Dagblaðið - 23.09.1980, Qupperneq 27
27
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1980.
Þegar fram í sækir er líklegt, að
fátt verði talið merkilegra en ,,hin
ómögulegu verkföll” pólskra verka-
manna. Til þessa hefur verið talið
óhugsandi, að verkamenn i kommún-
istalöndunum fari i verkföli, en
pólskir verkamenn sönnuðu það enn
einu sinni, að þeir meta brauð i tóma
maga sína meira en hugmyndafræði
flokksins.
Væntanlega eru flestir lesendur og
sjónvarpsáhorfendur allvel kunnugir
gangi mála í Póllandi að undanförqu,
þar sem verkamenn víðs vegar um
landið — einkum þó í skipasmíða-
stöðvum á Eystrasaltsströndinni —
skóku máttarstoðir hins sósíalíska
þjóðskipulags. Þeir knúðu fram —
friðsamlega og með þrautskipu-
lögðum aðgerðum — verulegar til-
slakanir í frelsisátt, auk kjarabóta.
Verkföllunum í Póllandi er ekki
lokið. Efnahagslegar afleiðingar
verkfallsaðgerðanna og samning-
anna, sem tókust i kjölfar þeirra, eiga
enn eftir að koma i Ijós. Forystu-
menn kommúnistaflokksins i landinu
hafa lýst því yfir, að efnahagslífið
þoli engan veginn þær launahækk-
anir og aðrar kjarabætur, sem fallizt
hefur verið á (og minnir það nokkuð
á Sólstöðusamningana svokölluðu
hérlendis fyrir fáum árum). Þá eru
pólitískar afleiðingar enn óljósari.
Drottnarar landsins í Kreml hafa lýst
megnri óánægju sinni með verkföllin
og tilslakanir pólskra stjórnvalda og
Rússar hafa til þessa ekki hikað við
að beita sínum eigin ráðum til að
halda ástandinu í skefjum, sbr. Ung-
verjaland, Tékkóslóvakíu og Afgan-
istan. Enn sem komið er þykir þó
hæpið að herir Varsjárbandalagsins
verði sendir inn í Pólland, enda má
búast við að Pólverjar grípi til vopn-
aðrar andspyrnu. En það á líka eftir
að koma í ljós á hvern hátt pólsk
stjórnvöld standa við gerða samn-
inga.
í brezku fréttamyndinni Sjö dagar
í Gdansk, sem sýnd verður í sjón-
varpinu í kvöld kl. 22.00, lýsa
sjónvarpsfréttamenn atburðum í
skipasmíðastöðvum í Gdansk og
ræða við verkfallsmenn. Pólsk yfir-
völd meinuðu brezkum sjónvarps-
mönnum að fylgjast með gangi verk-
fallanna, en þeir fóru engu að síður á
staðinn sem ferðamenn. Myndin er
afrakstur þeirrar ferðar. - ÓV
dcuiu ciui iiiiiu uagic^a uiduui i Tdisja. uitci civnci i ui |ic£ai uincinui.
SIÖ DAGAR í GDANSK - sjónvarp í kvöld kl. 22,00:
Hin ómögulegu verkföll
— sem skóku máttarstoðir hins sósíalíska þjóðskipulags í Póllandi
EKKI FÓR ÞAD í
BLÝHÓLKINN - útvarp
f kvöld kl. 20,40:
Þávar
tæknin
ekki
merkileg
„Ekki fór það í blýhólkinn” nefnist
dagskrárliður í útvarpinu í kvöld. Þar
les Erlendur Davíðsson rithöfundur
frásögn gamals manns sem lengi hefur
búið og starfað á Akureyri. Maður
þessi er Jón „goði” Kristjánsson.
Goðanafnið hlaut hann vegna þess að
hann rak lengi hótel Goðafoss og var
nafninu ætlað að aðgreina hann frá
öðrum Jónum.
,,Jón „goði” tók þátt í að byggja
fyrsta mjólkursamlag landsins sem reist
var á Akureyri fyrir rúmum fimmim
árum. Þá var tæknin ekki maiiiii það.
að það varð að fá hesta ug sleð- J„ns
til að flytja stærstu stykkin frá
höfninni og upp í mjólkursamlag, en
það voru aðallega mjólkurgeymar og
margs konar ílát. Frá þessu segir Jón i
frásögn þeirri er Erlendur hefur skráð
eftir honum.
-GAJ.
Kazinski lögfræðingur, annar frá vinstri, i hópi stéttarbræðra.
SÝKK EDA SEKUR? — sjónvarp í kvöld kl. 21,15:
Stundar lögf ræðina
samhliða trommuleik
Lögfræðingurinn Kaz, eða
Kazinski eins og hann heitir víst,
verður á sinum stað í dagskrá sjón-
varpsins í kvöld. Kaz þessi er leikinn
af Ron Liebman, þeim hinum sama
og hefur farið með eitt aðalhlut-
verkið i óskarsverðlaunamyndinni
Norma Rae, sem sýnd hefur verið i
einu af kvikmyndahúsum borg-
arinnar að undanförnu.
Skiptar skoðanir eru um ágæti
sjónvarpsþáttanna „Sýkn eða sekur”
og skal enginn dómur á þá lagður
hér. Aðalpersóna þáttanna, Kaz, er
lögfræðingur sem starfar hjá virtum
lögfræðingi, Sam Bennett að nafni.
Kaz er ekki að sama skapi virtur enda
sat hann í steininum um árabil og
lærði raunar sína lögfræði þar.
Kaz er ekki tiltakanlega virðulegur
lögfræðingur og allt fas hans bendir
frekar til þess að þar fari einhver
hljómsveitartöffari en lögfræðingur,
enda heldur hann sig jafnan á nætur-
klúbb þegar dimma tekur og sleppir
þar fram af sér beizlinu með
trommukjuða í höndum. Ekki hefur
verið alveg fritt við að Kazinski sé
upp á kvenhöndina og einkum og sér
í lagi hafa augu hans beinzt að blaða-
konu nokkurri. Enn sem komið er
hefur honum ekki orðið verulega á-
gengt með hana en ýmislegt bendir til
að á þvi kunni að verða breyting.
Þátturinn i kvöld nefnist i heima-
högum og er hann þriggja stundar-
fjórðunga langur.
-GAJ.
ÚR AUSTFJARDAÞOKUNNI
— útvarp f kvöld kl. 22,35:
„Fulltrúi þeirra sem
undu glaðir við sitt”
- Vilhjálmur Einarsson ræðir við
Guðlaugu Sigurðardóttur fyrrum
farandkennara
„Guðlaug Sigurðardóttir er
kannski fulltrúi þeirra, sem undu
glaðir við sitt,” sagði Vilhjálmur
Einarsson, skólameistari Mennta-
skólans á Egilsstöðum i samtali við
blaðamann Dagblaðsins.
I þættinum „Ur Austfjarða-
þokunni”, sem er á dagskrá út-
varpsins í kvöld ræðir Vilhjálmur við
Guðlaugu Sigurðardóttur fyrrum
farandkennara frá Útnyrðings-
stöðum á Völlum. í þessum þætti
eins og hinum fyrri mun Vilhjálmur
halda áfram að leita svara við
byggðaröskuninni, hvers vegna fólki
hefur fækkað svo mjög hlutfallslega i
Austfirðingafjórðungi á þessari öld.
Þar er Guðlaug fulltrúi þeirra, sem
ekki yfirgáfu fjórðunginn þótt launa
kjör byðust betri annars staðar.
„Guðlaug segir frá reynslu sinni
sem farandkennari á Fljótsdalshéraði
og ýmsum breytingum, sem orðið
hafa hér um slóðir á liðnum ára-
tugum. Þeir eru orðnir ófáir
nemendur hennar i gamla farand-
skólanum, sem var hér á sveita-
bæjunum; á Skriðdal, Völlum og
Skógum,” sagði Vilhjálmur.
Að sögn Vilhjálms eru a.m.k.
tveir þættir eftir Úr Austfjarða-
þokunni. Meiningin hefði verið að
þessir þættir yrðu út sumardag-
skrána. —GAJ.
Vilhjatmiir £ú»n«>a, skuúmeisuri og umsjónarmaður ótvarpsþátUrlns „(Jr Austljarðaþokunni", er
sennilega fremsti Iþróttamaður, sem tslcndingar hafa eignazt og si eini, sem komizt hefur i vcrðlaunapall
4 ólympiuleikum. H6r bregður Vilhjálmur á leik ásamt konu sinni fyrir Ijósmyndara DB.
B0DDI-HLUTIR
Eigum fyrirliggjandi bretti í eftirtaldar
bifreiðar:
VW1300
Mini
Audi '80
Passat
Rat 127-132
Datsun 120 Y
Renautt4og5
Peugeot 504
Volvo '68-78
Saab96og99
Opel R. '72'7ý
Lada 1200
M. Benz
Simca 1100 og 1307
ogfleiri.
Varahkitir - Ármúla 24 - Sími 36510.