Dagblaðið - 11.12.1980, Qupperneq 29
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR I i. DESEMBER 1980.
29
BÍLAR
Nýir japanskir smábílar á íslenzkan markað:
Lítið inn,
það borgar sig.
Þessi glæsilegu húsgögn eru úr massifri
furu og fást í Ijósum viðarlit og brún-
bæsuð.
Staðgreiðsluafsláttur og góð greiðslukjör.
FURUHÚSIÐ H'F
Grettisgötu 46 — Sími 18580.
FORD 34 MED
FARANGURSKASSA
Ford ’34. V8 vél og varahjólið inngreypt í frambrettið. Farangursrými var lítiö í þess-
um bilum, aðallega undir sætunum og aftan við aftursætið. Flestir bilar á þessum ár-
um voru þvi með farangursgrindeða kassa að aftan. Við bílinn er Rögnvaldur heitinn
Þórðarson bilstjóri ásamt dóttur sinni.
í lAggír
Vetrarskoðun
Sum bifreiðaumboðin bjóða
viðskiptavinum sínum í einum pakka
ef svo má segja allsherjar stillingu og
skoðun á bíl og vél, með tilliti til
vetraraksturs.
Kosturinn við þessi tilboð er sá, að
í þeim er tilgreint hvað viðskipta-
vinurinn fær gert og verð þess.
Þó litilsháttar skrums gæti í sumum
auglýsingum þessum er þó óhætt að
fullyrða að sá sem kaupir bíl sínum
slika þjónustu er eins vel búinn undir
veturinn og frekast er unnt.
Með hliðsjón af því verði sem
auglýst er á vetrarpökkunum og ef
söluskattur er innifalinn, þá er einnig
hægt að fullyrða að verði er i hóf
stillt.
Bensínið
Gefið bensíntankinum ísvara öðru
hvoru yfir veturinn, það kemur í veg
fyrir að vatn frjósi í blöndungnum.
ísvari fæst á öllum
bensínstöðvum.
Tjara á
rúðuþurrkublöðum
í umhleypingasamri tíð eru
gúmmíblöðkur i rúðuþurrknanna,
fljótar að hlaða á sig tjöru i þeim
mæli, að þurrkunarhæfni þeirra
minnkar verulega, jafnvel hættulega.
I hverjum bíl ætti því að vera
brúsi með kveikjaralegi, bómull eða
eldhúsrúlluviskur.
Með þessu er hægt að hreinsa
gúmmíblöðkurnar og rúðuna á
svipstundu. Á sama tíma mætti líka
hreinsa framljósabúnað með sama
hætti, en hann hleður líka á sig
tjöruóhreinindum.
MASSIF
FURUHUSGOGN
Vönduð íslenzk
framleiðsla sem er feti
framar —
Nær handverki verður
vart komizt.
Ðga hann gluggalausan
í 18 mánuði og svo...
• Suzuki SS80 fæs! 4ra m> 2ju dyra sem sendibill.
Sveinn Egilsson hf. kynnti nýja gerð
bíla hér á landi um síðustu mánaða-
mót. Þetta eru japanskir smábílar af
gerðinni Suzuki.
Að grunni til eru gerðirnar þrjár, í
fyrsta lagi fólksbíll, vél 3 strokkar,
vatnskæld og framhjóladrif. Þessi bíll
fæst 2 og 4 dyra og sem smásendibill,
þá lokaðar hliðar að aftan. Önnur
gerðin er smásendibíll, frambyggður
með 4 strokka vél og afturhjóladrifi.
Þriðja gerð er smájeppi sem er með 4
strokka vél og t.d. dekk af stærðinni
600x16 eða sömu stærð og her-
jepparnir voru með í fyrstu, 1942. Af
þessum þremur gerðum má svo fá
margs konar útfærslur eftir smekk
kaupenda.
Frambyggði sendibíllinn vakti aðal-
lega athygli mína enda virðist hann sér-
staklega heppilegur sem bæði heimilis-
og vinnubíll. Áætlað verð hans nú án
glugga og sæta að aftan er 4.151.000
en þá fylgir kvöð að upphæð 900 þús.
kr. sem fellur niður á 36 mánuðum,
þannig að séu t.d. gluggar settir á
bílinn eftir I 1/2 ár þá þarf að borga
til ríkisins 450 þús. kr. Sé bíllinn
keyptur með afturgluggum og sætum
þá mun hann kosta um 1,5 millj. kr.
meir. Hvort sem bíllinn væri keyptur
með sætum að aftan og gluggum eða
glugga- og sætalaus þá má telja bílinn
afar heppilegan heimilis- og vinnubíl
eins og áður sagði. Með því að eiga
hann gluggalausan í 1 1/2 ár og
breyta honum síðan þá er kominn ódýr
og rúmgóður fjölskyldubíll. Það er svo
önnur saga að sendibílar með lokaðar
hliðar eru með hættulegri bifreiðum í
umferðinni þannig að í stað þess að
setja kvaðir sem hálfbanna aðsetja
glugga á hliðarnar ætti ríkið frekar að
verðlauna þá sem setja hliðarglugga á
bílana. En það er svo margf skrítið i
kýrhausnum. Suzuki jepparnir eru svo
fullorðinn. Hins vegar er þar ágætt
pláss fyrir þrjá krakka innan ferming-
ar. Jeppinn tekur m.ö.o. ágætlega
vísitölufjölskylduna, sem eru tveir
fullorðnir og 1,9 barn. Þessi jeppi
hefur svo vegna léttleikans eiginleika
sem munu skila honum á ótrúlegustu
staði. Það mun væntanlega sannast á
komandi árum.
Fólksbíllinn er svo næsta númer
fyrir ofan Austin Mini, en að sjá ólíkt
gerðarlegri bíll, t.d. hvað varðar hjóla-
stærð og hæð yfir veg.
Þeir hjá Sveini Egilssyni fá líklega
nóg að gera við að afgreiða þessa bíla,
enda eru gæði og ending japanskra bíla
viðurkennd og svo virðast þær gerðir
sem þarna bjóðast falla vel að þörfum
íslendinga.
-K.Sn.
Suzuki jeppinn. Þessi létti og netti bill á eftir að sjást á óliklegustu stöðum.
sérstakir fyrir hve litlir og léttir þeir eru
(740 kg). Plássið fyrir aftan framsætin
er ekki til að hrópa húrra yfir, en þar
mætti koma fyrir sæti fyrir einn
Kristinn Snæland
Breiöfirðingabúð
Ódýrar vörur verða seldar næstu daga i Breiðfirðingabúð.
t.d. sængurgjafir, barnabuxur. alls konar smábarnafatn-
aður, leikföng, jólatrésvörur, jólatrésskraut og margt,
margt fleira.
Samhjátp augiýsin
Nýja
Samhjálparplatan
fæst í afgreiðslu
Samhjálpar
Hverfisgötu 42.
Opið kl. 13-18.
Sendum í póstkröfu um a/lt
iand. Símar 11000 — 66148.