Dagblaðið - 10.01.1981, Page 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR ÍO.JANÚAR 1981.
3-
FLYTJUM EKKIINN DÝR
Spurning
dagsins
—ef vid getum ekki búið vel að þeim
Sólveig Sigurjónsdóttic, Karfavogi
31, hringdi:
Ég fór í Sædýrasafnið fyrir mán-
uði og sá m.a. ljónin og apana. Vesa-
lings dýrin hírðust þarna í smáklefa,
ljónin lágu í móki á gólfinu og
aparnir héngu sljóir í rimlunum. Mig
hryllti við, síðan sá ég þessi sömu
dýr, þ.e.a.s. ljónin í sínu náttúrlega
umhverfi í sjónvarpsþættinum Lífíð
á jörðinni sl. þriðjudag, ég ætlaði'
ekki að þekkja þau fyrir sömu dýr.
Við eigum ekki að vera að flytja inn
þessi dýr ef við erum ekki menn til að
búa betur að þeim. Manni blöskrar
að heyra hjalað um það hve gott allt
sé á íslandi meðan slík misþyrming á
sér stað hér á landi.
DB hafði samband við Sædýra-
safnið, þar var til svara Jón Diðrik
Jónsson. ,,Það var ekki einkennandi
fyrir hegðun Ijóna að sjá þau í veiði-
hug eins og þau voru sýnd í
sjónvarpsmyndinni. Ljón liggja fyrir
meirihluta dags. En ég er sammála
því að búrin sem þau eru í núna eru
ekki nægilega stór, það hefur verið
ætlunin að búa betur um þau síðan
þau komu. Ég get aftur á móti ekki
tekið undir það sem Sólveig segir um
apana. Þeir eru ekki sljóir. Ef þeir
hafa ekki verið eins og þeir eiga að
sér að vera hlýtur það að hafa verið
vegna þess að þeir hafa verið nýbúnir
aðéta.
Það hlýtur alltaf að vera nokkrum
vandkvæðum bundið að taka dýrin
úr sínu náttúrlega umhverfi, það eina
sem við getum gert, er að gera þeim
vistina eins bærilega og við getum.
Því það er full þörf á að hafa dýra-
garð í nálægð þéttbýlis, eins og
Reykjavíkursvæðið er.
Hér er eitt Ijónið i Sædvrasafninu. Ekki er gott að ráða af svip þess hvort það er
áiuegt með vistina þar.
Hverjir
skipa
kjara-
dóm?
Guðrún hringdi:
Getur DB komizt að því hverjir
það eru sem skipa kjaradóm, sem út-
hlutaði alþingismönnum 23.4%
hækkun.
Mér þætti fróðlegt að vita það og
veit ég að svo er um fleiri.
SVAR:
Kjaradóm skipa þeir: Benedikt
Blöndal, Jón Finnsson, Ólafur Nils-
son, Jón Rögnvaldsson og Jón G.
Tómasson.
Þörf á neytenda-
þjónustu f
heilbrigðismálum
AiþiagÍMKH okkar hafa nýlega
fengið riflega hækkun ásamt BHM
mönnum.
DB-mynd: Einar Ólason.
Hope Knútsson iðjuþjálfi skrifar:
Ég vil þakka Dagblaðinu fyrir
grein Geirs Viðars Vilhjálmssonar
Þörf neytendaþjónustu í heilbrigðis-
málum, sem birtist i blaðinu sl.
mánudag 5. jan.Það var kominntími
til að fslendingar hættu að tala undir
rós um heilbrigðismál sín.
Ég vil leggja til, að í tilefni
alþjóðaárs fatlaðra 1981 verði
hverjum vistmanni á sjúkrahúsi eða
hjúkrunarstofnun kynnt réttindi sín.
Skrifuð hefur verið mjög góð bók um
þessi efni, heitir hún „How to
Choose and Use Your Doctor” eftir f
Marvin Belsky, M.D. Bók þessi
sviptir hulunni af læknamafíunni og
kennir okkur hvernig við eigum að fá
sem mest út úr þeim lækni sem við
höfum samskipti við.
Ég er með tvær aðrar tillögur í
sambandi viðalþjóða ár fatlaðra: Sú
fyrri er að öllum tollum verði aflétt
af hjálpartækjum til fatlaðra. En
þetta er eitt mesta hneykslið í annars
góðri heilbrigðisþjónustu hér á
íslandi.
Hin síðari er að gangstéttir verði
hreinsaðar á götum borgarinnar. Það
er algjörlega vonlaust fyrir fatlaða að
reyna að komast leiðar sinnar eins og
ástandið hefur verið á gangstéttum
borgarinnar að undanförnu.
Hvernig leggst árið
1981 íþig?
Krlstiaa Páksoa MfvéiavirU: Ágæt-
lega. Þó veit maöur ekkert hvað fyrir-
hugaðar efnahagsaögeröir hafa I för
með sér.
HaMs Hjsitsdóltlr hásaóðlr: Bara á-
gætlega. Ég vona bara að verðbólgan
minnki.
Sigurðar Gestasoa, vlaaur vlð már-
verk: Það leggst vel i mig. Ég vona að
þetta verði sæmilegt ár, þó hef ég litla
trú á þvi aö verðbólgan minnki.
Hörður Smári Hákonarsou, vlaaur við
múrverk: Mér iizt svona sæmilega á
árið. Ég er hræddur um að litið verði
hægt að draga úr verðbólgunni,
kröfurnar eru svo miklar. Þjóöin gæti
vel minnkað viðsig.
Aðalheiður Þorsteiasdóttir húsmóðir:
Það leggst bara vel i mig, svipaö og
önnur ár. Vona að manni vegni vel og
það verði friður milli fólks.
Súsanna Poulsen, vinnur I
Hagkaupl: Ágætiega, eða bara eins og
önnur ár. Ég finn ekki svo mikið fyrir
áramótum.