Dagblaðið - 26.01.1981, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1981.
Afstaða sjálf stæðismanna til ríkisstjómarinnar samkvæmt skoðanakönnunum DB:
Stjómarsinnar komnir yf ir
Stjórnarsinnar eru nú orðnir fleiri
en stjórnarandstaeðingar í þeim hópi
landsmanna, sem styður Sjálfstæðis-
flokkinn. Þetta sýna skoðana-
kannanir Dagblaðsins nú í janúar.
Talsverð breyting hefur orðið á
þessum hlutföllum síðustu mánuði,
því að samkvæmt sams konar
skoðanakönnunum Dagblaðsins í
september síðastliðnum voru and-
stæðingar stjórnarinnar þá fleiri en.
stuðningsmenn hennar meðal
fylgjenda Sjálfstæðisflokksins.
Dagblaöið spurði sama 600
manna úrtakið í skoðanakönnunum
nú í janúar bæði að því, hvort menn
væru fylgjandi eða andvígir ríkis-
stjórninni, og jafnframt, hvaða
flokki menn teldu sig standa næst um
þessar mundir. Niðurstöður þessara
spurninga hafa þegar verið birtar. Sú
spurning varð þá efst á baugi,
hvernig hinn mikii fjöldi, sem kvaðst
standa næst Sjálfstæðisflokknum,
• skiptist milli „sjálfstæðismanna í
ríkisstjórn” og „sjálfstæðismanna í
stjórnarandstöðu”. Með frekari úr-
vinnslu úr gögnum skoðana-
kannananna mátti sjá nákvæmlega,
hvernig þeir, sem kváðust standa
Sjálfstæðisflokknum næst, höfðu
svarað spurningunni um afstöðu til
ríkisstjórnarinnar. í ljós hefur
komið, að 49 af hundraði þessa fólks
segist fylgjandi rikisstjórninni, 36,2
v___
af hundraði segjast andvigir rikis-
stjórninni, og 14,8 af hundraði af
þessum „sjálfstæðismönnum” segj-
ast vera óákveðnir í afstöðu sinni til
ríkisstjórnarinnar.
Dæmið hefur snúizt við síðan í
september. Þá sögðust 43,8 af
hundraði stuðningsmanna Sjálf-
stæðisflokksins vera andvígir ríkis-
stjórninni, 36,9 af hundraði kváðust
fylgjandi rikisstjórninni, en 19,4 af
hundraði „sjálfstæðismanna”
sögðust vera óákveðnir í afstöðu til
ríkisstjórnarinnar.
Ef aðeins eru teknir þeir, sem tóku
afstöðu til ríkisstjómarinnar, með
eða móti, kemur út, að nú fylgja 57,5
af hundraði stjórninni en 42,5 af
hundraði eru andvigir henni. i
september voru 54,3 af hundraði
sjálfstæðismanna andvígir ríkis-
stjórninni en 45,7 af hundraði fylgj-
andi henni, af þeim, sem tóku af-
stöðu.
Þessi hlutföll meðal stuðnings-
manna Sjálfstæðisflokksins eru að
sjálfsögðu sérstaklega athyglisverð
fyrir þær sakir, að yfirgnæfandi
meirihluti þingflokks sjálfstæðis-
manna eru stjórnarandstæðingar.
Dagblaðið spurði í skoðana-
könnunum á síðasta ári einnig, hvort
menn styddu frekar Geir Hall-
grímsson eða Gunnar Thoroddsen.
Fylgi Gunnars reyndist jafnan miklu
meira en Geirs, þegar stuðningsmenn
Sjálfstæðisflokksins voru beðnir að
gera upp á milli þeirra tveggja. Þá
kom í Ijós, að margir stuðningsmenn
Sjálfstæðisflokksins, sem kváðust
andstæðir ríkisstjórninni, tóku samt
Gunnar fram yfir Geir. Enda stóðu
leikar svo í september, sem fyrr
greinir, að stuðningsmenn rikis-
stjórnarinnar voru færri en and-
stæðingar hennar i röðum sjálf-
stæðismanna.
-HH.
Ríkisstjórn (iunnars ’l'horoddsen nieð fv. forseta Íslands. Kristjáni Kldjárn.
Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins skiptast þannig í afstöðu til
ríkisstjórnarinnar samkvæmt skoðanakönnuninni (til samanburðar eru prósentutölur sambærilegrar DB-könnunar í september síðast-
liðnum): Nú í sept.
Fylgjandi ríkisstjórninni 73 eða 49,0% (36,9%)
Andvigir ríkisstjórninni 54 eða 36,2% (43,8%)
Óákveðnir 22 eða 14,8% (19,4%)
Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu verða niðurstöðurnar
þessar: Nú í sept.
Fylgjandi ríkisstjórninni 57,5% 45,7%
Andvtgir ríkisstjórninni 42,5% 54,3%
Falsaður 50 kr. seðill
fannst í Breiðholtinu
—framhliðin Ijósrituð
oglituð
en bakhliðin teiknuð
„Fólk er ennþá ekki orðið vant
þessum nýju seðlum að vel gæti einhver
tekið við þessu,” sagði Guðbjörn
Magnússon er hann sýndi DB 50 kr.
seðil sem við athugun var greinilega
falsaður. Hann var borinn saman við
ekta 50 kr. seðil og stærðin er sú sama,
en liturinn grábrúnn, talsvert dekkri en
raunverulegir 50 kr. seðlar.
Sérð þú <
það sem
ég sé?
Börn
skynja hraða
og fjarlægðir á annan
hátt én fullorðnir.
V uar“ /
Þá var pappírinn í seðlinum líkt og i
seðli sem hefur þvælzt í vasa og jafnvel
lent i þvottavél.Hins vegar fór ekki
milli mála að seðillinn var falsaður ef
bakhliðin var skoðuð. Hún hafði verið
teiknuð með litblýanti. Framhliðin
hafði hins vegar verið ljósrituð og
síðan lituðeftirá.
„Sonur minn fann þennan seðil á
víðavangi í Breiðholtinu,” sagði
Guðbjörn. „Strákurinn er 10 ára
gamall og hann áttaöi sig á því að eitt-
hvað var undarlegt við seðilinn. Sá,
sem falsað hefur seðilinn er þokkalegur
í teikningu, þannig að varla er hér um
neina óvita að ræða sem þetta gera.”
Eftir að Guðbjörn hafði litið inn á
Dagblaöið með seðilinn fór hann með
hann til lögreglu.
-JH.
Falsaði seðillinn (að ofan) og annar
ófalsaður.
DB-myndir: S.
i- jf
í ■**#***#»>» -|1'
\$?**'**>Í | - if
WISJ-W Vái’.tA' j.'fctn; (•
01000305
SEDLABANKl
tSlANDS
BYGGUNG REYKJAVÍK Róleg helgi í Reykjavík:
TurinTPi/iun
Framkvæmdir við 4. áfanga félagsins eru að hefjast að Eiðsgranda. Þeir félagsmenn er greitt hafa í stofnsjóð hafa forgangsrétt tii úthlutunar samkv. lögum um byggingar- samvinnufélög. Byggung Reykjavík Boflagranda 1 TVEIRTEKNIR — grunaðir um ölvun við akstur Helgin var óvenjuróleg hjá Yartatjóri hjá lögreglunni taldi Reykjavikurlögreglunni. Ölvun var skýringuna þá að helgin er sú síðasta í með minnsta móti og aðeins tveir mánuðinum og margir því blankir. voru teknir grunaðir um ölvun við Einnig taldi hann að frostið hefði akstur. haft áhrif til að halda fólki heima.