Dagblaðið - 10.01.1981, Qupperneq 13
13
Iþröttir
Iþróttir
Iþróttir
9
„Velkominn aftur, kunningi”
—sagði Skúli Óskarsson er hann fékk Mnn glæsilega verðlaunagrip, er fylgir kjðri íþráttamamsársins,
íhendumaráný
„Þetta er helvfti fallegur gripur,” gæti Bjarni Friðriksson. sem varð i 2. sæti, verið að segja við Skúla sem horfir hugfanginn
á stvttuna.
Skúli Óskarsson var i gærdag kjör-
inn „íþróttamaður ársins” i annað sinn
á þremur árum af Samtökum iþrótta-
fréttamanna. Skúli hafði nokkra yfir-
burði í kjörinu og hlaut alls 65 atkvæði
af 70 mögulegum. Óþarfi ætti að vera
að kynna Skúla frekar fyrir lesendum,
en við látum fylgja hér með ummæli
formanns Samtaka íþróttafrétta-
manna, Ingólfs Hannessonar íþrótta-
fréttamanns á Þjóðviljanum, er hann
afhenti Skúla verðlaunagripinn glæsi-
lega.
„Og þá er það fyrsta sætið i kjöri
þessu. íþróttamaður ársins 1980 er
Skúli Óskarsson, lyftingamaður. Hann
er 32 ára gamall Fáskrúðsfirðingur og
keppir undir merki UÍA. Hann hlaut 65'
stig af 70 mögulegum og er því vel að
sæmdarheitinu kominn.
Skúli hóf að iðka lyftingar fyrir 12
árum, þá orðinn tvitugur og að margra
áliti orðinn of gamall til þess að ná
góðum árangri í iþrótt sinni. En strákur
tók stórstigum framförum, enda stund-
aði hann lyftingarnar af mikUli elju, oft
við erfiðar aðstæður. Hann fékkst við
ólympfskar-lyftingar fyrstu árin, en
sneri sér sfðan alfarið að kraftlyfting-
um með ótrúlega góðum árangri. Vart
verður tölu komið á öll þau íslandsmet,
sem Skúli hefur sett á ferli sfnum, og
Norðurlandamet hans fylla nú tvo tugi.
Sinn fyrsta stórsigur vann Skúli á
heimsmeistaramótinu áríð 1974 þegar
hann krækti f bronsverðlaun. Sfðan
hefur hann unnið silfurverðlaun á
heimsmeistaramóti og tvenn silfurverð-
laun á Evrópumeistaramótum. Þá
hefur Skúli verið nær ósigrandi i sfnum
þyngdarflokki á Norðurlandamótum
undanfarin ár.
í byrjun nóvember sl. vann Skúli
Óskarsson það frækilega afrek að setja
heimsmet i réttstöðulyftu þegar hann
beinlfnis reif upp 315,5 kg við mikinn
fögnuð áhorfenda f Laugardalshöll-
inni.
Skúli Óskarsson hefur lagt mikla
rækt við fþrótt sfna og uppskorið rfku-
lega. Hann er sannur fþróttamaður,
skemmtilegur keppnismaður, kapps-
fullur, ákafur og fylginn sér. Þá hefur
Skúli áunnið sér mikla hylli áhorfenda,
jafnt innan lands sem utan, fyrír prúð-
mannlega framkomu samhliða
keppnisgleði.
Sigriður Sigurðardóttir er eina konan sem hlotið hefur sæmdarheitið „fþróttamaður
ársins”. Hún er hér f hófinu ásamt þeim Geir Hallsteinssyni og Hjalta Einarss.vni.
Við erum stolt af afrekum þfnum,
Skúli Óskarsson, og þú hefur veríð
landi og þjóð tll sóma. Til hamingju
með sæmdarheitið fþróttamaður ársins
1980 og njóttu vel. Ég vil biðja þig,
Skúli Oskarsson, að ganga fram og
taka við hinum veglega farandgrip, sem
fylgt hefur kjöri fþróttamanns ársins
allar götur frá 1956. Fyrir hönd
Samtaka fþróttafréttamanna vil ég
árna þér allra heilla f framtfðinni, bæði
í leik og starfi.”
í öðru sæti varð júdómaðurinn
snjalli Bjarni Friðriksson, Ármanni.
Hiaut hann 53,5 stig í kosningunni og
er vel að öðru sætinu kominn. Næstur
að baki honum kom Óskar Jakobsson,
ÍR með 44 stig og þá Ásgeir Sigurvins-
son. Listinn yfir 10 efstu menn lítur
annars þannig út:
atkv.
l.SkúliÓskarsson.lyft. 65
2. Bjarni Friðriksson, júdó 53,5
3. Óskar Jakobsson, frjálsar 44
4. Ásgeir Sigurvinsson, knattsp. 32,5
5. Hreinn Halldórsson, frjálsar 29,5
6. Ingi Þór Jónsson, sund 26
7. Atli Eðvaldsson, knattsp. 18
8. Marteinn Geirsson, knattsp. 16
9. Pétur Pétursson, knattsp. 13,5
10. Matthías Haligrímsson, knattsp. 12
Aðrir er hlutu atkvæði voru: Páll
Björgvinsson, handknattleikur, Oddur
Sigurðsson, frjálsar íþróttir, Stefán
Gunnarsson, handknattleikur, Ólafur
Benediktsson, handknattleikur, Torfi
Magnússon, körfuknattleikur, Helga
Halldórsdóttir, frjálsar íþróttir,
Hannes Eyvindsson, gólf, Sigurður
Sveinsson handknattleikur, Bjarni
Guðmundsson, handknattieikur, Jón
Sigurðsson, körfuknattleikur, Steinunn
Sæmundsdóttir, golf, Sigurður T. Sig-
urðsson, frjálsar íþróttir, Þorbergur
Aðalsteinsson, handknattleikur, Bjöm
Þór Ólafsson, skíði og Kristján Ágústs-
son, körfuknattleikur.
-SSv.
„Velkominn aftur, kunningi,” sagði
Skúli Óskarsson er hann tók við verð-
launastyttunni glæsilegu úr hendi
Sigurðar Sigurðssonar útvarpsmannsins
kunna hér á árum áður. Sigurður afhenti
einmitt gripinn fyrir 25 árum, er hann
var fyrst notaður.
DB-myndir S.
Þeir er urðu i 10 efstu sætunum. Á m.vndinni eru reyndar aðeins 6 þar sem fjórir voru
erlendis og gátu ekki komizt til hófsins. F.v. Marteinn Geirsson, Óskar Jakobsson,
Skúli Óskarsson, Bjarni Friðriksson, Matthias Hallgrimsson og Hreinn Halldórs-
Sigurður
Sverrisson