Dagblaðið - 11.12.1980, Page 7

Dagblaðið - 11.12.1980, Page 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980. 7 Um þessar stof nanir berjast Geir, Gunnar og Albert: Stjórnkerfi Sjálfstæðis- flokksins margslungið Geir, Gunnar og Albert og þeirra menn berjast um völdin í hinum margslungnu stofnunum Sjálfstæðis- flokksins. Blöðin segja frá kosningum i „fulltrúaráði sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík” og samþykktun „flokksráðs og for- mannaráðstefnu Sjálfstæðisflokks- ins. En hvaða samkomur eru þetta? Hvernig eru þeir valdir sem þar mæta? Svörin eru að með ólíkindum flókið kerfi gildir til dæmis um val þeirra, sem mega sitja aðalfund fulltrúaráðsins í Reykjavík. Þeir eru sem hér segir: 1) Á aðalfundum einstakra sjálfstæðisfélaga í borginni eru kjörnir fulltrúarí fulltrúaráðið, 1 fyrir hverja 50 félaga. 2) Formenn allra sjálfstæðisfélaganna í borginni. 3) Þingmenn og borgarfulltrúar og varamenn þeirra (það er þingmenn og varamenn búsettir í borginni) 4) Fast- ráðnir starfsmenn á skrifstofu flokksins og félaga flokksins í Reykjavík. 5) Miðstjórnar- og fjár- málaráðsmenn í borginni. 6) Stjórn fulltrúaráðsins tilnefnir 50 fulltrúa á aðalfund. 7) Vörður tilnefnir 50 fulltrúa. 8) Stjórnir sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík skipa þá sem verið hafa sjálfboðaliðar í kosninga- starfi Sjálfstæðisflokksins. Þetta er stærsti hópurinn. — Allur þessi hópur á rétt til setu í fulltrúaráðinu, alls um 1400 manns. Hugarflug 16 lögfræðinga? Kunnugur sagði DB að einir 16 lögfræðingar hefðu unnið að gerð þess kerfis, sem hér er skýrt frá, enda er það flókið mjög. Öllu einfaldara er hverjir sitja í flokksráði. Þeir eru: Miðstjórnar- og framkvæmdastjórnarmenn, fjár- málaráð, fræðslu- og út- breiðslunefnd, framkvæmdastjóri flokksins, framkvæmdastjórar lands- samtaka og fulltrúaráðsins, formenn kjördæmisráða, formenn málefna- nefnda, formaður nemenda- sambands stjórnmálaskólans, og þingmenn og frambjóðendur í aðalsætum við þingkosningar, fyrr- verandi kjörnir þingmenn. Þá kjósa kjördæmisráðin fulltrúa í flokks- ráðið, 1 fyrir hverja 1000 kjósendur flokksins í síðustu þingkosningum. Landssamböndin kjósa 8 fulltrúa hvert og til viðbótar 1 fyrir hverja 1000 félaga í samböndunum. Loks má miðstjórn tilnefna 10 fulltrúa í flokksráð úr hópi fyrrverandi miðstjórnarmanna. Kannski finnst lesendum þetta kerfi lítið einfaldara en kerfið, sem á- kveður fulltrúaráðsmennina í Reykjavík. Val í miðstjórn Sjálf- stæðisfiokksins er öllu einfaldara. Miðstjórn er kosin á landsfundi, og i henni sitja að auki formenn kjördæmisráðanna. DB greindi fyrir nokkru frá býsna flóknum reglum, sem gilda um val fulltrúa á hinn mikilvæga landsfund Sjálfstæðisflokksins. -HH. Þessir tveir ungu menn heita Jens Pétur Kristinsson og Hilntar Héðinsson og eru báðir nemendur I Fjölbrautaskólanum i Breiðholti. Þeir tóku sig til og söfnuðu 247 undirskriftum með kröfu um að dómsmálaráðuneytið og ríkisstjórn standi fast viö þá ákvörðun að senda Patrick Gervasoni úr landi þann 14. desember nk. Hafa þeir af- hent Friðjóni Þórðarsyni undirskriftalistana. - KMU / DB-mynd: Einar Ólason. Luxemborg: Flugleiðir ekki lengur í miðborginni Flugleiðir hafa nú lokað söluskrif- stofu sinni við Plaza de la Gard í Luxemborg. Hver sá sem þarf að kaupa farseðil, breyta áætluðum flug- tima eða hafa samband við Flugleiðir verur nú að gera sér ferð út á Findel— flugvöll. Úti á flugvellinum hefur rými Flugleiða verið mjög dregið saman og félagið hefur þriðjung af þvi rými sem það hafði áður í afgreiðslusal flug- stöðvarinnar og hefur látið hitt rýmið af hendi við aðalkeppinautana á Atlantshafsleiðinn, British Airways. íslendingar í Luxemborg sem nýlega voru á ferð í syðri hluta Bandaríkjanna könnuðu á ferðaskrifstofum hvort unnt væri að kaupa farséðil með Icelandair frá Bandaríkjunum til Evrópu. Svarið var stutt og laggott „Icelandair er hætt að fljúga á þessari flugleið.” -ÓV. Ef tirköst Heklugossins: Hættulegt f lúormagn íheyi ogbeinum Mælingar á flúormagni í beinum úr sláturlömbum á öskufallssvæðunum eftir Heklugosið í ágúst sl., sem tekin voru til rannsóknar í haust, sýna að beinin hafa tekið til sín verulegt flúor- magn á öskumenguðu landi. Býst samstarfsnefnd rannsókna- stofnana um flúormælingar vegna Heklugossins við að eitthvað muni bera á tannskemmdum í skepnum, sem eru að taka út vöxt á öskufallssvæðunum. Einnig hefur komið í ljós að verulegt öskumagn hefur borizt í hlöður með heyi, sem enn var óhirt þegar gosið hófst. Er flúormagnið í því heyi svo hátt að varasamt er að gefa það ungviði og helzt ætti ekki að fóðra annað búfé á því eingöngu. Samstarfsnefndin mælir eindregið með að öllu búfé á öskufallssvæðinu sé tryggð næg steinefnagjöf í vetur. -ÓV. Kveikt á Oslóar trénu á sunnudag Sunnudaginn 14. desember veður kveikt á jólatrénu á Austurvelli. Tréð er að venju gjöf Oslóborgarbúa til Reykvíkinga en Oslóborg hefur i rúman aldarfjórðung sýnt borgarbúum vinarhug með þessum hætti. Að þessu sinni hefst athöfnin við Austurvöll um kl. 15.30 með leik Lúðrasveitar Reykjavíkur. Sendiherra Noregs á íslandi, Annemarie Lorentzen, mun afhenda tréð en Sigurjón Pétursson, forseti borgar- stjórnar, mun veita trénu viðtöku fyrir hönd borgarbúa. Athöfninni lýkur með því að Dómkórinn syngur jólasálma. Athygli er vakin á því að eftir að kveikt hefur verið á jólatrénu verður barnaskemmtun við Austurvöll. Hvað eru skmmrriar margar í krukkunni ? Sá erkernt mestþví verður iooþúsund krónum ríkari. A Þorláksmessu fœst svarið. Ertu með? Getnmmseölar ligýa fratmni í verskminni. Byggingavörur Sambandsins Suðurlandsbraut 32 • Símar 82033 ■ 82180 Fjallablll I sérflokki. Ford Econoline 1979. Rauður m/framdr. 8 cy) mlöUu. Klæddur og teppal. Rafmspil, torfærudekk o.fl. Ekinn aðeins 15 þús. km. Verð 19,5 millj. Skipti á ódýrari. GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA: ÍLA- MARKAÐ- URINN GRETTISGÖTU sími 25252 Honda Accord 1979. Hvltur, ekinn 21 þús. km, sjálfskiptur, útvarp, snjðd. + sumard. Verö8 millj. Mazda 929 L station árg. 1979. Silfurgrár, ek- inn 18 þús. km. (Jrvaksbill. Verð 7,8 millj. Mazda 929 Hard top árg. 1979. Brúnsanser- aður. Verð 7,4 millj. Bronco Ranger 1977. Rauður og hvltur, 8 cyl. m/öllu, nýryðvarinn, glæsilegur jeppi. Verð 7,5 millj. Skiptí möguleg. þús. km. Atk.: framdrifsbill. Verð 6,7 millj. Lada Sport 1979. Orange, ekimi 30 þús. km, kassettutæki, silsalistar o.fl. Verð 5,5 millj. Skipti á Honda Accord o.fl., milligjöf I pening- Toyota Cressida 1979. Ranður. 5 gk;., ekinn 14 þús. km. Sem nýr. Verð 7,8 miUj- M. Benz 220 disil 1976. Gulur, ekinn 150 þús. km, beinsk., aflstýri, aflbremsur, kassettutæki, snjód. + sumard. Einkabill I sérflokki. Verð 8 miilj. Land Rover Safari disil 1976. Grár, ekinn 77 þús. km. Mótorhitari, 2 miðstöðvar. 10 manna bill, 5 dyra. Mjög gott ástand. Verð 10 millj- ónir. SKIPTI OFT MÖGULEG

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.