Dagblaðið - 26.01.1981, Side 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1981.
3
Bréfntara finnst úrræðaleysi cinkenna æðstu stofnun tslenzka lýðveldisins.
Gaman og alvara
— margt er skrýtið í kýrhausnum
Skóverzl-
anir
—auglýsi í
blöðunum
Höfuðborgarbúi skrifar:
Ég vil skora á skóverzlanir í
Reykjavík að auglýsa vöru sina í
blöðunum. Það eru áreiðanlega fleiri
en ég sem þurfa kannski að kaupa sér
skó og þá er svo miklu þægilegra að
sjá í blöðunum hvað skóbúðirnar
hafa á boðstólum heldur en þurfa að
vera að þvælast niður í bæ og ganga
allan Laugaveginn á enda og jafnvel
lengra til að sjá það. Skóverzlun
Þórðar Péturssonar setur alltaf öðru
hvoru heilsíðuauglýsingar í Dagblað-
ið og er það til fyrirmyndar. Fleiri;
skóverzlanir ættu að taka það upp.
Spurning
dagsins
Fylgistu með sjón-
varpsþœttinum Land-
nemarnir?
Hörður Vllhjálmsson, Ijósmyndari: Já,
já, ég horfí á Landnemana. Þeir eru
mjög góðir, bjarga oft helginni.
Garðar Björgvinsson útgerðarmaður
skrifar:
Flogið hefur fyrir að síðdegisblöð-
in, Dagblaðið og Vísir, hugleiði að
ganga í eina sæng. Það væri viturleg
ráðstöfun til sparnaðar. Starfsmenn
ríkis og bæja eru víst mótfallnir þessu
því ef ekki yrði nema eitt síðdegisblað
neyddust þeir sennilega til að vinna
eitthvað, í stað þess tíma sem þeir
hafa hingað til notað til að lesa
blöðin sem ríkið kaupir handa þeim
til afþreyingar í vinnutímanum.
Frétzt hefur að á Selfossi sitji einn
stífbónaður og biði eftir að viss stóll
á Alþingi losni, ekki minnkaði
áhuginn við siðustu kauphækkun.
Væri ekki hægt að koma greyinu inn
strax? Munar nokkuð um einn úr-
ræðaleysingjann í viðbót?
Það á víst að fara að hengja upp
samskotabauka vegna BHM. Þeir
eiga ekki fyrir bensíni á bílana sína,
meira að segja þeir sem eiga ’80 ár-
gerðirnar eru svo blankir að þeir
ganga með tærnar fram úr skónum.
Þetta með baukana var góð frétt fyrir
BHM en það berast líka slæmar frétt-
ir. Nú á víst að fara að segja þing-
mönnum upp störfum, öllum nema
landskjömum, og þeir eiga víst ekki
að fá önnur laun en þau sem flokks-
menn þeirra geta sjálfir greitt þeim.
Öllu gamni fylgir alvara og allt
getur gerzt. Við búum í landi þar sem
náttúruhamfarir geta gjörbreytt lífi
okkar á einum sólarhring, stjórnvöld
eru öll sammála um að gleyma þessu
atriði. Það eru sifellt tekin fleiri
okurlán þótt góðæri ríki. Peningarnir
eru notaðir til daglegra þarfa. Hjólin
eru látin snúast tvo hringi aftur á bak
á móti einum áfram. Þessi heimska
verður að taka enda. Nýja menn
verður að fmna, sem færir eru um að
breyta vörnísókn.
Guflrún Gunnarsdóttir, fóstra: Nei
ekki að staðaldri. Ég horfí á þá ef é|
hef tima. Mér fannst þeir lofa góðu
byrjun en svo duttu þeir alveg niður.
STERKASTA RYKSUGA
í HEIMI
HOOVER S-3001
Hoover S-3001 er á margan hátt lang sterkasta heimilisryksuga
sem þekkist. Af 1340 watta afli hreinsar hún öll þtn teppi af hvers
kyns óhreinindum. Breyta má um sogstyrk eftir þvt hvað hentar.
Þér til mikils vinnuhagrceðis er rofinn t handfanginu, undirþumal-
fingrinum. Að hreinsa kverkar er aldeilis aUðvelt, stillanlegt sog-
stykki sérfyrir þvt. Stór hjól og hringlaga lögun gera Hoover S-3001
einkar lipra í snúningum, hún rispar ekki húsgögnin þtn.
Til þœginda er sjálfvirkt inndrag á aðtauginni. Hoover S-3001 ber
sjálf öll hjálpartceki, svo núgeturþú loksins haft fullt gagn af þeim.
Og ekki síst, 12 lítra rykpoki sem enst getur þér í marga mánuði án
tcemingar.
Hringlaga lögunin gefur
hinum risastóra 12 lítra
rykpoka nœgjanlegt rými.
HOOVER
er heimilishjálp.
Kristfn Héðlnsdóttlr, hórskeri: Ég horfí
svona á annan hvem þátt. Eða þegar ég
hef ekkert annað að gera.
Í :
■
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
SENDUM
BÆKLINGA
Gunnar Valþórsson: Já, alltaf. Mér
fínnstmjöggamanaðþeim. >