssyni verða gefin út af fyrirtæki hans í Winnipeg. -DB-mynd: ÓV.
—.-W—.11 r . ............
Ragnhildur Guðbrandsdóltir tekur fyrstu skóflustunguna með hjálp góðra
manna. Hún er vel ern, þráll fyrir háan aldur.
DB-mynd RagnarTh.
Nýja hjúkrunarheimilið í Kópavogi:
Tók fyrstu skóflu-
stunguna 101 árs
Elzti ibúi Kópavogs, Ragnhildur
Guðbrandsdóttir 101 árs tók á laug-
ardag fyrstu skóflustungu að hinu
nýja hjúkrunarheimili fyrir aldraða i
Kópavogi. Var það vel við hæfi.
Hcimilið verður að mestu rcisl fyrir
söfnunarfé Kópavogsbúa sjállra.
Battkar eru á hverju heimili í Kópa-
vogi og gengur söfnunin vel.
Heimilið verður lyrsla sérhannaða
hjúkrunarheimili á landinu. Það
verður tæpir 1500 fermetrar að stærð
og rúmar 38 vislmenn. Fullgert mun
hcimilið kosta um 40 milljónir króna.
-JH.
„Stereósníkir” góm-
aður við iðju sína
Þekktur óknyttamaður og þjófur
gekk í net Reykjavíkurlögreglunnar I
norðanverðu Hliðahverfi á laugardags-'
morgun er hann var við þá iðju sína að
stela verðmætum úr íbúðum, stereo-
tækjum í þetta skiptið.
Snemma morguns fór hann að brjót-
ast inn í kjallaraíbúðir í hverfinu í leit
að verðmætum, en alls staðar var fólk
heima svo hann hraktist á flótta án ár-
angurs.
Tóku lögreglunni nú að berast fréttir
af manninum og kom hún upp neti lög-
reglumanna, sem hófu leit er stóð I á
annan klukkutima.
Þátttakendur i þeirri aðgerð sáu svo
hvar maður var að troða stereotækjum
ofan i poka í kjallaraibúð í Stórholti og
var þar þrjóturinn fundinn. Enginn
hafði verið þar heima og hafði þjófur-
inn því næði til iðju sinnar fyrir heima-
fólki, en uggði ekki að lögreglumönn-
unum.
- GS
Gullver NK:
Vatní
vélar-
rúmið
Það óhapp varð i Seyðis-
fjarðartogaranum Gullveri á
laugardag að vatn komst í vélar-
rúm hans. Togarinn verður þvi
frá veiðum i nokkra daga. Unnið
var við að setja vatn um borð er
óhappið varð. Vatninu var strax
dælt upp úr vélarrúminu og er
unnið að lagfæringum.
- JG Seyðisfirði.
Barsmíð á
Laugavegi:
Barði
hjón til
óbóta
Maður veittist að hjónum á
gangi á Laugavegi aðfaranótt
laugardagsins og kom til handa-
lögmála á mílli hans og konunnar
í fyrstu. Þótti eiginmanninum
nóg um og hugðist ganga á milli,
en þá sló árásarmaðurinn hann
umsvifalaust í götuna svo hann
hlaut áverka af. Á meðan komsl
konan undan og kallaði á lög-
reglu, sem kom á svipstundu og
greip árásarmanninn. Einnig sér á
konunni eftir átökin.
- GS
Ætluðu að
hertaka
lögreglu-
stöðina
Tveir drukknir menn höfðu
uppi tilburði til að yfirbuga eina
Iögregluþjóninn sem staddur var
á lögreglustöðinni i fyrrinótt og
þar með að hertaka stöðina.
Hinir þrír lögregluþjónarnir voru
að sinna útkalli.
I.ögregluþjónninn var þó ekki
á þvi að láta sinn hlut, tók annan
ntanninn og hélt honum, en átti
þó eftir nægilegl svigrúm til að
stökkva hinum á flótta.
Þegar hann var flúinn var
félagi hans læstur á bak við lás og
slá og lögreglumaðurinn sat sina
vakt eins og ekkert hefði i skorizt
þegar hinir komu úr útkallinu.
-GS.
Finnair-Fokkerarnir komnir
Fokkerarnir, sem Finnair keypti i
Seul í Kóreu, kom til Reykjavikur á
föstudagskvöld. Islenzkir flugmenn
tlugu vélunum og munu Flugleiðir sjá
um nokkrar breytingar á þeini.
Flugleiðir og Finnair keyptu i
sameiningu fjórar Fokker vélar og
konia vélamar sem Flugleiðir eignast
fljótlega í febrúar. Þessar tvær vélar
hafa verið nokkuð lengi á leiðinni, en
þær lögðu af stað frá Seul 12. janúar.
-DB-mynd Hörður.
Akureyri: siökkvibílliiin fær loks inni
„Það er alveg að ganga saman i
samningum um húsnæði undir gamla
slökk vibilinn og verður hann
væntanlega geymdur í nýbyggingu
Hjólbarðaþjónustunnar,” sagði Gísli
Lárusson, aðstoðarslökkvistjóri á
Akureyri, í samtali við DB í gær.
Svo sem DB skýrði frá fyrir
skömmu hefur bíllinn verið á
hrakhólum utandyra, þrátt fyrir
mikla eftirgrennslan slök kviliðsins
eftir húsnæði. Var tækjabúnaður
hans byrjaður að skemmast af þeim
sökum.
-GS.