Dagblaðið - 04.02.1980, Page 28
j
28 :
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1980.
r
v,
i
stillanlegir og tvívirk-
ir höggdeyfar með
ábyrgð.
Varahluta- og
viðgerðaþjónustan
er hjá okkur.
SMYRILL HF.,
Ármúla 7, sími 84450,
Rvík.
OPID
KL. 9—9
Allar skreytingar unnar af fag- j
mönnum.
Naag bllastceBI a.m.k. A kvöldla
lílOMtAMXHH
HAFNARSTRÆTI Slmi 12717
TIL LEIGU
verzlunarhúsnæði í Síðumúla
Höfum til leigu 50—100 ferm verzlunarhús-
næði á jarðhæð að Síðumúla 32. Upplýsingar í
síma 38000.
ORKAHF.
A
Hjartanlega
velkomin(n) í hóp þeirra er veita endurskinsmerkjum athygli. (
hópnum eru jafnt ungir sem gamlir, og allir hafa skiliö aö endur- __
skinsmerkiö er okkur mikil vörn i skammdeginu, — slysavörn, —'
getur jafnvel verið liftrygging. Þeir vita, aö þeir sjást allt að fimm
sinnum fyrr en ella meö því aö bera endurskinsmerki.
ER ÞETTA EKKI
UMHUGSUNARVERT?
Þeir vita líka aö slys eru ekki lengi að veröa og henda ekki aðeins
þá sem viö ekki þekkjum eöa koma okkur alls ekki viö. Ef þú átt
ástvin, barn, gamlan fööur eða móöur, lestu þetta þá ööru sinni.
En endurskinsmerki má nota á margvíslegan hátt
VÆRI EKKI UMHUGSUNARVERT
. . . fyrir forstöðumenn fyrirtækja aö veita starfsfólki sínu mikil-
væga slysatryggingu til og frá vinnustað?
. . . fyrir skjólfataframleiöendur aö senda ekki aðeins flíkur á
markað sem vernda gegn kulda og regni heldur líka slysum?
.. . fyrir skóla að rétta verndarhönd út í umferðina til þeirra er
þeim hefir verið trúað fyrir?
. . . fyrir eigendur vinnuvéla, reiöhjóla og barnavagna aö eitt eöa
tvö lítil endurskinsmerki geta bjargað dýrmætu mannslífi?
JÁ, VÆRISLÍKT EKKI
UMHUGSUNARVERT?
Umferðarráö vekur athygli á:
... að skólar, bæjarfélög, fyrirtæki, félagasamtök o.fl., geta
fengið endurskinsmerki áprentuð meö einkennum sínum.
... aö viö höfum endurskinsmerki á hross.
... að viö eigum líka endurskinsörvar sem líma má innan í bíl-
hurðir, og blasa við sé hurö opnuð út í umferðina.
VIÐ TELJUM aö endurskinsmerki þurfi aö bera svo þau komi aö
notum. Því viljum viö koma þeim til þín. Þau fást í allflestum
mjólkurverslunum landsins, og auk þess í mörgum ritfanga- og
bókaverslunum. Okkur væri þökk í aö þeir sem fúsir eru að annast
sölu þessara LÍFSNEISTA heföu sem fyrst samband viö okkur.
Síminn er 27666.
oo
u
u
FERÐAR
Ð
ENDURSKINSMERKI
fást hér
Llndargötu 46
101 Reykjavík.
Þetta vísar veglnn.
Svona spjald er í þeim verslunum
sem selja endurskinsmerki.
Endurslcinsmerlcin auka öryggið. _______
Pökkklœddur vegfarandi sést Vegfarandi
í aðeins 20 - 30 m. fjarlægð meS endurskinsmerki
frd lögljósum bifreiðar. sest t 120 -130 m. fjarlægð.
PEIER FAIK OG ALAN ARKIN
SÝNA A SÉR BESTll HUÐAR
- í gamanmyndinni The Inlaws, sem Arthur Hiller leikstýrír
Þegar Peter Falk er nefndur dettur
flestum líklega i hug Columbo, en
hann lék aðalhlutverkið í samnefnd-
um sjónvarpsþætti. Þvi miður gerist
það allt of oft að leikarar festast í
ákveðnu hlutverki, þó sérlega ef um
er að ræða sjónvarpsþáttaröð eins og
Columbo. Þegar áhorfendur sjá svo
viðkomandi leikara í öðru hlutverki
tengja þeir hann ósjálfrátt sínu gamla
hlutverki. Sem dæmi má nefna þá
Telly Savalas sem Kojak og svo Peter
Falk sem Columbo. En sökin er ekki
alltaf hjá áhorfendunum því sumir
leikarar geta bókstaflega ekki leikið
iierna eitt hlutverk.
Það getur verið gifurlega erfitt
fyrir leikara að breyta ímynd sinni í
hugum áhorfenda. Sumum tekst vel
eins og t.d. Clint Eastwood sem
losaði sig úr kúrekahlutverkinu en
aðrir eyðileggja leikferil sinn meira
eða minna. Einnig harðneita fjöl-
margir leikarar að leika í sjónvarps-
þáttum eða sjónvarpskvikmyndum,
m.a. af fyrrgreindum ástæðum.
Gamanleikarinn
Peter Falk
En meira um Peter Falk. Áður en
hann reis upp á stjörnuhiminin í
Columbo sjónvarpsþáttunum hafði
hann leikið i fjöldamörgum kvik-
myndum án þess að honum væri veitt
mikil eftirtekt. Þegar hann var svo
orðinn þekktur streymdu tilboðin
inn. Hann hélt sig aðallega við
gamanmyndir eins og The Cheap
Detective og Murder on Midnight
(báðar sýndar í Stjörnubíói), byggðar
á leikritum Neil Simon, og svo The
Brink’s Job sem er gamanmynd um
bankarán sem framið var i New York
fyrir löngu. Með þessum myndum
sýndi Peter Falk að hann er frábær
gamanleikari en hann hefur einnig
sýnt fram á að hann gelur tekið að sér
önnur hlutverk. Hann hefur leikið í
mörgum kvikmyndum vinar síns
John Cassavetes, eins og t.d. Kona
undir áhrifum (sýnd á listahátið á
sínumníma) og Opening Night og
sýnt þar fram á hæfileika sina til að
höndla alvarleg hlutverk.
Peter Falk og
Alan Arkin
Nýlega var frumsýnd hér i Japan
ný gamanmynd með Peter Falk og
Alan Arkin i_aðalhlutverkum. Alan
Arkin hefur ekki í langan tima sýnt á
sér sínar bestu hliðar sem gamanleik-
ari og tilraun hans til að leikstýra
Kvik
ntyndir
BaMur Hjaltason
skrífar frá Japan
Höfuðpaurarnir sjálfir, þeir Peter
Falk og Alan Arkin.
mynd endaði með ósköpum. Hér er
hann hins vegar i essinu sínu og sam-
an með Peter Falk verður útkoman
ágætis gamanmynd. Handrita-
höfundinum Andrew Bergman (sem
m.a. lagði hönd á plóginn við gerð
handritsins í Blazing Saddles) hefur
tekist að þræða hinn guljna meðal-
veg, þ.e. að fara ekki út í of miklar
öfgar eins og oft vill henda amerískar
gamanmyndir. Látbragð og hegðan
þeirra Peter Falk og Alan Arkin er
þó þyngst á metum.
Efnisþráður
Alan Arkin leikur virtan tannlækni
að nafni Sheldon Kornpett. Dóttir
hans ætlar að giftast syni náunga að
nafni Vince Richard sem hann veit
litil deili á. Richard reynist hraðlyg-
inn og í litlu samhengi við raunveru-
leikann. Hann tekur þátt í ráni þar
sem ránsfengurinn vár prentmót af
gjaldmiðli Bandarikjanna, dollaran-
um .Aumingja tannlæknirinn dregst
inn í þetta mál og veit aldrei hverju
hann á að trúa frá Richard sem m.a.
heldur þvi fram að hann vinni fyrir
CIA og sé að koma upp um bófa-
flokk i Suður-Ameríku sem ætli að
kollvarpa peningakerfi heimsins með
þvi að prenta nóg af seðlum. Þótt
ekki verði farið nánar út í efnis-
þráðinn þá endar myndin vel eins og
allar góðar gamanmyndir eiga að
gera.
Leikstjórinn
Arthur Hiller
Eins og lesa má er efnisþráðurinn i
sjálfu sér ekki upp á marga fiskana
en leikstjóranum Arthur Hiller hefur
samt sem áður tekist að laða fram
það besta hjá leikurunum svo útkom-
an er 2 tíma „afslöppun”. Arthur
Hiller er mistækur leikstjóri. Hann á
að baki ágætar myndir ieins og Popi.
frá 1969, Hospital (1971) og Silver
Streak 1976. í þeirri fyrstnefndu lék
Alan Arkin aðalhlutverkið og fór þar
á kostum. Hospital var aftur á móti
hárbeitt ádeila á heilbrigðisþjónustu
Bandaríkjanna. Silver Streak var svo
þokkaleg gamanmynd. Arthur Hiller
hefur einnig leikstýrt Peter Falk. Var
það í myndinni Penelop(1966). Vakti
hún litla hrifningu fyrir utan leik
Peter Falk. En ömurlegasta mynd
Arthur Hillers er líklega Man of la
Mancha sem hann gerði í ítaliu 1962
með Sophiu Loren og Peter O’Toole.
Þessi söngvamynd týndist í kerfinu
og líklega ekki aðástæðulausu.
Fyrir þá sem Hafa áhuga má geta
þess að Warner Bros dreifa The In-
laws svo væntanlegir áhorfendur geta
farið að líta á kvikmyndaauglýsingar
Austurbæjarbíós eftir svona 6—12
mánuði.
Hér sjást þeir Péter Falk og Alan Arkin dansa hálfgerðan striðsdans meðan þeir eru að forða sér frá kúlnaregni skxruliða.