Dagblaðið - 23.09.1980, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1980.
4
„Hvað er að gerast
í skólamálum Grunn-
skóla Bolungarvíkur?"
spyrja 27
foreldrar
nemenda
við
Grunnskóla
Bolungar-
víkur
<.
Óánægðir foreldrar á Bolungarvík
skrifuðu DB bréf, sem barst blaðinu
sl. föstudag og greint var frá í frétt á
laugardag. í bréfinu kemur fram
gagnrýni á stjörn Grunnskólans á
Bolungarvík og greint er frá deilum
skólanefndar og skólastjóra. Bréfið
er undirritað af 27 foreldrum og ler
það hér á < ftir í heild.
Annars staðar á siðunni eru viðtöl
við skólasljóra og varaformann
skólanefndar og greint frá samþykkt
kennarafundar í gær.
„Hvað hefur verið að gerast í
skólamálum i grunnskóla Bolungar-
vikur? Hér er stór hópur óánægðra
foreldra, sem hefur þungar áhyggjur
af þvi áslandi sem hefur verið að
skapast undanfarin ár i grunnskólan-
um. Það hafa verið hér kennarar sem
bæði nemendur og foreldrar þeirra
hafaátt góðsamskipti við. Þykjumst
við Itafa talsvert fyrir okkur í því að
þeir hafi haft áhuga að starla hér á-
l'ram. En þvi miður hafa þeir horfið á
braut hver á fætur öðrum alltol
fljótt. Hér er greinilega eitthvað að.
Hafa yfirvöld skólamála nokkuð gert
i að rannsaka ástandið? Ekki vitunt
við til þess en teljum að taka þurfi
þessi mál til alvarlegrar meðferðar
því hér ríkir mikil óánægja. Er ekki
skólanum akkur í að hafa góða
kennara? Það er okkur foreldrum
barna á grunnskólastigi. Það sýna
undirskriftalistar o. fl. Við óskum
eindregið eftir þvi að nú þegar verði
athugað hvers vegna svo margir góðir
kennarar hafa horfið frá skólanum á
síðustu árum og að uppræta verði
þau öfl sem valda því. Einnig að
skapaður verði vinnufriður þeim er
vilja og hafa unnið þessum skóla vel.
Nú siðast hefur það gerzt hér að
skólanefnd mælti einhuga með einum
kennara, sem starfað hefur hér und-
anfarin ár, en skólastjóri er á móti
honum og hefur óskað eftir að skóla-
nefnd ráöi ekki þennan kennara.
Vonum við að sjónarmið skólastjóra
verði ekki látin ráða. Það er tími til
kominn.
Í fyrra var skólanefnd mótfallinn
Gagnrýni foreldranna á Bolungar-
vík beindist aðallega gegn skólastjóra
grunnskólans. Er Dagblaðið hafði
samband við Gunnar Ragnarsson,
skólastjóra Grunnskólans á Bolung-
ráðningu eins kennara hér, samt var
har.n ráðinn. Er ekki tekið mark á
skólanefnd?’
arvik, sagði hann: ,,Eg tel að hér sé á
ferð dæmigerð rógs- og lygaskrif. Ég
tel það fyrir neðan virðingu mína að
ræða þennan óþverra við blaðið.”
-JH.
Gunnar Ragnarsson skólastjóri Grunnskóians
Bolungarvík: r
,DÆMIGERÐ ROGS-
0G LYGASKRIP
Kennarar í Bolungarvík:
Starfs-
fólk og
nemendur
fái starfs-
frið
Kennarafundur var haldinn í gær
með kennurum Círunnskóla Bolung-
arvíkur. Tilefni kennarafundarins
var l'rétt sent birtist í Dgblaðinu sl.
laugardag, þar sem greint var frá
brcl'i 27 foreldra á Bolungarvik sent
sent vat nlnðinu. í bréfinu kom fram
gagnrýni á skólasljóra skólans og
greint frá deilum skólastjóra grunn-
skólans.
Kennararnir gerðu eftirfarandi
samþykkt: „Kennarar við
Grunnskóla Bolungarvikur lýsa
undriin sinni á skrifum Dagblaðsins
um málefni skólans og óska eindregið
el'tir að fjölmiðlar gefi starfsfólki og
nemendum vinnufrið”.
Undir þetla skrifa kennararnir
Helga Svana Ólafsdóttir, Halldóra
Krisljánsdóttir, Hörður Sigurjóns-
son, Sleingerður Jóhannsdóltir, Sig-
riður Ása Einarsdóttir, Elísabct
Ciuðinundsdóllir, Þuriður Péturs-
dóttir, Anna Skan-héðinsdóttir,
Gunnar Björnsson ih Veumíla M.
Björnsson.
Tveir kennarar skrifuðu ekki
undir þessa samþykkt, Kristján
Clunnarsson, sem ekki kvaðst skril'a
undir neitt og Gísli Hjartarson. Um
Cíísla snerust deilur skólastjóra og
skólanefndar í haust sent greint var
frá í Dagblaðinu. Gisli óskaði eftir
sérbókun þar sem segir: „Vegna
greinar, sem birtist i DB 20.
september unt skólamál í Bolungar-
vik, vil ég lýsa því yfir að ég undir-
ritaður átti engan þátt í að semja eða
senda bréf það sem um er fjallað i
greininni. Óska ég eftir að þessi yfir-
lýsing verði birt i blaðinu”. Undir
þetta skrifar Gísli Hjartarson.
-.111.
Krístín Magnúsdóttir varaformaður skólanefndar:
„Vissulega höfum við fengið að
heyra um óánægju foreldra með
stjórn skólans,” sagði Kristin
Magnúsdóttjr varaformaður skóla-
nefndar Grunnskólans á Bolungarvík
í gær er DB bar undir hana innihald
bréfs þess er 27 foreldrar á Bolungar-
vík skrifuðu blaðinu. „Við höfum
hins vegar ekki rétt til þess að skipta
okkur af innri málum skólans. Hon-
um stjórnar skólastjóri.
Skólastjóri hefur verið gagnrýndur
fyrir að vilja ekki ráða kennara sem
skólanefnd mælti einhuga með og
hefur fengið góð meðmæli foreldra
og nemenda. Þetta mál hefur verið
mikið rætt hér á Bolungarvík.
Okkur i skólanefndinni fannst ekki á-
stæða til þess að standa með skóla-
stjóra í þessu máli. Hins vegar vil ég
ekki kalla þetta deilu milli skólastjóra
og skólanefndar.
Skólanefnd hefur hins vegar ekki
fengið hliðsætt bréf frá foreldrunum
og borizt hefur til Dagblaðsins,”
sagði Kristín.
-JH.
Séð yfir Bolungarvikurkaupstað.
DB-mynd Sig. Þorri.
„VISSULEGA HÖFUM V® FENGIÐ AÐ
HEYRA UM ÓÁNÆGJU FORELDRA”
Uppgrip í síldarsöltun á Eskifirði
— Þangað bánist um 1100 tunnur af reknetasíld af Héraðsflóa
Mikil sildarsöltun var á Eskifirði í
gær og var saltað á ölium síldar-
plönunum þrentur í fyrsla sinn á
þessu hausti.
Söltunarstöðin Sæberg er búin að
salta í 800 tunnur i haust og saltaði i
70 i gær úr Frey frá Hornafirði. Freyr
kom með 100 tunnur á laugardaginn
til söltunar.
Söltunarstöðin Auðbjörg er búin
að salta i 1000 tunnur. Reiknaö var
þar með að salta i 600 tunnur i gær.
Söitunarstöðin Friðþjófur hóf
söltun í gær á þessu hausti og var þar
búizt viðaðsaltaðyrði í400tunnur.
Öll síldin sem veiddist fékkst í
reknet á Norðfjarðarflóa.
Norðfirðingar gátu ekki tekið við
henni vegna anna við aðra fiskverkun
og kom hún þvi öll til Eskifjarðar.
Sildarsöltun er óvenju snemma á
ferð á Eskifirði. i fyrra var byrjað að
salta hér 8. október, en nú var byrjað
að salta I. september. Segja
gárungarnir hér að það hafi verið
stjórnkænska Hjörleifs iðnaðar-
ráðherra að beina sildinni á Norð-
fjarðarflóann, þó svo illa hafi til
tekist að Norðfirðingar hafi ekki
veriö tilbúnir til síldarmóttöku.
Regína, Kskifirði/A.St.