Dagblaðið - 23.09.1980, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1980.
Deilurnar í Grunnskóla Gríndavíkur:
„MUN VÍSA MÁLINU TIL
STÉTTARFÉLAGS KENNARA”
— segir Ragnar Ágústsson kennari
„Staða min i þessu niáli er bæði
lagalega og siðferðislega eins sterk og
staða nokkurs kennara getur verið,”
sagði Ragnar Ágústsson, kennari í
Grindavík, er blaðamaður DB innti
hann álits á því að nýr kennari hefur
nú verið ráðinn til að taka við
kennslu hans í 4. bekk A i
Grunnskóla Grindavíkur í kjölfar
mótmaela foreldra barnanna við
kennslu Ragnars. Samkvæmt á-
kvörðun Gunnlaugs Dan Ólafssonar
skólastjóra mun Ragnar nú alfarið
snúa sér að svokallaðri stuðnings-
kennslu sem hann hafði áður stundað
að hluta til.
,,Ég vil þó ekki standa í vegi fyrir
þvi,” sagði Ragnar, „að skólastjóri
geti framfylgt þeirri skyldu sinni að
sjá börnununt fyrir fræðslu og að
þau mæti í skólann. Hins vegar
harma ég að þetta skuli þurfa að ger-
ast með þessum hætti. Ég mun nú
visa málinu formlega til stéttarfélags
kennara til frekari athugunar og
umsagnar,” sagði Ragnar að lokum.
-í;aj.
Nokkrir félagar hinnar þjóðlegu kinversku hljómsveitar á Þingvöllum. Með þeim á myndinni er Arnþór Helgason.
DB-mynd Magnús Karcl.
Þjóðlega kínverska hljómsveitin á Selfossi:
„VORKENNIÞEIM
SEM SITJA HEIMA”
„Ég vorkenni þeim sem sitja
heima,” sagði einn tónleikagesta á
tónleikum hinnar þjóðlegu, kinversku
hljómsveitar, sem haldnir voru á
Selfossi sl. sunnudagskvöld, en 12
manna hópur kínverskra tónlistar-
manna eru þessa dagana í heimsókn hér
á landi í boði Kinversk-íslenzka
ntenningarfélagsins og Karlakórs
Reykjavíkur. Fyrr um daginn heim-
sóttu Kínverjarnir Þingvelli og kynnt-
ust þar íslenzkri náttúru, veðri og sögu.
Þá skoðuðu þeir raforkuverið við íra-
foss og sátu þar boð framkvæmda-
stjóra Landsvirkjunar. Á Selfossi tók
stjórn Tónlistarfélags Árnessýslu á
móti listafólkinu og sýndi því lista- og
dýrasafn Árnessýslu. Á tónleikunum
flutti hljómsveitin gott sýnishorn af
kinverskri nútíma- og þjóðlagatónlist
ásaml nokkrum íslenzkum tónverkum.
Voru tónleikagestir, sem fylltu Selfoss-
bíó, hinir ánægðustu og áttu vart orð
til þess að lýsa ánægju sinni. Hin
þjóðlega kínverska hljómsveit mun
halda tónleika i Austurbæjarbiói
klukkan 7 í Ijvöld og í Bústaðakirkju
kl. hálf níu á fimmtudagskvöld og
er óhætt að spá því að enginn sem þar
kemur mun vonsvikinn út ganga.
-MKH, Eyrarhakku.
BOB MAGNUSSON MISSTIAF
FLUGVÉUNNITIL ÍSLANDS
— tónleikar hans í Glæsibæ í kvöld falla því niður
Jazztónleikar Bobs Magnusson og
félaga hans, sem áttu að vera i veitinga-
húsinu í Glæsibæ i kvöld, falla niður.
Ástæðan er sú að Bob er tepptur i New
York og kemst ekki til landsins fyrr en
á morgun. Bob hafði komið með þotu
frá Los Angeles og ællaði að ná
Flugleiðavél á Kennedyflugvelli. Hann
varaði sig ekki á tímamismuninum og
rétt missli af flugvélinni.
Að sögn Jónatans Garðarssonar hjá
Jazzvakningu verða tónleikarnir
haldnir sem eru á dagskrá á Hótel Loft-
leiðum annað kvöld og sömuleiðis
tónleikarnir á fimmtudagskvöld.
„Okkur langar til að bæta við einum
síðdegiskonsert á Loftleiðum næsta
sunnudag, „en það er ekki búið að
ganga frá þvi ennþá,” sagði Jónatan.
Bob Magnusson bassaleikari kemur
hingað til lands i tilefni fimm ára af-
mælis Jazzvakningar. Auk þess að
leika á þrennum tónleikum verða gerðir
nteð honunt og félögum hans útvarps-
og sjónvarpsþættir. Einnig leika þeir
inn á hljómplötu.
-ÁT-
Handtaka blaðamannsins:
„Saksóknara að ákveða”
—- segir William Th. Möller, aðalfulltrúi lögreglustjóra
Rannsókn á máli. Guðlaugs
Bergmundssonar, blaðamanns Helg-
arpóstsins, sem hefur staðið að und-
anförnu innan lögregluembættisins,
er nú lokið. Að sögn Williams Th.
Möller, aðalfulltrúa lögreglustjóra,
hefur málið nú verið sent til sak-
sóknara. „Nú er það mat
saksóknara, hvað gera skuli,” sagði
William. Sagðist hann telja óeðlilegt
að lögreglan ræddi þetla mál
opinberlega fyrr en það hefði fengið
eðlilega afgreiðslu hjá saksóknara.
Eins og koinið hefur fram i fjöl-
miðlum fór rannsókn þessi fram i
kjölfar handtöku Guðlaugs
Bergmundssonar blaðamanns í
miðbæ Reykjavíkur fyrir rúmum
hálfum mánuði. Gaf lögreglan
Guðlaugi að sök að hafa hvatt til
óeirða meðal unglinga, sem lögreglan
hafði afskipti af. Guðlaugur hefur
sagt það staðlausa stafi. Hann hafi
einungis verið að fylgjast með
störfum lögreglunnar sem blaða-
maður og handtakan hafi verið með
öllu tilefnislaus. -GAJ.
ú^jTSPÖfflOgL-
———“ ” auglýsir:
Tilbúinn sængurfatnaður fyrir alla fjölskylduna. Náttsloppar og nátt-
kjólar I settum — mjög gott verð. Einnig náttkjólar á alla aldurshópa.
— Náttföt og náttsloppar á 0—12 ára. — Baðhandklaeði, eldhúshand-
klæði, dökk handklæði, mjög ódýr. — Hettuhandklæði fyrir börn. —
Diskaþurrkur, gott verð. — Rennilásar, tvinni, garn, lopi, hannyrða-
vörur, smávörur alls konar. — Sokkar á alla fjölskylduna. — Galla-
buxur á 0—14 ára. — Peysur á 0—14 ára o.fl. o.fl.
Sparíð sporín - Verzlið í SPORINU, Grímsbæ
ÍBÚÐ
á Egilsstöðum til sölu
4ra herbergja íbúð á 2. hæð í þríbýlishúsi. Bílskúr og gott
geymsluhúsnæði fylgir. Ca 215 ferm. Uppl. í síma 97-1318.
Tæki til leirmunagerðar
Rennibekkir, leirbrennsluofnar, leirpressa, kúlu-
mylla, innréttingar, hráefni og ýmis önnur verk-
færi til leirmunagerðar til sölu. Uppl. í síma
13071 í kvöld og næstu kvöld milli kl. 8 og 10.
Kennara vantar
að barnaskólanum í Reykjahlíð við Mý-
vatn nú þegar til kennslu sjö til átta ára
barna. Húsnæði í boði, góðir atvinnu-
möguleikar fyrir maka. Talið við skóla-
stjóra, sími 96-44183.
Allur akstur
krefst
varkárni
Ytum ekki barnavagni
á undan okkur við
aðstæður sem þessar
||U^1FERÐAR
Möguleikar í kæli-
skápum, frysti
skápum og frysti-
^DÖNfSkKtaGÆSl VaLe'CrRAU*T WÖNUSTAklS,Um
VAREFAKTA ,akta' VOtt°rðl d°nsku|
Vneytendastofnunarinnarl
DVN um orkunotkun og|
aðra eiginleika.
/rOniX
GLÆSILEIKI - STYRKUR - HAGKVÆMNI
^CORKUSPARNAÐUR
HÁTÚNI 6A • SIMI 24420