Dagblaðið - 10.01.1981, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10.JANÚAR 1981
DB á ne ytendamarkaði
Allrameinabót?
RISASKAMMTAR
AF VÍTAMÍNI
—20 milljónir Bandaríkjamanna telja svo vera
Leikarinn Georg Hamillon er einn af fylgismönnum Passwaters. Hér drekkur
hann Ijósmyndaranum til. t glasinu er dagskammtur hans af vitaminum og annað
eins á diskinum. Hamilton hefur tekið vitamin i þessum maeli i 10 ár og segist vera
allur annar maður. Myndin er tekin þegar hann var að leika i myndinni um Zorró
og sverðið hýra.
NOTFÆRA KAUP-
MENN SÉR GJALD-
MIÐILSSKIPTIN?
Því hefur oft verið haldið fram að
Bandaríkjamenn væru upp til hópa
öfgamenn á alla skapaða hluti. Og
víst er um það að oft eiga ýmis tízku-
fyrirbrigði rót sina að rekja til
Bandaríkjanna. Þar taka menn upp á
ýmsum hlutum af svo mikilli ástríðu
að fyrr en varir er það hið sama orðið
að alþjóðlegum sið eða ósið, hvort
heldur menn vilja kalla það. Hið
nýjasta er það sem margur myndi
kalla ofát á vítamíntöflum. Talið er
að um það bil 20 milljónir Banda-
rikjamanna taki á degi hverjum
miklu stærri skammta af vítamínum
en fram að þessu hefur verið talið
ráðlegt.
Lifefnafræðingurinn dr. Richard
Passwater á að nokkru leyti heiður
eða sök á þessu. Hann hefur ritað
bók um það hversu gott menn hafa
af vítamínáti og hefur bókin sú selzt í
milljónum eintaka. Hún er núna
fimmta í röðinni af metsölubókum
um næringarfræði.
í bókinni er því haldið fram að
rétt vitamínneyzla geti ekki aðeins
lengt líf manna um 15 ár, heldur geti
hún einnig minnkað að mun þann
fjölda sjúkdóma sem menn eiga á
hættu að fá. Eru það sjúkdómar allt
frá kvefi til krabbameins. Til dæmis
er sérstaklega tekið fram að enginn
undir áttræðu ætti með réttri notkun
Richard Passwater re.vndi upphaflega v
vitaminkenningu sina á músum. Þarna
heldur hann á einum af sínum gamla
kunningja sem enn fær risaskammta af
vítamini.
vítamíns að þjást af hjarta-
sjúkdómum.
Margir af læknum og lífefna-
fræðingunum vestur í Bandaríkjun-
um eru alls ekki sammála Passwater í
því efni. Þeir halda því fram að vissu-
Iega þurfi maðurinn á vítamínum að
halda, en þó að lítill skammtur af
þeim geri gagn er ekki þar með sagt
að stór skammtur geri enn meira
gagn.
Meira að segja Passwater varar
fólk með magakrankleika við að taka
svona mikið af vítamínum og segir,
að eigi þau að gera fullt gagn verði
menn líka að sofa að minnsta kosti 8
klukkustundir á sóiarhring, hreyfa
sig mikið, hætta að reykja og
minnka áfengisdrykku niður í nær
ekki neitt. Rétt samsett fæða sé
einnig áríðandi. Þau næringarefni
sem menn fá í fæðunni og þau sem
þeir taka svo til viðbótar í töfluformi
mega alls ekki fara upp fyrir ákveðið
hámark, þá er hætta á eitrun. Sér-
lega á þetta við um A og D vítamín.
50—60 vítamín eru i þeim hópi
sem Passwater telur að neyta eigi
stöðugt. Þau mikilvæguslur eru:
A vitamín. Upp að 25 þúsund
alþjóðaeiningum á dag. Fram að
þessu hefur ekki verið mælt með
meira en 5 þúsund einingum á dag í
Bandaríkjunum. Skammtur yfir 100
þúsund einingum getur orsakað
eitrun.
B vitamin. Um það bil 50 milligrömm
af hverju hinna 11 B vítamína nema
B15 (50 míkrógrömm). Þetta er um
það bil 25 sinnum sá skammtur sem
mælt hefur verið með áður.
C vitamín. 2 þúsund milligrömm.
Fram að þessu hafa 60 milligrömm
verið taliri nægjanleg.
É vitamín. 400 alþjóðaeiningar.
Venjuiegurskammturer 10.
Ýmis steinefni eins og t.d. sink í
stórum skömmtum.
Passwater hefur mikla trú á víta-
míninu Bts (pabgamic acid) sem
allsherjar læknislyfi. Þetta er í raun-
inni ekki vítamín heldur blanda
kemískra efna og steinefna og
framleitt í verksmiðjum. Innihald
þess er mjög misjafnt og lyfjafyrir-
tæki eitt i Bandarikjunum hefur
nýlega verið dæmt til að taka það út af
markaði þar eð í það var notað efni
sem talið er að kunni að valda
krabbameini. Þetta fyrirtæki
framleiddieinmitt meginhluta þessBts
sem seít var. Sækjandinn í málinu
segir það tóma vitleysu úr Passwater
að þetta vítamín geri eitthvað gott.
Það sé gabb eitt. Passwater
viðurkennir það auvðitað ekki og
segir réttinn hafa fengið rangar
upplýsingar. Því hyggst hann áfrýja
málinu og finna til ný og fleiri vitni.
Passwater stendur ekki einn í bar-
áttu fyrir aukinni neyzlu vítamína.
Til liðs við hann hefur m.a. gengið
dr. Linus Paulipg, sem er íslending-
um að góðu kunnur. Pauling hefur
tvisvar fengið Nóbels-verðlaún fyrir
kenningu sína um gildi C-vítamíns.
Passwater segir Pauling vera helzta
spámann sinn í fræðunum.
Passwater hefur stundað
rannsóknir á vítamínum síðan 1959
og þykist vera orðinn nokkuð viss
um það sem hann er að segja. Hann
er með daglegan útvarpsþátt hjá
tveim útvarpsstöðvum í New York og
skrifar auk þess um vítamín. Sjálfur
fer hann dyggilega að eigin kenningu
og lætur alla fjölskyldu sína einnig
gera það.
Hann segir að auðvitað finni
menn ekki strax á sér breytingu til
batnaðar þegar þeir byrji að taka
vítamín í þessum mikla mæli. En
smám saman finni menn hvað þeim
aukist kraftur og eftir 20 ára inntöku
uppgötvi menn að þeir eru mun
hraustari en meðbræður þeirra.
Andleg og líkamleg vellíðan sé mun
betri en hjá þeim, sem ekki taka víta-
mín.
Hér skal ekki lagður dómur á
þessa kenningu en hitt veit ég að
margir læknar eru á móti því að fólk
taki vítamín nema í litlum mæli.
Ýmislegt um vítamin er mönnum enn
of ókunnugt til þess að þeir þori að
mæla með þeim í risaskömmtum,
sem fylgismenn Passwaters taka. En
um það bil 20 milljónir Bandaríkja-
manna hafa þessi orð þeirra að engu
og enn er reynslan of stutt til þess að
.hægt sé að dæma um árangurinn.
Hér skal engum ráðlagt að taka
svona mikið vítamín án samráðs við
lækni. -DS.
Kona úr Kópavogi skrifar:
Þann 5.1. ’81 keypti ég eitt stykki
heilhveitibrauð (vísitölu) í bakarii.
Það kostaði 4,45 kr. Mér fannst það
hátt verð og ítrekaði hvort ekki væri
um „vísitölubrauð” að ræða. Mærin
sem afgreiddi kvað svo vera. Ég
hafði samband við verðlagsstjóra og
spurði um verð á vísitölubrauðum.
Verð á heilhveitibrauði samkvæmt
vísitölu var 3,22 kr. Var mér
jafnframt tjáð að bakaríseigendur
hefðu auglýst ólöglegt verð og væru.
brauðin, seld samkvæmt því. Verðið
sem þeir auglýstu var 3,70 kr.
Athugum þá mismuninn. Á sölu-
verði og leyfilegu verði er hann
4,45—3,22 eða 1,23 kr. (123 gamlar
krónur). Mismunur á söluverði og
auglýstu verði er 4,45—3,70 eða 0,75
(75 gamlar krónur). Dálaglegur mis-
munur þetta.
Fyrirgefðu rausið í mér en mér
sýnist ýmsir ætla að notfæra sér
gjaldmiðilsbreytinguna sér til
framdráttar.
SVAR: Því miður neyðumst við til að
taka undir orð konu úr Kópa-
voginum. Við höfum fengið fjölda
fregna af því að verð á vöru í búðum
hafi verið allt of hátt. í fyrstu
reyndum við að afsaka afgreiðslufólk
með því að það væri óvant hinum
nýja gjaldmiðli og því væri ekki við
öðru að búast. En eftir því sem
dagarnir líða kemur hinn bitri
sannleikur betur í ljós. Sumir kaup-
menn ætla sér greinilega að græða á
gjaldmiðilsbreytingunni. Þegar
verðskyn neytenda er orðið eins
brenglað og það er og þar á ofan
bætist nýr gjaldmiðill er þetta því
miður auðveldur leikur.
í þeim upplýsingum sem Seðla-
bankinn sendi frá sér er kveðið á um
að hækka skuli eða lækka aura,
þannig að standi slétt á hálfum eða
heilum tug aura. Þetta á þó aðeins að
gera í lokaupphæð þess sem greitt
er. Annað á að reiknast í einstökum
aurum og svo segir að minnasta kosti
bankafólk, sem fengið hefur þessar
upplýsingar. í heildina munar þetta
kannski litlu ef þess ergættaðlækka
niður jafnt og hækkað er upp. En
þeir sem gruna kaupmenn um græsku
halda því fram að þeir hækki alltaf
upp og lækki aldrei niður. Og þá
getur farið að muna um þetta.
Auðvitað eru ekki allir kaupthenn
undir sömu sökina seldir. En það er
alltaf svo að þeir fáu sem koma illa
fram setja blett á allan hópinn. Því
er neytendum bent á að vera vel á
verði. -DS.
Herniilisbákhald. vikuna:
ta
Mat- og drjðdgarvörur, hreinlætisvörur ogþ.h.:
Sunnud Mánud Þridjud Midvikud Funmtud Föstud Laugard
Sarat Sanxt Samt Samt Samt Samt fiamt
Önnur útgjöld:
Sunnud Mánud Þriðjjud Miðviknd FLmmtud Föstud Laugard
-i
Sunt Bamt Samt Samt Samt Samt San*.
i