Dagblaðið - 10.01.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1981.
Kjallarinn
EggertAsgeirsson
svipaðrar vöru í sama heimshluta.
Með því að gera fólk háð gjafakorni
gætum við eins vel brotið niður
sjálfsbjargarviðleitni og gert fólk háð
vöru sem það getur ekki framfeitt
eða keypt. Dæmi um sóun og jafnvel
tjón eru alltof mörg til.
Með því að setja okkur i spor
annarra getum við öðlast skilning á
vandamálinu. Hvað gætum við gert
við lyfjasendingar með japanskri eða
arabískri áletrun, hvað getum við
gert við óröðuð eða óhrein föt frá
fja.rlægum löndum á neyðartíma.
Upptalningin skal ekki lengd. Hér
skal staðar numið að sinni.
Þau vandamál sem ég hef rætt eru
ekki bundin við hjálparstarf Rauða
krossins. Hér hefur verið tekið
almennt á málum þróunar-
hjálparinnar eins og þau snúa við mér
á þessu nýbyrjaða ári.
I siðari kjallaragrein mun ég gera
grein fyrir því hvernig Rauða kross
félög 126 landa hafa komið sér
saman um að vinna að neyðar- og
þróunarhjálp.
Eggert Ásgeirsson ,
framkvstj. Rauða kross íslands.
Kjallarinn
Athyglisverðar rannsóknir bandansks vísindamanns:
Lffslíkur hinna feitu
betrí en þeirra grönnu
— Kjörþyngdin kann að hækka um 7-10 kíló ef fallizt verður á niðurstöður
rannsóknanna
Því er nú haldið fram af vísinda-
mönnum vestan hafs, að menn þurfi
ekki Iengur að hafa áhyggjur af þvi
þó þeir séu tíu til tuttugu prósent
feitari en læknar hafa áður ráðlagt. í
nýjum bandarískum skýrslum um
þetta efni er þvi haldið fram, að það
sé heilsusamlegast að vera 5—7
kílóum þyngri en áður hefur verið
talið og raunar halda aðrir sérfræð-
ingar því fram, að þessar nýju tölur
séu of Iágar. Samkvæmt áliti þeirra
síðarnefndu þarf maður ekki að hafa
áhyggjur af þvi þó hann sé 85 kíló á
þyngd þó áður hafi því verið haldið
fram, að heppilegasta þyngd hans
væri 70 kiló.
Þessi nýju sjónarmið stangast að
sjálfsögðu algjörlega á við það sem
fólki hefur áður verið ráðlagt. Fram
að þ>essu hefur verið bent á, að fita
auki hættuna á gikt og of háum blóð-
þrýstingi, sem siðan sé orsökin fyrir.
æðakölkun, hjartalömun og öðrum
hjartasjúkdómum.
Eftir sem áður er því haldið fram,
að óeölileg fita sé heilsunni hættuleg.
Víðast hvar á Vesturlöndum er
sjöundi hver fullorðinn maður svo
feitur, aö útlit hans stingur i augun.
Slíkum mönnum er áfram ráðlagt að
grenna sig.
Þriðja hver kona og fjórði hver
karl yfir fimmtíu ára aldri eru sver.
Þessum hópi fólks er nú sagt, að það
þurfi ekki að hafa eins miklar
áhyggjur af kilóum sínum og það
hefur haft. Margir þeirra eiga meira
að segja í vændum lengra lif en hinir
þvengmjóu. Dánartíðnin er mest
meðal þeirra akfeitu og hinum
þvengmjóu. Það eru þeir, sem mynda
hina breiðu fylkingu milliviktarinnar,
sem eiga lengst líf í vændum.
Prófessor Reubin Andres við
John Hopkins háskólann hefur
rannsakað samhengið á milli líkams-
þyngdar og lifsiengdar. Rannsóknir
hans hafa snert fjörutíu mismunandi
þætti og náð til sex milljóna manna i
öllum heimshlutum. Alls staðar urðu
niðurstöðurnar á sama veg. Hvort
sem það voru lögregluþjónar í
Helsinki, ítalskt sveitafólk eða
Bandaríkjamenn, sem rannsakaðir
Sofus Berthelsen
öðrum illum nöfnum, vera per-
sónugervingar þeirra sem hrópuðu
fyrir tvö þúsund árum: Krossfestið
hann, krossfestið hann. Mér finnst
þetta fólk vera af sama toga spunnið
og sagt var við: Sá yðar sem syndlaus
er, kasti fyrsta steininum.
Var það ekki fólk með þannig
geð, sem hópaðist í kringum Adolf
sálaða Hitler og léði honum
liðveizlu? Er það ekki svona fólk sem
kallar alla kommúnista og skríl sem
er ekki sama sinnis og þaö sjálft. Ég
geri ráð fyrir að ég verði kallaður
kommúnisti eftir þessi skrif mín. Það
mundi ekki skipta neinu þó ég væri
innsti koppur í búri, lengst til hægri í
Sjálfstæðisflokknum, ég gæti samt
verið kallaður kommúnisti.En með
fullri virðingu fyrir Sjálfstæðis-
flokknum þá hef ég reyndar aldrei
fylgt honum að málum. Ég hef
heldur ekki fylgt kommúnistum eða
sósíalistum, eða hvað hver og einn
vill kalla þá. Ég er bara verkalýðs-
sinni og ég þoli illa ranglæti.
Ég hef oft upplifað þær stundir að
vera stoltur af þjóð minni. Ég hef
líka upplifað þá stund að tárfella á
erlendri grund þegar ég sá islenzka
fánann óvænt eftir nokkra fjarveru
frá föðurlandinu, — en í dag
skammast ég min fyrir hönd þess
fólks í mínu þjóðfélagi sem dæmir
náungann án þess aö þekkja hann þó
þaö sé landfiótta auðnuleysingi eða
kannski einmitt þess vegna.
Sofus Berthelsen
Eftir sem áður stendur það að óeðlilegt holdafar, þ.e. holdafarsem beinlinis
stingur i augun, er hættulegt heilsu manna.
Þvi er nú haldið fram, að það sé heilsusamlegast að vera a.m.k. 5—7 kflóum
þyngri en áður var talið. Þessi frfsklegi piltur ætti samkvæmt því ekki að þurfa að
hafa veruiegar áhyggjur af heilsufari sinu vegna holdafarsins.
Kræsingum eins og þessum ættu menn nú að geta sporðrennt án þess að fá veru-
legt samvizkubit.
Dr. Andres segir, að skýringin á
þessum niðurstöðum kunni meðal
annars að vera fólgin í því, að þungt
fólk þoli frekar lyfjameðferð við
krabbameini og þyngd þeirra geri
þeim kleift að berjast gegn sjúkdóm-
um, sem hina grennri skorti mót-
stöðu við.
Talið er að niðurstöður þessar
muni hækka kjörþyngd fólks að
minnast kosti um 7,5 kíló og dr.
Andres er raunar á þeirri skoðun, að
munurinn sé í raun enn meiri ef til vill
10—20 próse nt af lfkamsþyngdinni.
Þeir sem hingað til hafa verið
taldir i þybbnara lagi geta því huggað
sig við þessar niðurstöður dr. Andres
og þaö eru því fyrst og fremst hinir
horuðu sem eru í lífshættu. Hvort
þessar niðurstöður eiga eftir að
breyta skoðunum fólks á því hver
kjörþyngdin er frá fegurðarsjónar-
miði er aftur allt annaö mál.
(Politikcn og Hcrald Tribunc).
voru í tengslum við krabbameins-
rannsóknir þá var niöurstaöan ætíð
sú, að hinir meðalfeitu lifðu lengst.
Prófessor Reubin Andres sagði í
viðtali við Herald Tribune: „Allar
tölurnar benda í sömu átt. Við höfum
fram að þessu vanmetið þyngdina
sem æskilegust er frá heilbrigðis-
sjónarmiði. Við höfum fram að þessu
haldiö okkur við þá þyngd sem þykir
gefa okkur fallegast útlit og það er
ekki það sama og það sem er
heppilegast fyrir heilsuna. ”
í fyrirtæki einu i Chicago kom í
ljós, að lengstan lífsaldur höfð þeir
sem voru 25 til 32 prósentum þyngri
en áður var talin kjörþyngd.
í hópi 70 ára Kaliforníubúa var
dánartiðnin minnst meðal þeirra sem
voru 10—20 prósent yfir kjörþyngd
og dánartiðnin var lægst meðal þeirra
hafnarverkamanna í San Francisco
sem voru 30 prósent yfir kjörþyngd.