Dagblaðið - 10.01.1981, Blaðsíða 6
6
DAGBLADID. LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1981.
Vantar — Vantar
þriggja herbergja íbúð í Breiðholti.
Höfum góðan kaupanda að þriggja herbergja íbúð í
Breiðholti. Afhendingsamkomulag.
Kjöreign s/f
Ármúla21.
Dan V.S. Wiium, lögfrœðingur.
85988 • 85009
IMý námskeið
hefjast fimmtudaginn 22. janúar og standa til 30. april
1981.
1. Teiknun og málun fvrir börn og unglinga.
2. Teiknun og málun fvrir fullorðna.
3. Bókband.
4. Almennur vefnaður.
Innritun fer fram daglega kl. 10— 12 og I4—17 á skrif-
stofu skólansaðSkipholti I.
Námskeiðsgjöld greiðast við innritun. áður en kennsla
hcfsL Skólasljóri
TÓNLEIKAR
sunnudag 11. jan. kl. 17.00
Sigriður Ella Magnúsdóttir svngur við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar. Á efnisskrá eru lög eftir Gunnar
Reyni Sveinsson, Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigur-
Aðgöngumiðar í kaffistofu og við innganginn.
Frá Menntaskóbnum
v/Hamrahfíó
Stundatöflur dagskóla verða afhentar mánudaginn 12. jan.
kl. 10.30. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá I3. janúar.
Kennsla í Öldungadeild hefst samkvæmt stundaskrá I2.
janúar.
fíektor
Happdrætti Sjátfsbjargar
24. des. 1980.
Aðalvinningur: VOLVO DL 244 ár>>. 1981, nr. 42050. Sex sólarlanda-
ferðir með ÍJtsýn, hver á Gkr. 400.000,- 93 vinningar á Gkr. 30.000,- hver
(vöruúttekt).
111 14949 35343
120 15318 36656
159 15453 36723
1565 15482 36986
2432 16008 38306
3130 17098 39611
3340 17558 40001
3802 18683 40082
3860 19422 40166
5434 20265 42050 billinn
5850 21025 42149 sólarferö
5919 21109 43449
6051 21462 43677
6052 21751 43681
7296 23074 48910
7438 25039 49001
7688 26412 49409
8954 27514 51281
9030 28334 51915
9983 28461 52216
10038 28726 52217
10496 29454 52304
10813 29980 53141
10825 30066 sólarfcró 53785
11348 30087 53996
11349 30210 54516
11505 30612 55500
11561 31482 sólarferö 56059
11780 31666 57001
12805 31755 sólarferö 57002
12950 33823 58672
13811 33857 sólarferö 59939 sólarferð
13884 35093 ' 60000
14316 Sjá/fsbjörg, landssamband fatiaðra
Hátúni 12, Reykjavík, sími29133.
DB-mynd Gunnar öm.
Kaffihús bœjaríns.
„Snuðar” Hitaveitan notendur?
NOTKUNIN MISJÖFN
EFTIR ÁRSTÍÐUM
—en áætlunin jöf n yf ir allt árið, segir hitaveitustjóri
„Ég hef nú ekki enn lesið greinina
hans en mér skilst svona lauslega að
hann miði við notendur í Hafnarfirði
sem lesið var á mæla hjá i vor,”
sagði Jóhannes Zoöga hitaveitustjóri
er DB ræddi við hann í gær um
kjallaragrein Gísla Jónssonar
prófessors í DB fimmtudag. Þar hélt
Gísli því fram að Hitaveita Reykja-
víkur „snuðaði” notendur um 360
milljónir gkr. á ári með því að
ofáætla notkun þeirra.
„Ekki er ég nú sammála þvi sem
hann segir. Notkunin er misjöfn eftir
árstíðum en áætlunin er jðfn allt árið
í kríng þannig að ég held að þetta
jafni sig út,” sagði Jóhannes.
„Menn borga meira á sumrin en á
veturna. Notkunin yfir köldustu
vetrarmánuðina getur verið þrisvar
sinnum meiri. Áður olli það miklum
vanskilum og vandræðum þegar
menn fengu stærsta reikninginn í
janúar. En eins og ég sagði hef ég
ekki enn lesið greinina og get því ekki
farið nákvæmlega út í þetta,” sagði
hitaveitustjóriaðlokum. -KMU
FINNAR SEUA ÍSLANDSVATN
á7,65 krónurglasið
Fyrir löngu reyndu áhugamenn að
flytja út ölkelduvatn frá Rauðamels-
ölkeldu á Snæfellsnesi.
Til þessa var m.a. byggður skúr yfir
ölkelduna sem kennd er við Rauðamel
og þar var ölkelduvatni tappað á
flöskur til útflutnings.
Þessi starfsemi lagðist þó niður því
markaður var ekki nægur og kolsýran
eða loftbólurnar í vatninu við
Rauðamel vildu ekki tolla i flöskunum
alla leið á markað. Höfðu braut-
ryðjendurnir ekki annað upp úr krafs-
inu en armæðuna og f járhagslegt tap.
Nú hefur það svogerzt að nýir bjart-
sýnismenn hafa reynt útflutning á
fersku vatni frá íslandi og aðra bjart-
sýnismenn dreymir um útflutning á
heitu vatni frá landi voru.
Hvað sem líður bjartýnis-
mönnunum með ferska vatnið þá er
þegar í Finnlandi í gangi sala á fersku
vatni undir nafninu Iceland
Clearwaters og vatn það er sagt sótt í
djúpar fjallauppsprettur eða brunna.
Þetta vatn sem I Finnlandi er selt undir
íslensku nafni er selt í 20 sentilítra
flöskum eða 1/5 litra á veitingastöð-
um á 5 mörk sem þýðir að lítrinn af
Iceland Clearwaters er seldur á um það
bil 3825 gkr.
Sá sem biður um íslenzkt vatn sem
bland á íslenzkum veitingastöðum fær
það fyrir kr. 0,00 en sá sem biður um
vatn sem bland á finnskum veitinga-
stöðum, fær Iceland Clearwaters í
sjússinn á á 765 kall.
íslenzkum fjármálamönnum skal hér
með bent á að með því að framleiða
vatn á flöskur undir t.d. nafninu
Greenland Icewater mætti frelsa
íslenzka barþjóna frá því að gefa
íslenzkt vatn í blandið og ekki nógmeð
það heldur þarf vatnið alls ekki að
vera frá Grænlandi, ef textinn á
flöskunni er aðeins nægilega vandlega
orðaður.
Hvað sem því iíður þá er allavega
hægt að óska íslenzkum fjármála-
mönnum til hamingju ef þeim hefur
tekizt að selja í heildsölu vatn frá
íslandi til Finnlands, sem þar er selt á
3825 gkr. lítrinn í smásölu.
-KSn., Kotka.
UichyWater
Iœland
Clearwaters
Valmisuttu tyvien kallio-
kalvojen krliulllnklrkkaaiu
vedciu.
Wlmiituialneet:
Veil, hlillhappo, natrlum-
bikarbonaattl, natrlumkloridi,
magneilumiulfaattl.
Tlllvarkat av krliull-
klart vatun frin d|upa
barjibrunnar.
THIvyknlnplmnfn:
Vatun, koliyra, natrtum-
blkarbonat, natrlumklortd,
majneilumiulfat.
Valmlttaja: Oy Pyynlkln luvalla Plrve Oy, Plrkkala
íslenzkt eða flnnskl vatn, undir
nafninu Icelandic Clearwalers, er selt
á góðu verði á finnskum veitinga-
stöðum til blands I viski eða vodka.
„Skil ekkert í nýju myntinni
— frekar en Guðrúnu”
Það var gagn að bankafólk fór í 4
daga verkfall í síðasta mánuði, til að
vera búið undir þá miklu vinnu sem
gjaldmiðilsbreytingin hafði í för með
sér. Ég fór í Landsbankann á
Eskifirði i gær, í afgreiðslusalnum
voru þá þrjár þéttar raðir af fólki,
sem beið eftir að skipta gömlu
seðlunum í nýja.
Það var fijótt og öruggt banka-
fólkið og gott í afgreiðslu, en mér
sýndist það vera orðið þreytulegt,
enda hafði verið mikið að gera um
daginn. Ég spurði Árna G. Jensson
hvort fólk lægi virkilega með peninga'
heima hjá sér. Bankastjórinn sagði
að það væri alltaf einhver brögð að
því að eldra fólk væri með peninga
liggjandi heima hjá sér. En það bæri
að hafa það í huga að fólk hefði tekið
mikla peninga út úr bankanum fyrir
verkfall bankamanna. Ég skil ekkert í
þessari nýju mynt frekar en ég skil i
Guðrúnu minni Helgadóttur þing-
manni.
Hér er mikil hálka á götum en
snjólétt. Rafmagnið á Austurlandi
hefur verið í góðu lagi sl. fjögur ár og
aldrei komið til skömmtunar á þeim
tíma.
-Regína, Eskifirði.