Dagblaðið - 10.01.1981, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1981.
„Viljieralltsemþarf”:
Stjómvöld kosin
til að stjórna
—hefjið strax nauðsynlegar aðgerðir
Garflar Björgvlnsson útgerðarmaflur,
Raufarhöfn skrifar:
Nú er fyrsti þáttur hafinn hjá
þessum svokölluðu „starfsmönnum”
ríkis og bæja. Kristján Thorlacius er
lagður af stað 1 grátferð. t síðasta
stórverkfalli BSRB unnu 4 menn í
stofnun einni hjá Reykjavikurborg,
verk sem 33 menn annast á friðartím-
um, þessir menn bættu við sig 2
aukavinnutímum á dag til að geta
haldið þessari stofnun í fullkomnu
lagi. Ef BSRB menn þurfa hærra
kaup þá er ekkert auðveldara en
grisja hópinn og bæta við einni
vinnustund ádag.
Það var ekki nema sanngjarnt að
þingmenn fengju góöa kauphækkun
fyrir hin glæsilegu bráöabirgðalög
Raddir
lesenda
sem kynnt voru þjóðinni svo
hæversklega á gamlárskvöld, það er
hér um bil öruggt að verðbólgan
verður hjöönuð eftir svona 350 ár.
Svona 1 alvöru talað, það er nú
sennilega bezt að lofa þessari stjórn-
leysu að lafa svona fram á vorið svo
að kommar geti séð úrræðaleysi sitt
svart á hvitu. Þeim ágætu mönnum,
sem síðast héldu um stjórnvölinn
hefur tæplega vaxið svo fiskur um
hrygg að þeir séu neitt líklegri til
stórræða nú, þegar bókstaflega allt er
komið í vaskinn.
Þessi fríði hópur þarna 1 Alþingis-
húsinu líkist helzt hræddum börnum,
sem halda hvert 1 annað. Á stuttum
tíma er búið að gera þrjú nokkuð dýr
og tímafrek heimskupör. Fyrst voru
það desember kosningarnar frægu,
síðan forsetakosningar með tilheyr-
andi sýndarmennsku og umstangi,
siðan tökum við okkur til og skiptum
um gjaldmiðil líkt og við værum
Svisslendingar.
Til að koma efnahag vorum 1 jafn-
vægi, þarf snör og ákveðin handtök.
1. Setja á öflug innflutningshöft. 2.
Bæta tafarlaust hag undirstöðunnar,
útgerðarinnar. 3. Hætta tafariaust
að flytja inn þær vörur sem hægt er
að framlciða i iandinu. 4. Banna með
iögum öll verkföll og alla
þrýstihópastarfsemi. 5. Se.ja skatt-
greiðslur inn í vöruverð og hækka
barnabætur, elli- og örorkulifeyri.
6. Loka rikisbákninu svo sem mögu-
legt er. 7. Lengja vinnutíma um eina
klst. á dag og vinna til hádegis á
laugardögum, en iækka kaup og
vinna sem mest í ákvæðisvinnu.
Þessi atriði eru þau sem eru mest
aðkallandi strax áður en verkföll fara
að geisa. VILJI ER ALLT SEM
ÞARF. Stjórnvöld eru kjörin tii að
framkvæma það sem nauðsynlegt er
fyrir þjóðarheill. Stjórnendur eiga að
hafa bein í nefinu og þeir eiga að
framkvæma það sem þeir telja
samkvæmt eigin sannfæringu rétt,
ekki hringsóla eins og járnsmiðir í
hlandkoppi eftir því sem Jón Jónsson
á götunni vill, af ótta við að missa
stólana sína.
Togarasjómenn afl „splæsa” saman vir. Bréfritari segir afl taka þurfi á efnahagsmálum af einurð.
Þafl hefur viljað lofla við nokkra einstaklinga meflal „hestamanna” að þeir hafa
reynt afl láta hesta sina ganga sjálfala.
Skiljið skepn-
uraar ekki eft
ir f hirðuleysi
Vegfarandi hringdi:
Mér blöskrar að sjá hvernig komið
er fyrir vesalings skepnunum. Núna
um hátíðarnar hafa fimm hestar
verið að berjast á Útvarpstúninu uppi
á Vatnsendahæð. Þeir eru búnir að
vera þarna í stórhríðinni, sem verið
hefur undanfarið, aigjörlega
hirðulausir.
Það er alveg sárgrætilegt að horfa
uppá vesalings skepnurnar, þær híma
undir möstrunum enda hafa þær
Raddir
lesenda
ekkert annað skjól og engin beit er
fyrir þær. Þetta eru fjórir hestar og
folald sem á að vera í húsi eins og
lömbin.
Fyrst og fremst á engin skepna að
vera þarna en svo er líka smánarlegt
að hafa hestana svona eftirlitslausa i
hagleysi og án nokkurs skjóls.
Sendum þeim tómstundagögn
þakkir til lögreglu Self oss
Lesandi skrifar:
í lesandabréfi í Vísi 7. jan. var
lögreglunni í Reykjavik þakkað fyrir
frábæra lipurð og hjálpsemi í
ófærðinni undanfarna daga.
Það sama er ekki hægt að segja
um koiiega þeirra á Selfossi. Að þeir
hjálpi tii „nei, ekki aldeilis, að þeir
sjáist gangandi um bæinn, þessir fitu-
hlúnkar,” ekki aldeilis.
Að þeir hafi hjálpað bílunum 25—
30 á jóladag um hádegið fyrir neðan
Arnberg. Nei. Um leið og þeir sáu að
fólk var í erfiðleikum flýttuþeir sér.
í burtu. Lögreglumenn á Selfossi, þið
ættuð ekki að gera of mikið, annars
léttist þið. Það eru mörg vitni.
Að þið hafið hjálpað, ekki
aldeilis. Ég hvet alla þá er kannast
við þessi vinnubrögð á Selfossi að
sýna þeim þakklætisvott fyrir léleg
vinnubrögð, þvi ég held að þá vanti
ný spil, töfl, bækur o. fl.
Lögreglan i Reykjavík hefur verifl'
lofufl fyrir hjálpsemi. Bréfritari segir,
að ekki sé hægt að segja það sama
um lögregluna á Selfossi.
DB-mynd: SVÞ.
“WV"
tutt og skýr bréf
Enn einu sinni minna lesendaiiálkar DB alla þá. er
hyggjast senda þœttinum linu. at) láta lýlyia /'ullt na/'n.
Iieimilisfan/’. símanúmer lef um þaö er að rtvða) oy 4
nafnnúmer. Þetta er Ittil fyrirhöfn fyrir hréfritara okkar
oy til mikilla þœftindafyrir DB.
Lesendur eru jafnframt minntir á að bríf eiya að
rera stutt oy skýr. Áskilinn er fullur réttur til að
stytta hréfofi umorða til að spara rúm <>f> koma
efni hetur til skila. Bréf cettu helzt ekki að vera
lenpri en 200—300 orð.
Simatimi lesendadálka DB er milli kl.
13 of> 15 frá mánudöyum tdfostuduya.