Dagblaðið - 23.09.1980, Blaðsíða 16
16
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1980.
Gunnlaugur Bjarnason, sigurvegarinn
í keppninni, ekur hér í rólegheitum upp
hraunbarðið 1 lok fyrstu torfærunnar.
Gunnlaugur sýndi nokkra yfirhuröi i
keppninni þrátt fyrir að hann væri með
minnstu vélina i bil sinum.
DB-mynd Jóhann Kristjánsson.
Torfærukeppni Stakks:
Annar sigur Gunnlaugs í sumar
Einn merkasti akstursíþrótta-
viðburður landsins er án efa torfæru-
keppni björgunarsveitarinnar Stakks
í Grindavik. Jafnan kemur mikill
fjöldi manns til að fyigjast með tor-
færuakstrinum og þrátt fyrir skúra-
veður og hvassviðri komu um 3000
manns til að fylgjast með keppninni
síðastliðinn laugardag.
Að þessu sinni voru keppendur
nokkru færri en verið hefur undan-
farin ár eða einungis fimm. Þeir voru
Guðmundur Gunnarsson, sem
kominn var alla leið frá Akureyri til
að keppa á Willysnum sinum.
Guðmundur var með 340 cid.
Chryslervél í jeppanum en það mun
vera vélin sem var í kvartmílukókos-
bollunni hans Ólafs Vilhjálmssonar
sumarið '79. Ingvar Halldórsson
keppti einnig á Willys og var hann
með 350 cid. C'hevroletvél í bíl sinum.
Oddur Garðarsson keppti á Willys,
einnig með 350 cid. Chevroletvél.
Olafur Eyjólfsson keppti á Scout og
var hann eini keppandinn sem ekki
ók Willysjeppa. Vélin I Scoutinum
var af Chryslergerð, 318 cid. Fimmti
keppandinn var svo Gunnlaugur
Bjarna>on en Gunnlaugur var með
283 cid. Chevroletvél í sinum bíl.
Að þessu sinni voru sjö þrautir
lagðar fyrir keppendurna og voru
brekka og komust allir keppendurnir,
nema Ingvar, upp hana.
Fimmta þrautin var mjög bröti
brekka, um 50 metra löng. Var það í
þessari brekku sem keppendurnir
fengu eina tækifærið til að þenja
vélar bílanna almennilega. Fjórir
þeirra komust alla leið upp, þeir
Gunnlaugur, Ólafur, Oddur og
Guðmundur. Eftir fimmtu þrautina
var gert hlé og vom stig keppendanna
reiknuð út. Þá kom i ljós að
Gunnlaugur var stigahæstur með 750
stig, annar var Ciuðmundur með 710
stig en Guðmundur hafði keyrl niður
stiku í lok annarrar þrautarinnar og
var þvi með færri stig en
Guðmundur Gunnarsson hllfir Chryslervélinni hvergi þegar hann botnar jeppatrogið upp úr drullugryfjunni I örvæntingar-
fullri tilraun til að ná betri tima en Gunnlaugur og komast þannig fram fyrir hann.
DB-mynd Jóhann Kristjánsson.
þær greinilega valdar með það fyrir
augum að útilokað yrði að nokkurt
óhapp yrði í keppninni. Yfírleitt var
hraðinn mjög lítill í keppninni og
varð hún því ekki eins spennandi og
svo oft áður.
Fyrsta þrautin i keppninni var
stutt brekka og var hraunbarð efst i
henni. Þrir keppendanna, þeir
Gunnlaugur, Ólafur og Guðmundur,
komust upp barðið og lulluðu þeir
það í hægaganginum en hinir tveir
komust ekki upp barðið.
Önnur þrautin var brekka sem var
um 50 metra löng. Upp hana
komust þeir Gunnlaugur, Oddur og
Guðmundur.
Þriðja þrautin var stutt brekka
með moldar- og malarbarði efst og
aftur voru það þeir Gunnlaugur,
Oddur og Guðmundur sem komust
upp.
Fjórða þrautin var mjög löng
Oddur Garðarsson lenti I ýmsum vandræðum I timabrautinni. Dekkin undir
jeppanum voru svo breið að hann átti I erfiðleikum með að ná kröppustu
beygjunum. Hér missti hann vinstra framhorn bilsins niður I dekkjagryfjuna og
þurfti að bakka upp úr henni aftur. Við það missti hann dýrmætan tíma. Stuttu
seinna drapst á vélinni hjá honum þegar hann demdi sér niður I drullugryfjuna og
varð að draga hann upp úr henni. Þessir erfiðleikar Odds urðu til þess að hann
missti af þriðja sætinu.
-DB-mynd Jóhann Kristjánsson.
Gunnlaugur. Þriðji hæsti var Oddur
Garðarsson með 655 stig. Fjórði var
Ólafur með 585 stig og Ingvar var
með 395 stig.
Eftir hléið voru tvær tímabrautir
lagðar fyrir keppendurna. Var sú
fyrri stutt og bein en öll sundurgrafin
svo að hún líktist einna helzt trölla-
þvottabretti. Guðmundur fór fyrstur
I hana og fór alltof geyst því jeppinn
byrjaði að hoppa eins og körfubolti i
skorningunum svo að öll hjólin voru
á lofti í metra hæð í einu. Sló
Guðmundur af jeppanum en þegar
hann lenti drapst á vélinni og tókst
Guðmundi ekki að komast út
brautina, þar sem bíllinn var startara-
laus, og hann kom honum ekki aftur
í gang. Gunnlaugur náði hins vegar
bezta tímanum í brautinni og jók
þar með forskot sitt.
Seinni timabrautin var mun lengri
og voru ýmsar hindranir i henni.
Meðal þeirra voru moldargryfjur,
barð, dekkjagryfja og drullupyttur.
Aftur var það Gunnlaugur sem náði
bezta timanum og var þarmeðbúinn
að tryggja sér sigurinn í keppninni.
Hlaut Gunnlaugur 1340 stig i
keppninni. Annar varð Guðmundur
með 1045 stig og þriðji varð Ólafur
en honum hafði tekizt að skjóta sér
fram fyrir Odd i timabrautunum.
Hlaut Ólafur 1005 stig. Þess má að
lokum geta að Gunnlaugur sigraði
einnig í torfærukeppninni á Hellu
síðastliðið vor.
-J.A.K.