Dagblaðið - 23.09.1980, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1980.
9
• -:v. .<■
Ný kvikmynd
XANADU FYRIR ALLA
í FJÖLSKYLDUNNI
Hún lítur út fyrir að vera i ástar-
sorg. Hún hefur safnað spiki, er
hætt að setja á sig andlitsfarða og
virðist hræðilega einmana. Þetta
hræðilega andlit á Karólína prinsessa
af Mónakó, sem hefur verið ein síðan
slitnaði upp úr hjónabandi hennar og
glaumgosans Philippe Junot. Þessi 23
ára gullfallega stúlka lokar sig nú
inni frá öllum gleðskap, en myndin
var tekin kvöld ei* í Paris, án þess að
hún vissi af.
\
Mæðgumar Agnetha
og Linda syngja
inn a jólaplötu
Agnetha Fáltskog, önnur söng-
kvennanna tveggja í ABBA, hyggst
nú gera plötu með gömlum jólalög-
um. Ekki ætlar hún ein að sjá um
sönginn á plötunni þeirri, heldur fær
hún til liðs við sig sjö ára gamla
dóttur sína Lindu.
Þó að Linda sé ekki orðin eldri er
jólaplatan tilvonandi ekki fyrsta
reynsla hennar i stúdíósöng. Hún var
nefnilega með í barnakórnum, sem
söng undir í ABBA-laginu I Have A
Dream á plötunni Voulez Vous.
Einnig ferðaðist hún með foreldrum
sínum og söng þegar ABBA fór
síðast í heimsferðalag.
Agnetha Fáltskog ræddi fyrir-
ætlanir sínar um jólaplötuna á dög-
unum. Þar sagði hún meðal annars
að sig hefði lengi langað til að syngja
með börnum á plötu, „ogsvo fékkég
hugmyndina að því að gera eitthvað
með Lindu”, sagði hún.
Lögin á plötu þeirra mæðgnanna
Agnetha Fáltskog: — Mig hefur lengi
langað til að syngja inn á hljómplötu
með bömum.
verða gömul sænsk jólalög og önnur
sem segja má að séu orðin alþjóðleg.
Búast má við því að heyra einhvern
ABBA-hljóm í þeim, því að Agnetha
ætlar sjálf að stjórna gerð hennar
með hljómupptökumanni ABBA,
Michael Tretow. Upptökurnar
hefjast í nóvember og ef allt gengur
samkvæmt áætlun ætti platan að
vera tilbúin nokkru fyrir jól,
Agnetha segir að Linda dóttir sín
hlakki mikið til að byrja á þessu
verki. Og það valdi henni engum
taugaóstyrk að eiga að fara að syngja
inn á hljómplötu.
,,Linda er vön því að hafa tónlist
stöðugt fyrir eyrunum,” segir
Agnetha. ,,Upp ásíðkastið hefur hún
meira að segja setzt öðru hvoru við
píanóið heima og spilað dálítið
sjálf.”
Þess má geta að lokum að LP plata
með ABBA-kvartettinum sjálfum er
væntanleg fyrir næstu jól. Benny
Anderson og Björn Ulvaeus eru þessa
dagana að leggja siðustu hönd á
upptöku hennar.
Draumafyrirtæki Hollywoodborgar
er um þessar mundir kvikmyndin
Xanadu. Myndin er ekki enn tilbúin til
sýningar en framleiðendur spá henni
jafnmiklum vinsældum og Grease. Nú
þegar hefur verið gefin út hijómplata
með lögum úr myndinni og hefur hún
náð töluverðum vinsældum, bæði hér á
landi og annars staðar. Myndin er
ætluð fyrir alla fjölskylduna og til að
brúa kynslóðabilið eru leikarar á
ólíkum aldri. Má nefna t.d. aðalleik- myndinni, en það eru Michael Beck
endur myndarinnar sem sjást hér á Gene Kelly og Olivia Newton-John.
Hver er þessi
sorg-
mædda
stúlka?
Dustin Hoffman:
ÆTLAR AÐ SKIUA
ahríf frá Kramer gegn Kramer;
■ ■
segia sumir
Dustin Hoffman, sem fékk óskars-
verðlaun fyrir leik sinn í kvikmynd-
inni Kramer gegn Kramer, er nú að
skilja við eiginkonu sína, dansarann
önnu Byrne. Sagt er að það séu
áhrif frá kvikmyndinni þar sem
hann lék fráskildan eiginmann. í
þetta sinn ætlar Dustin þó ekki að
vera kvenmannslaus því þegar
skilnaðurinn er genginn í garð hyggst
hann kvænast hinni ungu Lísu Gott-
segen. Já, þeir deyja ekki ráðalausir í
Hollywood.
Dustin Hoffman ásamt eiginkonu sinni Önnu Byrne.
Kynlíf er bann-
orö á strætís■
vögnumíKaup-
mannahöfn
Hið ritskoðaða lesið þið aðeins í Extrablaðinu, stóð einn daginn á strælisvögn-
unum í Kaupmannahöfn. Stjórn strætisvagnanna setti sig upp á móti þvt að
orðið kynlif kæmi fyrir í auglýsingunni.
Hið ritskoðaða lesið þið aðeins i
Extrablaðinu.
Yfirmönnum Extrabladet þótti
þröngsýni stjórnar strætisvagna-
félagsins fullmikil. — Einn stjórnar-
mannanna var reyndar gamall
iþróttamaður og þar nteð var hann
löglega afsakaður. — Hvers vegna er
orðið kynlif bannorð? spurði blaðið.
Löngu er farið að nota það í kennslu-
bókum og ekki er vitað tii þess að
neinn hafi beðið tjón á sálu sinni.
Hefðu einhver gróf orð verið i aug-
(ýsingunni, hefði málið kannski Itorft
öðruvisi við.
Blaðið klykkti út með því að hvetja
stjórn strætisvagnanna til að „holde
sig til busdriften og blande sig uden
om könsdriften”.
Extrabladet, stærsta dagblaðið i
Danmörku, lenti á dögunum i dálitlu
rifrildi við strætisvagnafélagið i
Kaupmannahöfn. Á dönskum al-
menningsvögnum eru auglýsingar likt
og i Reykjavík, en það má ekki aug-
lýsa Itvað sem er á þessum vögnum.
Allt sem kynlíf blandast inn i er til
dæmis bannað.
„Kynlíf er ekki aðeins aftur á bak
og áfram”, hafði Extrabladet dag
einn eftir sautján ára gamalli stúlku.
Þessa setningu töldu yfirmenn blaðs-
ins uppsláttinn þann daginn og hugð-
ust auglýsa hann á strætó. En það var
ekki við komandi. Þessi setning fór
yfir velsæmismörkin. Það fór þvi svo
að auglýsing dagsins hljóðaði svo: