Dagblaðið - 10.01.1981, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR ÍO.JANUAR 1981.
5
Óskar Vigf ússon Sjómannasambandsf orseti dvaldi hjá Færeyingum um jól og áramót:
Tekjuaukning sjómanna
þar meiri en annaira
— smjörið frá ísa
köldu landi kostar
helming
þess sem við
borgum fyrirþað!
„Mér varð hugsað til kjaramála sjó-
manna á íslandi þegar ég heyrði ára-
mótaræðu Atla Dam lögmanns. Þar
sagði hann að liðið ár hafi einkennzt af
erfiðu efnahagsástandi en þó gætu allir
fagnað því að tekjuaukning sjómanna
var meiri en annarra landsmanna á
árinu,” sagði Óskar Vigfússon forseti
Sjómannasambands íslands, en hann
dvaldi um jól og áramót í góðu yfirlæti
hjáFæreyingum.
„Ég reyndi að nota tímann til að
kynna mér ýmsar hliðar á þjóðlífi í
Færeyjum, meðal annars lauslegan
samanburð á verðlagi og kaupi þar og
hér. Satt að segja botna ég ekkert í
þeim samanburði þegar tillit er tekið til
að einna hæstu meðaltekjur heims eru
sagðar vera á íslandi.”
Óskar sagði að verkamannakaupið
væri tvöfalt hærra í Færeyjum en á
íslandi og þar ynnu menn yfirvinnu
aðeins í brýnni neyð — nema fslend-
ingar sem eru þar við störf. Hann
nefndi dæmi um verðlagið í Færeyjum,
í öllum tilvikum íslandi í óhag við
samanburð milli landa: ýmsa mat-
Vaxandi annríki í borgardómi:
Á SJÖUNDA ÞÚSUND
MÁL VORU AFGREIDD
Borgardómur Reykjavíkur af-
greiddi á siðasta ári alls 6678 mál og er
það 869 málum fleira en árið áður. Af
þessum voru 6236 skriflega flutt en
5312 árið áður. Er því greinilegt að
annríki í borgardómi fer stöðugt vax-
andi.
Dæmt var í nokkuð færri skriflega
fluttum dómsmálum á síðasta ári en
árið áður, eða 1312 á móti 1447 árið
1979, Mun fleiri áskorunarmálum var
lokið, eða 3822 á móti 2994 árið áður.
Sættir tókust í 458 málum í fyrra en
401 árið áður. 644 ný skriflega flutt
mál voru hafín og er það talsvert fleiri
en árið áður, þegar þau voru 470.
Af munnlega fluttum málum var
dæmt í samtals 203 en 175 árið áður.
Sættir tókust í 93 munnlega fluttum
málum og er það tveimur fleiri en ’79.
92 ný munnlega flutt mál voru tekin
fyrir, einu fleira en árið áður. Afgreidd
voru þrjú vitnamál á móti tveimur árið
áður og tvö eiðsmál, en ekkert slíkt
1979. Kjörskrármál á síðasta ári voru
49 en 138 árið áður og voru þá svo
mörg fyrst og fremst vegna alþingis-
kosninganna í desember 1979.
Álíka fjöldi gekk í hjónaband fyrir
borgardómi í fyrra og fékk þar leyfi til
skilnaðar að borði og sæng, eða 192
hjónavígslur og 187 skilnaðir að borði
og sæng. Hvort tveggja er mjög svipað
árið áður. Alls voru afgreidd 507
skilnaðarmál hjá borgardómi í fyrra,
þremur fleiri en árið áður.
Til hæstaréttar var áfrýjað 59
málum, sem dæmt var í i Borgardómi,
aðeins einu færra en árið áður, skv.
upplýsingum, sem Björn Ingvarsson
yfirborgardómari hefur látið frá sér
fara.
-ÓV.
Fara Boeingþotumar til Nígeríu:
Málin enn á
viðræðustigi
vöru, bensín,olíur,rafmagn til heimilis-
nota og margt fleira. Skattbyrði
Færeyinga er léttari en sú sem lögð er á
bökin okkar, til dæmis greiða nágrann-
ar okkar ekki fasteignaskatta. Og
óneitanlega þótti forseta Sjómanna-
sambandsins einkennilegt að rekast á
íslenzkt smjör í búð sem kostaði helm-
ing þess sem vesælir neytendur á ísa
köldu landi borga fyrir eigin fram-
leiðslu. Og danska smjörið var enn
ódýrara í verzlunum 1 Færeyjum. ARH.
Vestmanna i Fære.vjum: F.nginn vinnur eftirvinnu að nauðsynjalausu — nema
islenzkir farandverkamenn.
Til sölu einbýlishús
á Stöðvaif irði
Húsið er 140 ferm • 5 herbergja og byggt á árunum 1976-1980.
Allar nánari upplýsingar gefa Sigurður Sigurðsson í sima 91-66110.
— segir Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi
Flugleiða
„Þessi mál eru enn á
viðræðustigi,” sagði Sveinn
Sæmundsson blaðafulltrúi Flugleiða
er DB grennslaðist fyrir um hvað liði
hugsanlegum kaupleigusamningi á
báðum Boeing 727—100 þotum
Flugleiða til Nígeríu.
Svo sem Dagblaðið greindi frá i
vikunni kom Nígeríumaður, að nafni
Adamo hingað til lands og falaðist
eftir vélunum. Hann hefur hins vegar
enn ekki fengið flugrekstrarleyfi og
ræðst málið af því hvernig það
gengur. Sveinn sagði að Flugleiðir
byggjust við svari frá Adamo eftir
miðjan mánuð, en þá ætti að vera
Ijóst hvort hann fær flugrekstrar-
leyfið. Að sögn Sveins hefur einnig
komið til tals, að Nígeríumaðurinn
tæki á leigu eina af EX3-8 þotum
Flugleiða.
Sveinn var að því spurður, hvort
Flugleiðir myndu kaupa eða leigja
nýja Boeing 727—200 þotu, ef af
kaupleigusamningnum yrði. Hann
sagði að ekki yrðu gerðar neinar
ráðstafanir fyrr en i ljós kæmi hvort
Nígeríumaðurinn fengi flugrekstrar-
leyfið.
-JH.
Seinni Fokkerinn
farinn til Líbýu
— Flugleiðir taka á leigu Fokkervél f rá Banda-
ríkjunum sem kemur nú um helgina.
— Twin Otter í innanlandsflugið vegna breyt-
inga á Flugleiðavélunum
Seinni Fokkerflugvél Flugleiða,
sem leigð var til Líbýu, fór þangað i
fyrradag. Leiga beggja vélanna
stendur í eitt ár. Að sögn Sveins
Sæmundssonar fylgja vélunum fjórir
íslenzkir flugstjórar og jafnmargir
vélamenn.
íslenzkir flugmenn og flugvirkjar
munu skiptast á að fljúga vélunum í
Líbýu og er hver maður þar þrjátíu
daga minnst og sumir lengur. Þá
verða vélarnar sendar heim til
skoðunar og aðrar út í staðinn,
þannig að ekki verða alltáf sömu
Fokkervélarnar í Líbýu, meðan á
leigunni stendur.
Svo sem kunnugt er, keyptu
Flugleiðir eldri Fokkervél Land-
helgisgæzlunnar — TF-Sýr og er hún
nú notuð á áætlunarleiðum félagsins
innanlands. Þá hafa Flugleiðir einnig
tekið á leigu Fokkervél í Banda-
ríkjunum og er hún væntanleg til
íslands nú um helgina. Hér er um að
ræða Fokker, sem Flugleiðir seldu til
Bandaríkjanna í fyrra, TF-FLP.
Að sögn Sveins hefur flug fyrri
Fokkersins, sem fór til Líbýu, gengið
vel.
Fyrirhugað er á næstunni að gera
endurbætur á mælaborði Fokker-
vélanna tveggja, sem keyptar voru
frá Kóreu. Sams konar breyting og
skoðun fer fram á TF-Sýr. Vegna
þessara breytinga á vélunum, hafa
Flugleiðir tekið á leigu Twin-Otter
flugvél frá Flugfélagi Norðurlands.
Þeirri vél verður flogið af flug-
mönnum Flugleiða, en margir þeirra
hafa reynslu af slíkum vélum, hafa
starfað á þeim áður en þeir komu til
Flugleiða. -JH.
j
Þak hf. auglýsir
Þak sumarhús
Hefjið tímanlega undirbúning fyrir næsta sumar og kaupið ÞAK sumarhús
nú til uppsetningar næsta vor. Athugið okkar hagkvæmu skilmála.
Hringið strax í dag og fáið nánari upplýsingar.
Heimasímar. Heiðar 72019, Gunnar 53931.
ÞAKHF
Sími 53473