Dagblaðið - 10.01.1981, Page 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR ÍO.JANÚAR 1981.
Kjaradómur er sjórnvaldsstofnun en ekki eiginlegur
dómstóll:
Breyting löggjafans á
Kjaradómi er lögleg
—að mati löf róðs manns. — En spyrja má jafnhliða hvort
annar málsaðili geti breytt kjarasamningi einhliða
„Það má ekki rugla Kjaradómi
saman við hefðbundna dómstóla,
bæjarþing, Hæstarétt og fleira,”
sagði lögfróður maður sem DB
leitaði til vegna hugmynda Ragnars
Arnalds fjármálaráðherra um að
setja bráðabirgðalög á úrskurð Kjara-
dóms um laun þingmanna, BHM og
nokkurra embættismanna.
„Kjaradómur er stjórnvalds-
stofnun, ekki eiginlegur dómur.
Ekki er hægt að áfrýja úrskurði hans
til Hæstaréttar. Þessari stjórnvalds-
stofnun er falið að skera úr um kaup
og kjör aðila. Úrskurður Kjaradóms
er því jafngildur kjarasamningi.
Nú eru mörg fordæmi þess að lög-
gjafinn hafi blandað sér 1 gerða
kjarasamninga og breytt þeim. Það
má þvi með sömu rökum segja að
ríkisstjórnin geti með bráða-
birgðalögum breytt úrskurði Kjara-
dóms og mér er nær að halda að svo
sé.
Hins vegar má varpa fram annarri
spurningu um þetta mál. í þessum
samningi er rikið annar málsaðilinn.
Það mætti auðvitað lita þannig á að
annar málsaðili geti ekki breytt
kjarasamningi einhliða.
Það liggur hins vegar fyrir að lög-
gjafinn hefur breytt gerðum kjara-
samningum og þvi skyldi hann ekki
geta gert það í þessu tilfelli eins og
öðrum. Stjórnskipan landsins er í
þvílikum molum að erfitt er að segja
nákvæmlega um það lagalega hvað sé
rétt og hvað ekki.
Löggjafinn getur hins vegar ekki
breytt dómum dómstóla. Hann
hefur hins vegar aðrar leiðir ef hann
er óánægður með dómsúrskurð.
Hann getur breytt lögum, sem eru
t'orsendur dóma. Það breytir þó ekki
því að fyrri dómur stendur. ” -JH.
Benedikt Blöndal formaður Kjaradóms:
SKRÍTID EF FJÁRMALARAÐ-
HERRA LÆTUR FLYTJA MÁLFYRIR
KJARADÓMIEN BREYT-
IR ÚRSKURDI SfDAN MED LÖGUM
„Við skulum leyfa ríkisstjórninni
að hugsa það sem hún vill,” sagði
Benedikt Blöndal, formaður Kjara-
dóms, þegar Dagblaðið bar undir
hann tillögu fjármálaráðherra á rikis-
stjórnarfundi um að setja bráða-
birgðalög á úrskurð Kjaradóms um
laun BHM.þingmanna og helztu emb-
ættismanna.
„Það má þó geta þess að á
fimmtudag var flutt fyrir Kjaradómi
mál Læknafélagsins gegn fjármála-
ráðherra. Ráðherra lét mann mæta
þar fyrir sig. Þessi talsmaður
ráðherra vissi ekki um tillögu
ráðherrans að setja bráðabirgðalög á
úrskurð Kjaradóms. Það er skrítin
afstaða ef ráðherrann lætur flytja
mál sín fyrir dómnum en breytir
síðan úrskurði hans með lögum.
En ég blanda mér ekki í stjórnar-
athafnir fjármálaráðherra. Hann
hefur leyfi til þess að fá samþykki
forseta íslands fyrir bráða-
birgðalögum.
Við verðum að sjá hvort þessi
bráðabirgðalög verða sett á og taka
þá afstöðu til þeirra,” sagði Benedikt
Blöndal.
-JH.
Benedikt Blöndal: Við skulum leyfa
ríkisstjórninni að hugsa það sem hún
vill.
Bæja-
keppnií
billiard
— milli Akureyrarog
Reykjavíkur
Hin árlega bæjakeppni milli Akur-
eyrar og Reykjavikur i billiard
verður i dag A knattborðsstofunni
Júnó í Skipholti. Hefst keppnin
klukkan 13 og lýkur væntanlega
milli kl. 20 og 21 i kvöld.
Átta leikmenn verða i hvoru liði,
allir beztu billiardspilarar landsins.
Bæjakeppnin þykir með skemmti-
legri billiardkeppnum, sem háðar
eru hárlendis og er venjuleg margt
áhorfenda. -ÓV.
Beðiö
eftir
strætó
Hvenær kemur strætisvagninn
minn? Skelfing getur nú verið
þreytandi að bíða svona — jafnvel
þótt það só ekki mjög langur tími.
Og svo má nú reyndar stytta sér
stundir við að horfa á fjölbreytilegt
mannlif miðborgarinnar. Liklega er
bara gaman að bíða eftir strætó,
þegar á öllu er á botninn hvolft
DB-mynd: Gunnar örn.
Dartsnámskeið
Þjóðdansafélags
Reykjavíkur
hefjast mánudaginn 12.
janúar 1981 íFáksheim-
ilinu við Bústaðaveg.
Barnadansar frá kl. 5-8.
Gömlu dansarnir: fullorðnir kl. 8-11.
Þjóðdansar kl. 8-10 á fimmtudögum í leik-
fimisal Vörðuskóla.
Innritun og upplýsingar í síma 75770 og í síma 33679 eftir
kl. 5 á mánudag.
Þjóðdansafólagið.
EYÐMÖRÐ
M/LAXVEIÐIHLUNIMINDUM
Jörðin Ós í Skagahreppi A-Hún. er til sölu ef viðunandi tilboð fæst.
Jörðinni tilheyra 29% veiðiréttar 1 veiðifélagi um Laxá i Nesjum. Undan-
farið hefur hver þeirra 3ja jarða sem veiðirétt eiga átt forgangsrétt að
sínum dögum. Að áliti sérfróðra manna eru góð skilyrði til aukinnar fiski-
ræktar I ánni og laxaræktar með hafbeit í huga.
Önnur hlunnindi: nokkur reki og vottur að æðarvarpi.
Upplýsingar veita Friðgeir síma 61282 Dalvík, Kristinn, síma 4668
Skagaströnd, Jósef síma 2271 Keflavik, Valdimar, sima 37757 Reykjavik.
Tilboð skal senda til Friðgeirs Jóhannssonar. Mímisvegi 15 Dalvík, fyrir
l.apríl 1981.
ESKIFJÖRÐUR
Umboðsmaður óskast á Eskifjörð. Vin-
samlegast hafið samband í síma 97—6300
eða 91—27022.
^BIAÐIÐ
Bárugata
GÍæsileg rishæð, 110 ferm, til sölu. Upplýsingar aðeinsá skrifstofunni.
Einnig höfum viðgóðan kaupanda að 4 til 5 herbergja íbúð í Hafnarfirði.
má vera í blokk. Hugsanlegstaðgreiðsla.
EignanaustLaugavegi96
Sími 29555.
EFLIÐ ORKUNA
í ORKUBÓT
Fullkominn æfingaað-
staða til líkamsræktar
með lóðum og öðrum
áhökkim fyrir karla og
konur.
Veitum leiðsögn í:
* Uppbyggingu þreks
* Uppbyggingu krafts
* Skynsamlegu
mataræði
Tilvalið fyrir þá sem
þurfa að laga líkamslínur
Upplýsingar í síma 20950
föstudag, laugardag og
sunnudag, frá kl. 10-21.
Gufubað á staðnum
ORKUBÓT
LÍKAMSRÆKT
Brautarholti 22.