Dagblaðið - 11.12.1980, Page 4
4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980.
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
eftirfarandi:
1. RARIK 80038 — Götugreiniskápar og
tengibúnaður fyrir jarðstrengi. Tilboð verða
opnuð kl. 14.00 mánudaginn 5. janúar 1981.
2. RARIK 80039 — Aflstrengir 12 og 24 kV
og koparvír. Tilboð verða opnuð kl. 14.00
þriðjudaginn 20. janúar 1981.
3. RARIK 80040 — Háspennu- og lág-
spennubúnaður í dreifistöðvar. Tilboð verða
opnuð kl. 14 miðvikudaginn 7. janúar 1981.
4. RARIK 80042 — Stauraspennar 25, 37,5
og 75 kVA. Tilboð verða opnuð kl. 11.00
þriðjudaginn 20. janúar 1981.
5. RARIK 80043 — Dreifispennar 100, 500
og 800 kVA. Tilboð verða opnuð kl. 14.00
fimmtudaginn 22. janúar 1981.
Hvert eintak útboðsgagna kostar kr. 2000,-
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118, Reykjavík.
PÍANÓ
Til sölu sérstaklega gott hljóö-
fœri frá
GEBR. ZIMMERMAN AG.
LEIPZIG
Uppl. í síma 17678 kl. 5—7
Bókmenntakynning
hjá Eymundsson
Klukkan 4 til 6 á morgun mun
HJALTI RÖGNVALDSSON
leikari lesa úr eftirtöldum
bókum:
Dcegurlagasöngkonan dregur sig
í hlé, eftir
SNJÓLAUGU
BRAGADÓTTUR
frá Skáldalœk
Læknamafían, eftir
AUÐI HARALDS
Þetta er ekkert alvarlegt, ej'tir
FRÍÐU Á.
SIGURÐARDÓTTUR
Höfundar verða í verzluninni á
sama tíma og árita bækurnar.
BÓKAVERZLUN
SIGFÚSAR
EYMUNDSSONAR
AUSTURSTRÆT118
Dragist bankamannaverkfallið á langinn:
■ ■ F m m
STODVAST ÞA OLL
VIDSKIPTI í LANDINU?
Fyrsta bankaverkfallið hérlendis
hefur staðið það sem af er þessari
viku. Fólk bjó sig undir verkfallið
svo sem kostur var þegar séð varð að
ekki myndi ganga saman hjá deilu-
aðilum. Þannig virðist verkfallið enn
ekki hafa komið verulega við lands-
menn. En eftir því sem það dregst á
langinn koma áhrifin betur í Ijós.
Dagblaðið ræddi við verzlunar-
menn og vegfarendur um áhrif verk-
fallsins. Ljóst er að verzlunarmenn
óttast mjög áhrif verkfallsins, að
vöruskortur taki brátt að gera vart
við sig og jafnvel að viðskipti stöðvist
í landinu. Viðtöl þessi fara hérá eftir.
-JH.
Þegar DB leit inn hjá verkfalls-
vörðum og verkfallsstjórn banka-
manna var nóg að gera hjá flestum,
en aðrir gáfu sér þó tima til þess að
grípa í spil eða skák.
Jón Aðalsteinn Jónasson kaupmaður:
„Vöruskortur upp úr helgi”
— verkrallsréttur bankamanna á ekki að vera til
„Bankaverkfallið hefur ekki haft
nein áhrif ennþá en áhrifanna fer ef-
laust að gæta upp úr helgi, þá verður
vöruskortur,” sagði Jón Aðalsteinn
Jónasson kaupmaður í Sportvali.
„Enn sem komið er hafa ekki verið
vandræði með skiptimynt. Þá þurfa
kaupmenn ekki að liggja með mikla
fjármuni hjá sér þrátt fyrir lokun
banka, því hægt er að nota póst-
gíróið. Ég býst við að kaupmenn
reyni að notfæra sér það, nenta þeir
sem hafa því tryggari geymslur.
Það hlýtur öllum að vera Ijóst að í
bönkunum er blóðstreymi þjóð-
félagsins. Bankaverkfall er eins og að
stöðva blóðstreymi í slagæð. Þetta
lendir á hverjum einasta þegn þjóð-
félagsins. Mín skoðun er sú, alveg
ótvíræð, að þessi verkfallsréttur á
ekki að vera til. Bankamenn eiga
heldur að fá uppbót á laun í stað
verkfallsréttarins.”
Jón Aöalsleinn Jónasson kaup-
maður.
Arndis Jósefsdóltir, aflsloðarmaður
á Landspilalanum.
Arndís Jósefsdóttir
aöstoöarmaöur:
,Hamstraði
seðla'
„Verkfallið hefur engin áhrif á
mig,” sagði Arndís Jósefsdóttir,
aðstoðarmaður á Landspítalanum.
,,Ég var viðbúin og fór í bankann
fyrir verkfall og náði mér í peninga,
hamstraði seðla. En ætli þetta verði
langt verkfall, ég vona ekki.”
Halldór Ástvaldsson íhljómplötudeild Fálkans:
„Viðskipti stöðv-
ast í landinu”
— ef ekki rætist úr á næstu dögum
„Bankamannaverkfallið setur
okkur mikil takmörk,” sagði Halldór
Ástvaldsson verzlunarmaður í hljóm-
plötudeild Fálkans. „Plötur koma og
fara og veltan er mjög hröð. Lager er
því fljótur að eyðast upp. Tollpapp-
írar koma yfirleitt samhliða sending-
unum, þannig að litlu var hægt að ná
út af sendingum fyrir verkfall.
Við eigum eftir að fá langflestar
sendingar okkar sem stóð til að fá
fyrir jól. Ef verkfall dregst í 4—5
daga, þá skapast mikil vandræði.
Plötur eru vinsælar í dag, en ef þær
komast ekki á markað nú, þá lendum
við í vandræðum.
Það eru ekki vandræði hjá
Fálkanum að geyma fjármuni, þar
sem fyrirtækið er það stórt að það
hefur aðstöðu til þess. En ég gæti
trúað að minni fyrirtæki ættu í
vandræðum. Þá fer að vanta skipti-
mynt. Hún er fljót að étast upp. Ef
ekki rætist úr á næstu dögum, þá
stöðvast viðskipti í landinu.”
Guðjón Kristmannsson innheimtumaður:
„HELD AÐ VERK-
FALLIÐ LEGGIST
ÞUNGT í FÓLK”
„Þrátt fyrir það að ég vinn við inn- um, sem bendir til þess að fólk hafi
heimtu, þá hef ég enn ekki orðið birgt sig upp fyrir verkfallið. ”
verulega var við áhrif verkfallsins,”
sagði Guðjón Kristmannsson inn-
heimtumaður hjá Ríkisútvarpinu.
„Við tökum við tékkum, en annars
held ég að þetta leggist þungt í fólk,
a.m.k. ef verkfallið stendur lengi.
Hvað mig sjálfan snertir, þá er
ég ekki í vandræðum. Ég var nýbúinn
að fá laun. og þau voru greidd í
peningum, þannig að ég hef hand-
bært fé. Ég hef Iíka tekið eftir því að
sumir greiða skuidir'sínar með seðl-
---------►
Guðjón Kristmannsson innheimtu-
maður.