Dagblaðið - 26.01.1981, Blaðsíða 1
f
f
f
f
f
f
f
f
f
f
(
f
f
7. ÁRG. — MÁNUDAGUR 26. JANÍIAR 1981 — 21.TBL.
RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI ll.-AÐALSÍMI 27022.
MAÐUR FÓRST í ELDS-
VOÐA í KÖTLUFELLI11
— eldurhafði lengi kraumað ííbúð í fjölbýlishúsi ánþess að nokkuryrði reyks var
37 ára gamall maður, Sigfús
Steingrímsson, fannst látinn i íbúð í
Kötlufelli 11 í Breiðholti á sjöunda
tímanum í gærkvöldi. Var þá komið
að íbúðinni, sem er á 2. hæð hússins,
og reyndist hún full af reyk. Sá sem
að kom hljóp upp á næstu hæð þar
sem umsjónarmaður hússins býr og
bað um hjálp.
Barst slökkviliði tilkynning um eld-
inn kl. 18.18 en jafnframt reyndi
vanur slökkviliðsmaður, sem var
gestkomandi hjá umsjónarmanni
hússins, að komast inn í hina brenn-
andi íbúð. Reyndist hún svo full af
reyk, að slökkviliðsmaðurinn komst
ekki nema rétt inn fyrir útidyr
íbúðarinnar.
Slökkviliðsmenn af Ártúnshöfða
komu fyrstir á vettvang, að sögn
Gunnars Sigurðssonar varaslökkvi-
liðsstjóra. Elti mikill fjöldi bifreiða
og fólks slökkviliðs- og sjúkrabíla að
húsinu og það svo að gatan tepptist
og komst kranabíll aðalstöðvar ekki
að húsinu vegna þessarar forvitni
fólks. Verður seint ofbrýnt fyrir fólki
að trufla ekki slökkvistarf með
þessum hætti.
Ártúnshöfðamenn fóru þegar inn í
íbúðina með reykgrímu. Fundu þeir
Sigfús heitinn á eldhúsgólfinu.
Reyndist hann látinn er komið var
með hann í sjúkrahús.
Að sögn Gunnars varaslökkviliðs-
stjóra voru eldsupptök í rúmfötum
og rúmi í svefnherbergi sem er við
hlið eldhússins. Voru rúmföt og rúm
mikið brunnin og hafði eldur, er þar
hafði kraumað lengi, klárað allt súr-
efni í íbúðinni, en gluggar voru að
sögn lokaðir. Gaus eldur upp aftur er
opnað var, en hann tókst fljótt að
slökkva. Miklar brunaskemmdir eru í
svefnherberginu en sótskemmdir
V——
gífurlegar um alla íbúðina.
Gunnar Sigurðsson sagði að þarna
hefði komið í ljós að ibúum annarra
íbúða í svona fjölbýlishúsum er ekki
hætta búin í svona eldstilvikum ef
þeir láta ekki hræðslu ná tökum á
sér. í húsinu munu líklega vera 12
íbúðir. -A.St.P
Eldsupptök voru 1 rúmfötum og voru þau og rúm mikið brunnin og skemmdir miklar I svefnherbergi. Innfellda myndm sýmr slökkviliðið I ibúðinni.
DB-myndirS.
Þannig skiptast sjálf stæðismenn í afstöðu til ríkisstjómarinnar:
Stjómarsinnar
Stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar breyting síðan i september.
eru nú orðnir fleiri en andstæðingar Skoðanakannanirnar ieiða í ljós að
hennar í röðum þeirra landsmanna nú skiptast þeir sem segjast standa
sem fylgja Sjálfstæöisflokknum að næst Sjálfstæðisflokknum þannig í
málum, samkvæmt skoðanakönnun- afstöðu til ríkisstjórnarinnar: Af
um Dagblaðsins. Þarna hefur orðið þeim fylgja 49,0 prósent rikisstjórn-
nú komnir fram úr
inni, 36,2 prósent eru andvigir ríkis- Þegar DB gerði sams konar kann- cn þeir voru sem fylgdu henni að mál-
stjórninni og 14,8 prósent eru anir í september síðastliðnum reynd- um í röðum stuðningsmanna Sjálf-
óákveðnir. ust fleiri vera andvígir rikisstjórninni stæðisflokksins. -HH
Sjá nánar um niðurstöðurnar á b/s. 4 og viðtö/ á baksíðu.
FalsaðurSO
kr. seðill
fannstí
Breiðholtinu
-sjábls.4
Liverpool
ogMan. Utd.
sleginút
— sjá íþr. bls. 16
Flugvöllurínn á
Rifilítt
starfhæfur:
Lífsnauðsyn-
legöryggis-
tækiveltast
umkerfíð
ímánuði
— sjábls. 5
Þriggja
klukkustunda
litkvikmynd,
tekinhérá
stríðsárunum,
nýfundin
- sjá FÓLK
á bls. 20
JiangQing
kallaði
ókvæðisorð
aðdómur-
unumerhún
vardæmd
Guðblessi
Ameríku!
— sjá erl. f réttir
bls.6-7
Æsispennandi
í viðureign
Lugi ogVíkings:
„Eittmark
í viðbót
hefðidugað
Víking”
— skrifar Hallur
Símonarson
frá Lundi
— sjá íþrottir
bls. 14-17
BBHH