Dagblaðið - 10.01.1981, Page 1
7. ÁRG. — LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1981. — 8. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AÚGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11.—AÐALSÍMI 27022.
* ' .. " —..... .... .. '
Skotmaöurinn var vel vopnum búinn:
MED DÍNA MÍTHVELLHETT-
UR OGINDVERSKA SVEÐJU
—auk fuilhlaðins ríffílsins sem hann beitti í leigubílnum
Skotmaður sá sem var tekinn fyrir
rúmri viku, eftir að hafa hleypt af
skoti í leigubifreið svo bílstjórinn
slapp naumlega, virðist hafa haft
eitthvað mikið í huga. Þegar skot-
maðurinn var færður á lögreglustöð
var hann með tösku meðferðis. Þegar
hún var rannsökuð kom í ljós að í
henni voru tvær dinamíthvellhnettur
og einnig var maðurinn vopnaður
indverskri ghurka-sveðju.
Dagblaðið greindi frá þvi að
maðurinn hefði rekið riffUhlaupið að
höfði leigubílstjórans er ók honum.
Bílstjórinn beið mannsins fyrir utan
hús er hann birtist með fuUhlaðinn
riffil. Hann beindi honum að
bílstjóranum og skipaði honum að
aka áfram. Bílstjórinn neitaði og
maðurinn hleypti af. Bílstjóranum
tókst að beygja sig frá og skotið hljóp
i bílinn.
Njörður Snæhólm hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins sagði í
gær að þrátt fyrir yfirheyrslur gæti
skotmaðurinn illa gert grein fyrir því
hvað hann hefði ætlað sér með allan
þennan útbúnað.
Sveðjan var í slíðri og ekki með
mikilli egg en hægt að meiða með
henni og hræða að sögn Njarðar.
Njörður sagði að maðurinn sætti nú
geðrannsókn en hann var úr-
skurðaður i gæzluvarðhald eftir at-
burðinn. .jh.
Undirfoúningur Stjörnu-
messu ’81 ífulium gangi:
Takiðþáttí
vinsæklavali
DBog
Vikunnar
—atkvæðaseðill
ábls.16
Sjómenn
búast
til verkfalls
— sjá baksíðu
-sjáWs.6
Athygí isveröar rann-
söknir í Bandaríkjunum:
Lffslíkur
hinnafeitu
betrienþeirra
grönnu
—sjáMs.10
Skák
ogbridge
—sjáNs.8-9
Skúli „íþróttamaður
ársins” í annað sinn
Skúli Óskarsson var í gærdag kjör-
inn , .iþróttamaður ársins” 1980 af
Samtökum íþróttafréttamanna. Kjör
Skúla kom ekki á óvart þar sem hann
hefur staðið sig frábærlega í sinni
grein, kraftlyftingum, á sl. ári. Flestir
minnast heimsmets hans í Laugardals-
höllinni og var það tvimælalaust
hápunktur ársins hjá honum. Þetta er í
annað sinn á þremur árum sem Skúli
hlýtur sæmdarheitið — vann titilinn
einnig 1978.
í glæsilegu afmmælishófi sem Sam-
tök íþróttafréttamanna og Veltir stóðu
að í tilefni 25 ára afmælis kjörsins
afhenti Sigurður Sigurðsson, útvarps-
maðurinn kunni hér á árum áður,
Skúla verðlaunagripinn glæsilega. Sig-
urður afhenti einmitt gripinn árið 1956,
er hann var fyrst notaður, og féll hann
þá í skaut Vilhjálmi Einarssyni. Fleiri
myndir úr hófinu eru einnig á bls. 13 í
blaðinu í dag.
-SSv/DB-mynd S.
— sjánánaráWs. 13
Tekjuaukning
færeyskra
sjómanna
meiri en
annarra þar
ílandi
— sjábls.5
Helgar-
krossgátan
— sjáWs.8
Risaskammt-
arafvítamíni
allramema
bót?
— sjáDBáneytenda-
markaðiWs.4
Hiibner
gafst upp
—fyrir Kortsnoj
íeinvígiþeirra
Þýski stórmeistarinn Robert Híibner
gafst í gær upp fyrir rússneska skák-
manninum Viktor Kortsnoj í einvígi
þeirra sem háð hefur verið að undan-
förnu í Merano á Italíu.
Þýðir þetta að Kortsnoj keppir enn á
ný við Anatoli Karpov um heims-
meistaratitilinn í skák síðar á þessu ári.
Tvær skákir voru eftir í einvíginu og
var staðan, þegar Húbner tilkynnti um
ákvörðun sína, 4 1/2 gegn 3 1/2 Kort-
snoj í vil. Mótshaldararnir sögðu
fréttamanni Reuters í gærkvöld að
HUbner hefði ekki átt möguleika á að
vinnaeinvígið. -ÓV.