Dagblaðið - 26.01.1981, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1981.
5
Tekur ríkið féð úr hægri vasa og stingur í þann vinstri?
Lífsnauðsynleg öryggistæki
veltast um kerfið f mánuði
—á meðan tollf lokkar eru ákveðnir—f lugvöllurinn á Rif i ekki
starfhæf ur nema að litlu leyti vegna „kerfisins”
„Það hefur verið beðið eftir af-
greiðslu á þessum tækjum í langan
tíma. Það er furðulegt þegar um svo
nauðsynleg öryggistæki er að ræða að
þau séu látin bíða allan þennan tírria á
meðan einhverjir duttlungafullir á-
kveða hversu mikla tolla beri að setja á
þau. Þá er einnig mjög furðulegt, að
setja 100 prósent tolla á öryggistæki
sem í rauninni ættu að vera undanþegin
slíku,” sagði Agnar Kofoed-Hansen
flugmálastjóri í samtali við DB.
Flugvöllurinn á Rifi á Snæfellsnesi,
sem orðinn er einn fullkomnasti flug-
völlur landsins fyrir sjúkra- og neyðar-
flug, hefur ekki getað starfað nema að
litlu leyti í vetur, þar sem plötur, sem
settar eru undir lendingarljós vallarins,
hafa legið í tollkerfínu i þrjá mánuði á
meðan tollflokkur hefur verið á-
kveðinn.
Á flugvellinum á Rifi hefur nú verið
komið upp mjög góðu upphituðu flug-
skýli, flugvallarstæðið hefur verið mal-
bikað og ný flugbraut gerð. Þá hefur
ljósum verið komið upp en þau hafa
ekki verið starfhæf vegna þess að
plötur sem koma á fyrir undir þeim
gleymdust erlendis er pöntunin kom til
l-'luuvöllurinn á Rifi; Agnar Kofoed-Hansen: „Virðast hala rétl til að setja geysilega tolla á lifsnauðsvnleu ta-ki."
Askríft?
I
L
EHt símtal
-eöa mióann* í póst
Þannig verður þú áskrifandi að Eiðfaxa: Hringir í síma
(91)85111 eða (91)25860. Þú getur líka fylit út hjálagðan
miða og sent okkur. Síðan sjáum við um að þú fáir blaðið
sent um hæl. Flóknara er það ekki.
Eiðfaxi er
mánaðarrit
um hesta og
hestamennsku.
Vandað biað
að frágangi,
prýtt fjölda
mynda.
1 Pósthólf 887 121 Reykjavik IbÍUI IV\I Sími 8 5111/25860
Ég undirritaður/undirrituö óska að gerast askrifandi að Eiðfaxa: |—i Það sem til er i—i .—. frá og með I—I af blöðum frá upphafi. I I frá áramótum 80/81. I | næsta tölublaði.
NAFN NAFNNUMER
HEIMILI
Eiðfaxi hóf göngu sína 1977 og hefur komið út mánaðarlega siðan.
Hvert eintak af eldri blöðum kostar nú 15 Nýkr.
Fyrri hluti 1981, janúar—júní kostar 90 Nýkr.
landsins. Er þessar plötur komu loksins
til landsins hefur „kerfið” geymt þær á
meðan ákveðið er hvaða tollflokkur
henti þeim bezt. Hafa þær nú velkst um
„kerfið” í þrjá mánuði eins og áður er
sagt.
Á meðan þessar öryggisplötur hafa
velkzt um „kerfið” hefur neyðarflug
verið farið a.m.k. einu sinni í viku frá
Rifi. Til að neyðarflug væri mögulegt
hafa starfsmenn flugvallarins á Rifi
þurft að kasta út á völlinn litlum
neyðarljósatýrum.
Núna, þremur mánuðum eftir að
þessar plötur komu til landsins, voru
þær „loksins” settar í 80 prósent toll
og því tilbúnar til afgreiðslu. Núna er
hins vegar ekki sama veðurfar og var í
haust, flugvallarljósin eru hulin klaka
og ís þannig að enn verður að bíða með
að setja þessar lífsnauðsynlegu plötur
undir ljósin. Snæfellingar verða því
enn um sinn að kasta Ijóstýrum á flug-
völlinn þurfi að flytja sjúkan mann til
Reykjavikur.
„Þetta er ekkert einsdæmi. Það
sama kom fyrir á Akureyri, er við
þurftum að bíða eftir leiðbeiningar-
ljósum í heilt ár á meðan tollflokkur
var ákveðinn. Tollurinn vildi setja
rúmlega 100% toll á ljósin, sem við
vildum ekki samþykkja, og þá varð að
endurskoða málið. Það er undarlegt að
fjárveitingar til flugvalla skuli rýrðar á
þennan hátt, en þeir virðast hafa rétt
til þess að setja geysilega tolla á lífs-
nauðsynleg tæki,” sagði Agnar
Kofoed-Hansen ennfremur. -ELA.
'1'uUif U\e uKyJdU ^íhsaJ ....
a/s/ic
AS-470 200-Watt 4-Way 5-Speaker System
■ TECHNICAL SPECIFICATIONS
Enclosure: Bass Reflex Type
Speaker complement:
Woofer 38cm (15”) cone type
Midrange 13.5cm (5 1/4")
cone type
Tvweeter 7.5cm (3") cone type
with diffuser x 2
Super Tweeter Horn type
Nominal impedance: 8 ohms
Power handling 200 Watts (Maximum)
capacity: 100 Watts (Nominal)
Frequency range:
Crossover
frequencies:
Sensitivity:
Dimension:
Weight:
Accessory:
25 to 23,000 Hz
700 Hz, 4,000 Hz,
8,000 Hz
97 dB (at 1m distance)
416mm (W) 16-3/8" X
672mm (H) 26-1/2" X
280mm (D) 11-1/16"
20.0 kg (44.0 1bs) Net.
L.E.D. Power Level
Display 4 Green,
1 Yellowand 1 Red LED.s
■ FREQUENCY RESPONSE
Eru líka til 70 wf 100 w og 150 w.