Dagblaðið - 04.02.1980, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR4. FHBRÚAR 1980.
^llafossbúöin
VESTURGÖTU 2 - SÍMI 13404
OG VERSLANIR UM LAND ALLT
Eingirni
nýir og glæsilcgir litir
Mögulcikamir með eingimið em
ótal margir og með nýju litunum
hafa þeir aukist enn frekar, bæði
fyrir handprjón og vélprjón.
16 mismunandi litir og uppskriftir
Leitaðu óhikað hollra ráða -
Við munum gera okkar allra besta.
Natur og brúnir
Stærðir:
35-39kr. 20.500.-
40-46kr. 21.500.-
Lóttirog
þægilegir
halskir sportskór
fyrir konur og karla
í dökkbrúnu
Stærðir:
36-40kr. 27.300.-
Dönsku fótlagaskórnir
komnir aftur
41-45 kr. 28.800.-
PÓSTSENDUM
SKÓBÚÐIN LAUGAVEG1100
SÍM119290
AF HESTBAKIA SLYSADEILD
Hestasportið krefst sinna fórna, eins
og öll önnur tómstundaáhugamál sem
mannfólkið stundar. Á laugardaginn
datt kona af hestbaki i Selásdal ofan
við Reykjavík og handleggsbrotnaði
við fallið. Sjúkraflutningamenn komu
fljólt á vettvang og komu hinni slösuðu
undir læknishendur. Ljósmyndari DB
var jieim jafnfljótur á staðinn og sýnir
rnyndin er hestakonan var lögð á bör-
urnar. Reiðskjótarnir virðast fylgjast
allspenntir með. - DB-mynd Sveinn.
Fékk strætisvagn yfir ristina
— og slapp með mar
Niu ára gömul telpa varð fyrir
strætisvagni við Hlemmtorg á níunda
límanum á laugardagskvöldið. Er að
var komið lá telpan inn undir
vagninum og hafði eitl hjóla vagnsins
farið yfir rist telpunnar.
Það furðulega varð að telpan er
óbrotin eftir, en mikið marin á rist og
einnig á báðum hnjám.
Að því er DB var tjáð er þetta i
þriðja sinn sem þessi sama telpa verður
fyrir bíl og í öll skiptin hefur hún slopp-
ið með skrekkinn, aðeins hlotið minni
háttar meiðsli.
-A.St.
Marmaramadurim
Kvikmyndahótíö í Regnboganum: Marmara-
maðurinn (1977).
Leikstjóri: Andrzej Wajda.
Aðalhiutverk: Krystyna Janda og Jerzy
Radziwilkowicz.
Kvikmyndahátíðin var opnuð með
sýningu á Marmaramanninum eftir
Andrzej Wajda. Áætlað var að fá
hann til landsins sem gest hátiðar-
innar en af því varð ekki. Wajda er
einn merkasti leikstjóri Pólverja í dag
og á Marmaramaðurinn ekki lítinn
hlut i þeim titli. Það er eðlilegt þar
sem hér er á ferð mynd i háum gæða-
flokki. Wajda átti í erfiðleikum með
að fá þessa mynd sýnda í sínu heima-
landi.
Söguþráður
Það er ekki að undra þar sem
myndin beinist einmitt gegn því ríkis-
forræði sem ríkti á 6. áratugnum í
Póllandi. Og þegar horft er á mynd-
ina læðist að manni sú tilfinning að
Wajda. sé einmitt að færa þessa
hugsun yfir á pólskt þjóðfélag i dag.
Marmaramaðurinn segir frá stúlku,
Agnieszku, sem er að útskrifast úr
kvikmyndaskóla. Sem skólaverkefni
ráðgerir hún að gera mynd unt hinar
frægu verkamannahetjur 6. áratugar-
ins og lýsa þannig því andrúmslofti
Kvik
myndir
IngótfurHjörieifsson
sem ríkti í Póllandi eftir siðari heims-
■styrjöldina. Hún hefur gagnasöfnun
og rekst þá á styttu af „fyrirmyndar-
verkamanni”, Mateusz Birkut, sem
af einhverjum orsökum hefur fallið í
ónáð. Hún fær áhuga á sögu þessa
manns og ákveður að láta myndina
fjalla um hann. En þegar hún fer að
grennslast fyrir um sögu og afdrif
þessa manns kemst hún að þvi að
ekki eru allir jafnhrifnir af þessari
hugmynd hennar. Henni er ráðlagt
að láta fortið þessa manns eiga sig.
Hér er um viðkvæmt mál að ræða og
framleiðandi myndar hennar er rnjög
mótfallinn þessu.
Falskur
veruleiki
En Agnieszka er fjandanum
þrjóskari og fer að kafa inn i fortíð-
ina. Hún skoðar gamlar fréttamyndir
sem sýna hetjulega framgöngu hins
unga Birkuts. Hann á að vera fyrir-
mynd þess unga fólks sem á að erfa
landið og byggja það upp i anda
sósialismans. En það er auðvelt að
búa til fallegan veruleika með kvik-
myndavélinni. Birkut er aðeins verk-
færi sem notað er i þágu heildarinnar
og kastað burt þegar hans er ekki
lengur þörf. Marmaramaður Wajda
er í raun mynd um mynd. Um leið og
hann er að segja okkur frá manni sem
fyrir 25 árum átti i baráttu við pólskt
flokksræði er hann einnig að segja
okkur frá ungri stúlku sent rekst á
nákvæmlega það sama í dag. Það er
ekki beinlínis jákvæð þróun sem
þarna hefur átt sér stað, að áliti
Wajda. Allt það unga heilbrigða fólk
sem tók þátt í uppbyggingunni ásarnt
Birkut og segir frá i myndinni er i dag
í aðstöðu sem ekki er alveg í
samræmi við gamlar hugsjónir.
Fyrrum eiginkona Birkuts hefur
t.a.m. sell hugsjónir sínar fyrir
fallegl hús og Johnnie Walker á
svörtum markaði. Wajda tekst best
upp þar sem hann tengir saman nútíð
og fortíð i persónum sinum. En þrátt
fyrir vissa svartsýni hjá Wajda er
endir myndarinnar þar sem unga
fólkið, Agnieszka og sonur Birkuts er
tákn fyrir framtiðina, að ekki verði
gefist upp.
-I.H.