Dagblaðið - 10.01.1981, Page 24
Hagdeild Vinnuveitendasambandsins reiknar áhrif efnahagsráðstafananna:
53 prósent verð-
bólga á þessu ári
—gengi dollarans komið Í8,55nýkrónureftirár
Verðbólgan verður 53 prósent i ár
eftir efnahagsaðgerðir ríkisstjórn-
arinnar, segir hagdeild
Vinnuveitendasambandsins og miðar
þá við meðaltalshækkun milli áranna
1980 og 1981. Hraði verðbólgunnar
mun samkvæmt útreikningum hag-
deildarinnar fara minnkandi, þegar á
líður árið, en vaxa aftur undir lok
ársins. Staðan verður þannig í
nóvember næstkomandi, að þá hafi
verðlag hækkað um 56 prósent,
miðað við sama mánuð árið áður.
Gengi Bandaríkjadollars er nú
6,23 nýkrónur, en verður orðið 7,20
nýkrónur í júlí 7,80 krónur í október
og 8,55 krónur í janúar eftir ár, segir
hagdeildin.
Hagdeildin minnir á, að hún fékk
út 77% verbólgu í ár í fyrri út-
reikningum, áður en efnahags-
ráðstafanirnar komu til.
Framkvæmdastjórn Vinnuveit-
endasambandsins samþykkti í gær
ályktun, þar sem segir, að sambandið
líti á efnahagsáætlanir ríkis-
stjórnarinnar og bráðabirgðalögin
sem „tilraun til heildarstefnu-
mörkunar í efnahags- og atvinnu-
málum”. „Hér er um að ræða
augljós bráðabirgðaúrræði, sem
koma eiga i veg fyrir þá auknu
verðbólgu, er fyrirsjáanleg var í
kjölfar síðustu kjarasamninga.
Ráðstafanirnar duga á hinn bóginn
ekki til þess að lækka ríkjandi
verðbólgustig,” segir Vinnuveitenda-
sambandið. „Með bráðabirgða-
lögum ríkisstjórnarinnar hefur mest-
um hluta almennra kauphækkana
verið kippt til baka...........”
„Megingalii efnahagsáætlunarinnar
er sá, að hún gerir ekki ráð fyrir því,
að tekizt verði á við þá efnahagslegu
meinsemd, sem núverandi verðbólgu-
stiger.” '
Vinnuveitendasambandið mót-
mælir millifærslu- og uppbóta-
leiðum, endurútgáfu verðstöðvunar-
laga og hættulegu stefnuleysi i
vaxtamálum.
-HH.
„Og svona á að slökkva á því,” Þór Þorbjörnsson afgreiðslumaður 1 Radióbúðinni kennir Áslaugu að slökkva á tækinu hennar. Foreldrarnir Þorvaldur og Sigríður
fvlgjast með. DB-mvnd Sig. Þorri.)
NU GET EG HORFT A TOMMA
0G JENNA Á FIMMTUDÖGUM
—sagði Áslaug Anna Þorvaldsdóttir 8 ára vimingshafi íjólagetraui DB
„Ég varð mjög hissa þegar ég frétti
þetta og vinkonur mínar lika,” sagði
Áslaug Anna Þorvaldsdóttir, 8 ára
vinningshafi í jólagetraun DB, er hún
var spurð hvernig henni hefði fundizt
að vinna getraunina. „Hún sagði við
okkur að hún hefði ekkert skilið hvað
maðurinn í símanum var að segja er
henni var tilkynnt þetta,” sagði móðir
Áslaugar, Sigríður Jónsdóttir. Áslaug
kom ásamt móður sinni og föður, Þor-
valdi Þorsteinssyni, í Radíóbúðina i
gær til að taka á móti vinningnum.
„Eldri systir hennar, Steinunn, sem
er 16 ára, hjálpaði henni að fylla út
seðlana, en vildi ekki að sitt nafn væri
skrifað á þá. Hún vildi heldur ekki
koma með okkur til að taka við
tækinu,” sagði Sigríður.
Fjölskyldan var að vonum mjög
ánægð með þetta glæsilega mynd-
segulbandstæki. Það er af Nordmende
gerð og verð þess er rúmar 16 þús.
nýkrónur. „Við keyptum okkur lit-
sjónvarpstæki fyrir ári, en höfðum
ekki einu sinni látið okkur dreyma um
að eignast svona myndsegulband.
Áslaug var fljót að átta sig á notagildi
'tækisins og sagði við okkur í gærkvöldi
að nú gæti hún horft á Tomma og
Jenna á fimmtudagskvöldum,” sagði
Sigríður Jónsdóttir. -ELA.
Sáttafundurum bátakjarasamningana boðaður ídageftir þriggja vikna hlé:
Sjómenn búast til verkfalls
—17 aðildarfélSg Sjómannasambandsins hafa aflað sér verkfallsheimildar
Oddvitar útvegsmanna og sjó-
mannasamtakanna koma í dag á
fund til ríkissáttasemjara vegna
endurnýjunar bátakjarasamning-
anna. Síðast komu þeir á fund sátta-
semjara 19. desember. Þann dag
komu útvegsmenn reyndar aðeins til
að segjast vera hættir viðræðum og
slitnaði upp úr þeim þar með.
Útvegsmenn kváðust ekki setjast að
samningaborði að nýju nema „stað-
festing fáist á því frá ríkisstjórninni
að samningagerðin verði án afskipta
hennar”.
Kristján Ragnarsson fram-
kvæmdastjóri Landssambands ísl.
útvegmanna vildi þó ekkert um það
segja í gær hvort slík staðfesting væri
fengin frá ríkisstjórninni. Benti hann
aðeins á að samkvæmt lögum væri
samningsaðilum skylt að mæta til
ríkissáttasemjara ef hann færi fram á
það. „Við erum ekkert til frásagnar
fyrr en að fundi loknum á morgun,”
sagði Kristján.
Óskar Vigfússon forseti Sjó-
mannasambandsins sagðist vona að
fundarboðið táknaði að „útgerðar-
menn hafi látið af stífninni”. Þeir
bæru ábyrgð á því hvernig komið
væri í samningamálunum.
17 félög innan Sjómannasam-
bandsins hafa þegar aflað sér heim-
ildar til boðunar verkfalls. Alls-
herjaratkvæðagreiðsla stendur yfir í
sumum félögum um heimild til verk-
fallsboðunar og enn önnur ætla að
afgreiða málið á félagsfundum.
Búizt er við að alveg á næstu dögum
verði samtök sjómanna búin að afla
sér formlegrar heimildar til að beita
verkfallsvopninu.
„Sjómönnum finnst hagsmunum
sínum misboðið. Á sama tíma og
búið er að semja við langflest verka-
fólk í landinu eru þeir settir út í kuld-
ann,” sagði Óskar Vigfússon.
-ARH.
frfálst, óháð dagblað
LAÚGARDAGUR 10. JAN. 1981.
Bráöabirgðalögá
Kjaradóminn?
Ragnarfær
ekkifylgi
Vilmundar
Þeir stjórnarliðar' sem vilja ógilda
með bráðabirgðalögum úrskurð Kjara-
dóms um laun þingmanna, háskóla-
manna og embættismanna, vonuðu, að
slík bráðabirgðalög kynnu að fá
stuðning Vilmundar Gylfasonar (A).
Hann mundi, einn alþýðuflokksþing-
manna, styðja það. Slíkur stuðningur
gæti orðið mikilvægur, þar sem sumir
þingmenn stjórnarliðsins mundu greiða
atkvæði gegn þess konar lögum. Þessar
vonir bregðast.
Vilmundur Gylfason tjáði DB í gær-
, kvöld, að hann væri andvígur setningu
jslíkra bráðabirgðalaga. Hann hefði
verið einn frumkvöðull þess, sem
' gagnrýnandi sjálfdæmis þingmanna
um eigin kjör, að málið færi i hendur
kjaradóms. Þingmenn yrðu að sitja
uppi með það. Ákvæðið um aftur-
virkni hefði verið umdeilanlegt, en
valdamiklir þingmenn hefðu sótt fast,
að launahækkun þingmanna yrði
afturvirk. Vilmundur kvaðst hafa gert
sínar athugasemdir við það ákvæði.
-HH.
Deila Amarflugs og
FlugviiRjafélagsins leyst:
Flugvélstjór-
inn ráðinn
aðnýju
„Þetta leystist á farsælan hátt, fiug-
vélstjórinn verður ráðinn aftur,” sagði
Geir Hauksson formaður Flugvirkja-
félags íslands síðdegis í gær. Éins og
Dagblaðið greindi frá samþykkti Flug-
virkjafélag íslands heimild til stjórnar
og trúnaðarmannaráðs um boðun verk-
falls hjá Arnarflugi vegna uppsagnar
eins reyndasta fiugvélstjóra félagsins.
Viðræður milli Flugvirkjafélagsins
og Arnarfiugs hafa staðið síðan í
desember, með hléi yfir hátíðarnar.
Magnús Gunnarsson framkvæmda-
stjóri Arnarflugs var erlendis, en eftir
aö hann kom heim áttu þeir með sér
fund, hann og Geir Hauksson, for-
maður Flugvirkjafélagsins. Þar fannst
lausn á málinu, m.a. vegna þess að
Arnarflug hefur fengið aukin verkefni.
Að sögn Geirs er flugvélstjórinn nú i
fríi en ráðningartími hans verður hinn
sami og annarra fiugvélstjóra Arnar-
flugs. ,JH-
Þjónamir
lausir
Þjónarnir sem Hótel Esja kærði fyrir
bókhaldssvik og þynningu vins eru nú
lausir úr gæzluvarðhaldi. Annar þjónn-
inn viðurkenndi verknað sinn og fékk
hann þvi að sleppa fyrr. Hinn þjónninn
losnaði úr varðhaldi í gær er varðhalds-
úrskurður hans rann út. Ekki liggur
fyrir játning hans. Áfram verður haldið
með rannsókn málsins.
-ELA.
Kappaksturs-
mynd íDag-
blaðsbíói
I í Dagblaðsbíói í dag, laugardag,
| verður sýnd spennandi kappaksturs- og
!söngvamynd sem heitir Á fullri ferð.
I Sýningin hefst i Borgarbíói í Kópavogi
klukkan þrjú í dag.