Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.12.1980, Qupperneq 12

Dagblaðið - 11.12.1980, Qupperneq 12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1980.. Nýhöggvin og ilmandi innlend jólatré Rauðgrenið kostar frá 10.300 kr. ogfuran frá 14 þús. kr. nálum i það minnsta fram á þrettánda, en furan heldur sínum nálum langtum betur. Nauðsynlegt er að hafa hvorar tveggja tegundimar í jólatrésfótum, sem hægt er að hafa vatn i og gæta þess jafnan að ekki vanti vatn í fótinn. Jólatrésfæturnir kosta hjá Skógræktarfélaginu 8 og 9 þúsund kr. Þar er einnig hægt að fá furubúnt, tilvalin í vasa. Þau kosta 700, 1500 og 2100 kr. hvert búnt eftir stærð. Trén sem á boðstólum eru hjá Skógræktarfélaginu eru öll rammíslenzk og nýlega höggvin. Þau eru úr Haukadal, í Biskupstungum, eitthvað af trjám er úr Heið- mörkinni, þar sem þurft hefur að' grisja, og fáein tré úr skógræktar- stöðinni í Fossvoginum. Opið er frá kl. 8 á morgnana til kl. 7 á kvöldin alla virka daga. Á laugardögum er opið frá kl. lOárdegis til 5 síðdegis og á sunnudögum frá kl. 1 til 5 eftir há- degi. — Rétt þykir að geta þess að verð á alls staðar að vera það sama á jólatrjánum, þau eru inni í vísitölunni, eins og sagt er, það er háð verðlagseftirliti. -A.Bj. Bannað með lögum að baka kökur heima og selja Við auglýstum eftir konum sem gjaldi. Ötrúiegt er að nokkur hús- baka í heimahúsum fyrir fólk í föstu- dagsblaðinu. í býtið á mánudags- morgun var haft samband við neytendasiðuna frá Landssambandi bakarameistara og okkur bent á að það er bannað með lögum að baka kökur fyrir fólk og taka gjald fyrir! Þau lög voru sett á sínum tíma til þess að vernda bakara gegn því að konur tækju þetta að sér. Talsmaður bakarameistaranna sagði hins vegar að látið hefði verið afskiptalaust þótt einstaka konur hefðu auglýst að þær tækju að sér slíkan bakstur, þrátt fyrir að það sé í raun og veru lögbrot. Bakararnir tapa varla á heimabakstrinum Varla kemur til mála að bakararnir tapi almennt á þvi þótt heimavinnandi húsmæður taki að sér smákökubakstur fyrir fólk gegn móðir kaupi allar jólasmákökurnar sínar í bakaríi. Þar eru smákökurnar yfirleitt seldar á 180 kr. stykkið. Að vísu er rétt að taka fram að bakaris- smákökur eru yfirleitt mun stærri heldur en þær sem eru heima- bakaðar. Ein af þeim konum, sem hefur tekið að sér bakstur fyrir fólk hafði samband við Neytendasíðuna. Hún sagðist selja hverja köku á 80 kr., en þær eru minni en þær kökur sem eru á boðstólum í bakaríum. En það sem er bannað samkvæmt lögum er auðvitað bannað og þýðir ekki að mótmæla þvi. Það væri óneitanlega nokkuð broslegt að sjá laganna verði sjá um að lögum þessum sé framfylgt, með því að taka bæði „bakarann” og viðskiptavininn höndum. Já, það er svo sannarlega vissara að fara varlega I -A.Bj. Okkur I tilraunaeldhúsi DB þykir alltaf skemmtilegra afl hafa smá- kökurnar litlar. Bakarar eru hins veg- ar á annarri skoflun og hafa jafnan hlemmistórar smákökur á boðstólum. Það er auðvitað mun meiri fyrirhöfn að búa til litlar kökur en stórar. DB-mynd Bjarnleifur. Oddný Halla Haraldsdóttir var að vinna vió jólatréssöluna er Dagblaðsmenn bar að garði. RÚSÍNULAUST RÚS- ÍNUSÚKKULAÐI Fallegar umbúðir hafa mikið að segja, ekki sízt utan um sælgæti. Súkkulaðiverksmiðjan Linda hefur tekið í notkun nýjar umbúðir utan um súkkulaðið sitt. Þetta eru alveg skinandi fallegar umbúðir og á þeim er innihaldslýsing, þyngd og hvaðeina! Við keyptum okkur einn pakka af mjólkursúkkulaði með rúsínum. Þá kom nokkuð undarlegt t Ijós. Næstum því engar rúsínur fyrir- fundust i pakkanum! Og þær fáu rúsínur sem fundust voru svo smátt skornar að þær voru nærri óþekkjanlegar. Nú er hér á markaðinum erlent súkkulaði með rúsínum. Rúsínurnar i því leyna sér alls ekki. Þær eru mjög áberandi, stórar.bústnar og bragðmiklar! Mér fannst ég vera illa svikin á þessu rúsínusúkkulaði. Ég vil fá rúsínuri súkkulaði með rúsínum! Ef ég vil ekki rúsínur, þá kaupi ég hreint súkkulaði ! -A.Bj. Ásgeir Svanbergsson heldurþarna á furubúntum. Hann leiddi okkur i sannleik- ann um jólatréssöluna, en hann er landsþekktur sfðan hann var með skógræktar- þátt í sjónvarpinu í haust. DB-myndir Einar Ólason.j % Ul?J GUT Handunninn matarsett tesett kaffisett GLIT U/JTCJ HÚFÐABAKKA 9 SÍMI85411 Salá jólatrjám er hafin. Við lögðum leið okkar í höfuðbækistöðvar Skógræktarfélags Reykjavíkur og spurðumst fyrir um verðið í ár. Rauðgreni kostar frá 10.300 kr. minnstu trén, sem eru um 70 cm á hæð, og upp í 16 þúsund, um það bil tveir metrar á hæð. Furutrén kosta á bilinu 14 þúsund og upp í 20 þús. Rauðgrenitrén eiga að halda ÓDÝRT HEIMA- TILBÚIÐ SÍRÓP Eitt af því sem þarf að nota í jóla- baksturinn er síróp. Það er orðið mjög dýrt. í einni af stórverzlunum höfuðborgarinnar sáum við að „leyft verð” á 500 gr af sírópi var 2.362 kr. Steinunn hringdi til okkar og gaf okkur uppskrift að heimatilbúnu sírópi sem hún sagðist hafa prófað og væri mjög gott. Það er mun ódýrara en búðarsíróp, jafnvel þótt sykurinn væri keyptur fyrir hæsta verð sem við höfðum séð, sem er rúml. þúsund kr. kg. 1/2 kg sykur 3 dl vatn 1/2 tsk. salt 2 tsk. borðedik Sykurinn er bræddur við vægan hita. Bezt er að gera það á pönnu með nokkuð háum börmum. Gætið þess vel að minnka hitann fljótt því sykurinn má ekki dökkna of mikið. Vatnið er látið á pönnuna smám saman og hrært vel í og síðast saltið og edikið. Þetta er soðið dálitla stund eða þar til allir kekkir eru bráðnaðir. Þá er sírópinu hellt i skál eða krukkur. Gætið vel að ykkur á meðan á sírópsgerðinni stendur þvi bræðslumark sykurs er hátt og lítill vandi er að verða sér úti um skaðræðis brunasár ef slettist á bera húð. Eins þarf að passa vel upp á hitastigið, sykurinn er fljótur að brennaápönnunni. -A.Bj.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.